Hvað má réttlæti og jafnræði kosta?

Hanna Birna var til í að borga 600 milljónir fyrir gömlu húsin við Laugaveg – til að kaupa Ólaf F. Magnússon til meirihlutasamstarfs. Og ofgreiða hrun-bætur til verktaka upp á tæpan milljarð, til að fá Óskar Bergsson til meirihlutasamstarfs. En stendur vörð um að fjölskyldum í gríðarlegum erfiðleikum sé mismunað – og beitir fjárhagsstöðu borgarinnar fyrir sig. Ef þú fékkst úrhlutað lóð á föstu verði, máttu skila, ef þú fékkst úthlutað lóð eftir útboð máttu það ekki. Jafnræði og réttlæti er of dýrt – en reikninginn vegna ítrekaðra meirihlutakaupa mega borgarbúar bera.

Flokkað undir Pistlar.