Listinn klár: Nýtt fólk úr atvinnulífinu áberandi
Fulltrúaráðsfundur Samfylkingarinnar í Reykjavík samþykkti í gærkvöldi einróma framboðslista flokksins vegna komandi borgarstjórnarkosninga. Nýtt fólk úr atvinnulífinu er áberandi í væntanlegum borgarstjórnarflokki, í sætunum sem raðast neðan þeirra sem þátt tóku í nýafstöðu prófkjöri. Og það er jafnframt áberandi hversu mikil breidd einkennir hópinn, fjölbreytt reynsla og fólk sem býr og þekkir til í öllum hverfum borgarinnar. Það verður spennandi og gaman að vinna með þessu fólki á næsta kjörtímabili. Því það er komin tími til að Reykjavík taki forystu í endurreisninni.
Framboðslistinn:
1. sæti Dagur B. Eggertsson, læknir og borgarfulltrúi
2. sæti Oddný Sturludóttir, píanókennari og borgarfulltrúi
3. sæti Björk Vilhelmsdóttir, félagsráðgjafi og borgarfulltrúi
4. sæti Hjálmar Sveinsson, dagskrárgerðarmaður og rithöfundur
5. sæti Bjarni Karlsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju
6. sæti Dofri Hermannsson, leikari og varaborgarfulltrúi
7. sæti Sigrún Elsa Smáradóttir, MBA frá HÍ, matvælafræðingur og borgarfulltrúi
8. sæti Margrét K. Sverrisdóttir, verkefnisstjóri hjá HÍ og formaður Kvenréttindafélags Íslands
9. sæti Eva H. Baldursdóttir, lögfræðingur
10. sæti Stefán Benediktsson, arkitekt og formaður 60+ í Reykjavík
11. sæti Arna Garðarsdóttir, starfsmannastjóri CCP
12. sæti Sverrir Bollason, umhverfisverkfræðingur hjá VSÓ ráðgjöf
13. sæti Hanna Lára Steinsson, félagsráðgjafi
14. sæti Bjarni Jónsson, framkvæmdastjóri Sambands garðyrkjubænda og forystumaður Siðmenntar
15. sæti Kristín Soffía Jónsdóttir, BS í umhverfisverkfræði
16. sæti Hilmar Sigurðsson, framkvæmdastjóri CAOZ
17. sæti Falasteen Abu Libdeh, skrifstofumaður á Hagstofu Íslands
18. sæti Lárus R. Haraldsson, verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg
19. sæti Hildur Hjörvar, nemi
20. sæti Bjarni Þór Sigurðsson, kvikmyndagerðarmaður og fulltrúi í trúnaðarmannaráði VR
21. sæti Sólveig Arnarsdóttir, leikkona
22. sæti Ingi Bogi Bogason,forstöðumaður á sviði menntunar og mannauðs á vettvangi iðnaðar
23. sæti Kristín Erna Arnardóttir, verkefnastjóri
24. sæti Kjartan Rolf Árnason, verkfræðingur
25. sæti Torfi Tulinius, prófessor í íslenskum miðaldafræðum hjá HÍ
26. sæti Ingibjörg Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur og ritari 60+
27. sæti Ásgeir Beinteinsson, skólastjóri og fyrrum formaður SffR
28. sæti Valgerður Eiríksdóttir, kennari í Fellaskóla
29. sæti Stefán Jóhann Stefánsson, hagfræðingur og fyrrum formaður SffR
30. sæti Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri og ráðherra
Flokkað undir Pistlar.