Lóðaskil: spurt út í viðbrögð og yfirlýsingar borgarstjóra
Á fundi borgarráðs í dag óskuðu fulltrúar Samfylkingarinnar eftir upplýsingum um viðbrögð borgarstjóra í málefnum lóðahafa sem ekki hafa fengið að skila lóðum sínum þrátt fyrir úrskurð samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis um að þær ákvarðanir hafi verið ólögmætar. Svo virðist sem aðilum hafi verið send bréf án þess að þau hafi verið lögð fram eða kynnt í borgarráði.
Þá var sérstaklega kallað eftir gögnum varðandi yfirlýsingar borgarstjóra um að Reykjavíkurborg væri það ofviða að koma til móts við fjölskyldur í vanda vegna lóðaúthlutana og hvaða fjárhæðir eru í húfi. Spurningar hafa vaknað um það hvort í fyrri svörum hafi þessar fjárhæðir verið stórlega ýktar.
Fyrirspurnin fer hér á eftir:
Óskað er eftir því að gögn um viðbrögð Reykjavíkurborgar vegna úrskurðar samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins vegna lóðaskila verði lögð fram og rædd í borgarráði. Ekki er hægt að skilja bókun meirihlutans frá síðasta fundi borgarráðs öðru vísi en að það sé áskilið áður en formleg skref verði tekin í málinu. Vegna fullyrðinga borgarstjóra í fjölmiðlum verði jafnframt gerð grein fyrir því að hvaða fjárhagslegu hagsmunir borgarstjóri telji vera í húfi í málinu og verði þar greint á milli atvinnuhúsnæðis- og íbúðahúsnæðis, auk þess að greina á milli fyrirtækja og einstaklinga eða fjölskyldna í báðum flokkum húsnæðis.
Flokkað undir Pistlar.