Ragnheiður Gröndal og Felix Bergsson í Prókjörskaffi í Kolaportinu!
Laugardaginn 23. janúar eru nákvæmlega tvö ár frá því að tókst að tryggja framtíð Kolaportsins – en til stóð að breyta því í bílastæðahús. Gegn þessu höfðu þúsundir Reykvíkinga barist – og mótmælt með undirskriftum. Á það hafði ekki verið hlustað og svörin voru: Það er því miður ekkert hægt að gera. Þetta breyttist með hundrað daga meirihlutanum og Dagur B. Eggertsson tryggði framtíð Kolaportsins með framtíðar-samningi síðasta dag sinn á borgarstjórastóli.
Til að fagna framtíð Kolaportsins – og bjóða upp á kaffi í tilefni af prófkjöri Samfylkingarinnar stendur Dagur fyrir dagskrá í Kolaportinu kl. 14 í samstarfi við Kolaportið.
Kaffi og með því!
Góða skapið!
Tónlist og skemmtiatriði fyrir börnin.
P.s. myndin að ofan er tekin 23. janúar 2008 og er af framkvæmdastjóra Kolaportsins ásamt Degi B. Eggertssyni.
Flokkað undir Pistlar.