Óvissa um framtíð Strætó – einkavæðing eftir kosningar?
20/11/09
Á fundi borgarráðs í gær kristallaðist sú mikla óvissa sem er um framtíðarrekstur Strætó og hvort Sjálfstæðisflokkurinn ætli sér að einkavæða fyrirtækið næsta sumar, að afloknum sveitarstjórnarkosningum, nái hann sæti í meirihluta í Reykjavík og öðrum lykilsveitarfélögum. Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu samþykkti á dögunum að stjórn samtakanna ynni áfram á grundvelli tillagna frá ráðgjafafyrirtækinu ParX. Í þeim kom fram að félaginu yrði breytt þannig að rekstur þess byggðist á útboðum. Tillagan þýddi sem sagt að öllum vagnstjórum yrði sagt upp störfum og vagnar seldir. Undirritaður greiddi atkvæði gegn þessari málsmeðferð vegna þeirrar óþolandi óvissu sem þetta skapaði en borgarstjóri hafði haft þau orð, að “ekkert yrði ákveðið fyrr en eftir kosningar”. Á fundi borgarráðs reyndu fulltrúar Sjálfstæðisflokks að gera lítið úr tillögu stjórnar SSH (þar sem borgarstjóri situr) og samþykkt aðalfundar SSH. Þessi áform virðast því í stuttu máli að hanga yfir allri starfseminni fram á næsta sumar, og bætast við langan lista erfiðra mála sem á að ýta fram yfir kosningar. Væntalega vegna þess að afstaða borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins er ekki líkleg til að laða að þeim fylgi í næstu kosningum.
Þjónustuskerðing fest í sessi
Skipst var á bókunum í þessu efni í borgarráði í gær. Tilefnið var að meirihluti borgarstjórnar samþykkti nú aukið framlag til fyrirtækisins. Það hafði dregist í meira en ár til að knýja á um breytingar á stjórn, stefnu fyrirtækisins. Nú var framlagið samþykkt án þess að neitt af þessum markmiðum hafi náðst fram. Borgarstjóri virðist ekki hafa haft afl eða stöðu í samskiptum við aðra bæjarstjóra að fylgja eftir skýrum bókunum umhverfis- og samgönguráðs og borgarráðs í málinu frá því í sumar. Í staðinn virðist Sjálfstæðisflokkurinn nú sáttur á allar þær þjónustuskerðingar sem hingað til hafa orðið á leiðarkerfi Strætó en fulltrúar flokksins í borginni hafa ekki viljað kannast við sem sýna stefnu en vísað til andstöðu annarra sveitarfélaga.
Bókun Samfylkingar og VG um endurfjármögnun Strætó bs. úr borgarráði
Borgarráð samþykkti í sumar einróma að tengja endurfjármögnun Strætó við almenna stefnumótun og þjónustu fyrirtækisins auk heildarendurskoðun á stofnsamþykktum þess. Ástæða þessa var að ekki hafði tekist að fylgja eftir stefnu Reykjavíkurborgar um öflugar almenningssamgöngur í samstarfi innan stjórnar Strætó bs eða stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðisins (SSH). Vegna þessa hefur tillaga um endurfjármögnun dregist í heilt ár. Nú hefur meirihlutinn gefist upp á að ná fram hagsmunum almenningssamgangna og Reykvíkinga og samþykkir endurfjármögnun án þess að komin sé ásættanleg niðurstaða í því efni. Þvert á móti er verið að festa skammsýnar þjónustuskerðingar síðustu missera í sessi og opna fyrir frekari öfugþróun í þjónustu Strætó. Verður ekki annað séð að borgarstjóri hafi orðið undir í samskiptum við önnur sveitarfélög og gefist upp á því verkefni sem umhverfis- og samgönguráð og borgarráð fól honum að ná fram. Í staðinn liggur fyrir skýrsla frá ráðgjafafyrirtæki þar sem lýst er tillögum sem ganga í þveröfuga átt við þær áherslur sem Reyjavíkurborg hefur hingað til haft. Yfir fyrirtækinu vofir því að bjóða eigi alla þjónustu þess út en það þýðir uppsögn allra vagnstjóra og sölu vagna. Líkt og á aðalfundi SSH þar sem tillögur ráðgjafa voru kynntar leggst Samfylkingin og VG gegn því að unnið verði á grundvelli ofangreindra tillagna.
Flokkað undir Pistlar.