Samfylkingin leggur til bann við innihaldslausum yfirboðum

15/12/09
Önnur umræða um fjárhagsáætlun Reykjavíkur stendur nú yfir. Í upphafi hennar lagði borgarstjórnarflokkur Samfylkingarinnar fram tillögu um bann við innihaldslausum yfirboðum í aðdraganda borgarstjórnarkosninga. Tillagan er flutt í ljósi erfiðrar fjárhagsstöðu borgarinnar og í ljósi reynslunnar þegar Sjálfstæðisflokkurinn tapaði borginni síðast í kosningum. Vorið 1994 jós Sjálfstæðisflokkurinn út um 800 milljónum króna umfram fjárheimildir eða hátt í tvo milljarða króna að núvirði. Þessi spor hræða því þessi ábyrgðarlausi fjáraustur bættist ofan á skuldasöfnun áranna á undan og skildi fjármál borgarinnar eftir í rúst.

Tillaga Samfylkingarinnar sem verður afgreidd í lok umræðunnar er svohljóðandi:

Bann við innihaldslausum yfirboðum
Borgarstjórn samþykkir að engar ákvarðanir sem leiða af sér kostnað fyrir borgarsjóð verði samþykktar fram að komandi kosningum án þess að ítarlegt mat á heildarkostnaði, afleiddum rekstrarkostnaði og samanburði við aðrar mögulegar leiðir til að ná sama markmiði liggi fyrir. Jafnframt þurfi að sýna fram á hvernig viðkomandi skuldbinding rúmist innan fjárhagslegs svigrúms Reykjavíkurborgar til framtíðar og til hvaða aðgerðar verði gripið til að eiga fyrir því. Í því skyni að leggja grunn að slíku mati verði lögð fram greining á fjárhagslegum umhverfi og þróun lykilstærða í efnhag- og rekstri Reykjavíkurborgar til næstu fimm ára.

Flokkað undir Pistlar.