Siðareglur fyrir starfsfólk Reykjavíkurborgar
Borgarráð staðfesti í gær siðareglur fyrir starfsfólk Reykjavíkurborgar. Samþykkt þeirra kemur í kjölfarið á samþykkt siðareglna fyrir kjörna fulltrúa en hún fór formlega fram í borgarstjórn á þriðjudaginn. Fulltrúar starfsfólks vann sjálft að skráningu reglnanna og voru þær m.a. sendar stærstu viðsemjendum borgarinnar til umsagnar. Þannig voru lagðar fram umsagnir Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Félags íslenskra náttúrufræðinga, Samiðnar, Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, Stéttarfélags sjúkraþjálfara og Verkstjórafélags Reykjavíkur á fundi borgarráðs í gær. Fleiri áfangar sem leitt hafa af samþykkt tillögu Samfylkingarinnar um siðareglur eru væntanlegir á næstu vikum svo sem málsmeðferðarreglur fyrir flautara (whistle-blowers) en þær eru nú á lokastigi undirbúnings hjá embætti Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar.
Borgarráð sameinaðist í bókun í tilefni af samþykkt reglnanna:
“Borgarráð fagnar nýjum siðareglum starfsfólks Reykjavíkurborgar og þakkar bæði starfshópnum sem þær skráði sem og þeim stéttarfélögum starfsmanna sem komu að gerð þeirra með umsögnum sínum. Mannauðsstjóri mun nú í framhaldi af samþykkt siðareglnanna kynna þær starfsmönnum borgarinnar sem og samráðsnefnd Reykjavíkurborgar og heildarsamtaka stéttarfélaga.”
Flokkað undir Myndbönd, Myndir, Pistlar.