Lykiláherslur í prófkjöri Samfylkingarinnar

Það er mín bjargfasta skoðun að Reykjavík þurfi á félagshyggjustjórn að halda næstu árin. Komandi kosningar munu því snúast um það hvort borgarbúar leggi traust sitt á hugmyndafræðina sem leiddi okkur í hrunið eða vilji skýran valkost jafnaðarstefnunnar með áherslu á atvinnuuppbyggingu, lýðræðisumbætur, velferð og börn.

Reykjavík taki forystu í endurreisninni
Samfylkingin er flokkur vinnandi fólks. Við höfum skýra sýn á hlutverk Reykjavíkur í endurreisninni og hvernig styðja má við blómlegt atvinnulíf. Á höfuðborgarsvæðinu er atvinnuleysið hæst en jafnframt bestu tækifærin til að skapa ný störf. Reykjavík verður að taka forystu í uppbyggingunni eftir hrunið.

Endurmat er nauðsynlegt
Samfylkingin verður líka að vera leiðandi í því nauðsynlega endurmati sem fram þarf að fara í samfélaginu. Við þurfum að leiða umræðu um samstarf, en ekki samkeppni á milli sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Það þarf að draga úr kostnaði við húsnæði og steinsteypu og beina kröftunum í þjónustu við þá yngstu og elstu.

Valddreifing og lýðræðisumbætur
Samfylkingin á að vera róttækur umbóta og lýðræðisflokkur. Við eigum að vera tilbúin að flytja ákvarðanir og völd úr ráðhúsinu út í hverfin til að mæta auknum áhuga á íbúalýðræði og nánara samstarfi stofnana sem vinna hlið við hlið í hverfunum.

Jöfn tækifæri – börn og velferð í forgang
Eitt mikilvægasta verkefni okkar er svo eigum við að vinna gegn ójöfnuði og afleiðingum kreppunnar. Þar þarf að styrkja forvarnir og þjónustumiðstöðvar í hverfum, innra starf skólanna og leita allra leiða að gera frístundastarf, íþróttir og listnám að opnum möguleika allra barna, án tillits til efnahags. Börnin mega ekki verða fórnarlömb hrunsins.

Flokkað undir Málefni, Pistlar.