Sjálfstæðisflokkurinn hringsnýst í málefnum Orkuveitunnar
3/1/10
Ný heildarstefna Orkuveitu Reykjavíkur var samþykkt einróma í stjórn fyrirtækisins milli jóla og nýárs. Fróðlegt verður að fylgjast með umfjöllun um hana á vettvangi borgarstjórnar þar sem hún felur í sér algjörn viðsnúing á stefnu og stóryrðum Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn undanfarin ár.
1. Gagnaveitan – arftaki Línu.net – er nú skilgreind sem hluti af kjarnastarfsemi Orkuveitunnar. Þetta er þvert á ótal stóryrði og áform Sjálfstæðisflokksins um einkavæðingu á grunnneti á sviði gagnaflutninga í borginni.
2. Ábyrg stefna um að koma þekkingu Orkuveitunnar í verð, sem áður var kölluð útrás er einnig hluti stefnunnar. Þar með er gengið þvert gegn þeirri stefnu borgarstjóra og sexmenninga Sjálfstæðisflokksins að selja REI og þekkingarhluta Orkuveitunnar. Vegna þeirra áforma sem þröngva átti fram í kjölfar REI-málsins sprakk fyrsti meirihluti kjörtímabilsins, góðu heilli. Hefði borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins haft sitt fram hefði Hannes Smárason og Geysir Green Energy GGE orðið eigendur að þekkingarhluta Orkuveitunnar og fengið 20 ára einkarétt að verkefnum hennar, en GGE hafði forkaupsrétt á REI samkvæmt samningum um samruna GGE og REI sem Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði að láta standa en hundrað-daga meirihlutinn hafnaði.
Vissulega má velta fyrir sér hvort Sjálfstæðisflokkurinn sé fyrst og fremst að leggja ýmis einkavæðingaráform sín á Orkusviði til hliðar fram yfir borgarstjórnarkosningar. Það er þó ekki eina áhyggjuefnið í málefnum Orkuveitunnar því þar eru fjármálin gríðarlega aðkallandi. Skuldir fyrirtækisins stefna í að fimmfaldast á kjörtímabilinu, voru 55 milljaðar í árslok 2005 og stefna hátt í 250 milljarða á því næsta. Þetta er ávöxtur óvarlegrar stefnu og fjármálastjórnar sem taka þarf miklu fastari tökum. Það verður seint sagt að góð fjármálastjórn sé ein af sterku hliðum Sjálfstæðisflokksins og ljóst að endurreisn Orkuveitunnar verður eitt af lykilverkefnum næsta kjörtímabils.