Ódýrari frístundir fyrir börn og fjölskyldur

Samfylkingin hefur lagt ríka áherslu á málefni barna og ungmenna á kjörtímabilinu og tvívegis með stuttu millibili lagt fram tillögur í borgarstjórn um leiðir til að gera frístundir ódýrari fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Af því tilefni birtist viðtal við mig í Vesturbæjarblaðinu sem kom út í lok febrúar.

Viðtalið fer hér á eftir.

Ódýrari frístundir fyrir börn og fjölskyldur

 Frístundir skipta miklu máli fyrir allar barnafjölskyldur. Það val sem margar fjölskyldur standa frammi fyrir í dag lítur ekki að því að velja þær frístundir sem barnið hefur mestan áhuga á heldur snýst það um hvort fjölskyldan hafi efni á því að leyfa barninu að sinna sínum áhugamálum. Frístundastarf kostar talsverða peninga, ekki bara æfingagjöld heldur einnig æfingaföt, hljóðfæri, ferðir innanlands og utan og ekki síst skutl foreldra. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóraefni Samfylkingarinnar segir það því mikið hagsmunamál fyrir fjölskyldur í Reykjavík að tillögur Samfylkingarinnar í borgarstjórn um ódýrari frístundir nái fram að ganga. 

Jöfn tækifæri allra barna

 „Það skiptir mjög miklu máli að öll börn sem á annað borð hafa áhuga geti stundað íþróttir, kynnst listum og verið með jafnöldrum sínum í skipulögðu frístundastarfi,“ segir Dagur B. Eggertsson. Samfylkingin hefur lagt ríka áherslu á málefni barna og ungmenna á kjörtímabilinu og tvívegis með stuttu millibili lagt fram tillögur í borgarstjórn um leiðir til að gera frístundir ódýrari fyrir börn og fjölskyldur þeirra. „Við vitum af reynslu Finna og fleiri að krepputímar geta bitnað illa á börnum og í raun búið til tvær þjóðir í landinu. Það má ekki gerast. Við lítum á það sem samstarfverkefni alls samfélagsins að standa vörð um jöfn tækifæri allra barna.“ 

Samstarf er rétta leiðin

 ,,Tillaga Samfylkingarinnar var þess efnis að gengið yrði til viðræðna við íþróttafélög, æskulýðssamtök, tónlistar- og listaskóla og aðra aðila sem sinna uppbyggilegu frístundastarfi í Reykjavík. Markmiðið viðræðnanna verði að lækka kostnað fjölskyldna og einfalda aðgengi að íþróttum, frístundum og listnámi. Þannig verði stefnt að almennari og meiri þátttöku á verði sem fleiri ráða við. Sérstaklega verði hugað að úrræðum þeirra sem búa við þröngan fjárhag heima fyrir. Í samvinnu við foreldra og forystu þeirra sem fyrir starfseminni standa verði horft til kostnaðar vegna æfingagjalda, fjölda æfinga og kennslustunda, hóptíma í stað einkakennslu þar sem því verður við komið auk útgjalda vegna ýmis konar fatnaðar, búnaðar og ferðalaga. Í hverju hverfi og hverjum skóla verði jafnframt hugað að leiðum til að frístundir verði hluti af samfelldum skóladegi þannig að dregið verði úr þörf fyrir dýrt skutl foreldra.” 

Er þá að þínu mati eitthvað hik á meirihlutanum?

,,Tillögunni hefur tvívegis verið vísað til nefndar án þess að skýr afstaða meirihluta borgarstjórnar liggi fyrir. Samfylkingin muni halda áfram að beita sér í málinu en í raun hefur það víðari skírskotun en aðeins til borgarstjórnar. Kannski er það okkur hollt sem samfélagi að leggja meiri áherslu á þátttöku og innihald hennar en umbúnaðinn, sem oft leiðir af sér kostnað sem getur hæglega orðið of mikill fyrir marga. Við eigum að standa saman um það að tryggja öllum gott líf fyrir minni tilkostnað. Þá sköpum við betra, skemmtilegra og réttlátara samfélagið í leiðinni,” segir Dagur B. Eggertsson.

Flokkað undir Pistlar.