Framkvæmdastopp í Reykjavík
Heildarfjárfestingar á vegum Reykjavíkurborgar næstu þrjú árin dragast saman um 70% samkvæmt framlagðri þriggja ára áætlun sem lögð var fram af borgarstjóra og meirihluta borgarstjórnar í dag. Áætlunin felur nánast i sér framkvæmdastopp en heildarfjárfesting A-hluta borgarinnar á tímabilinu á að vera 6,6 milljarðar sem er minna en framkvæmt hefur verið á meðalári að undanförnu. Þess má geta að árið 2008 var framkvæmt fyrir 10,3 milljarða en framkvæma á fyrir 1,3 árið 2013 samkvæmt áætluninni sem kynnt var í dag.
Ekki gert ráð fyrir Hverahlíðavirkjun
Þá vekur sérstaka athygli að í þriggja ára áætlun Orkuveitu Reykjavíkur er ekki gert ráð fyrir fjármögnun eða framkvæmdum við Hverahlíðarvirkjun en góð sátt hefur verið um þá framkvæmd frá umhverfissjónarmiðum. Skýringanna er að leita í því að meirihlutinn hefur keyrt fjárhag fyrirtækisins út á ystu nöf með því að fjórfalda skuldir þess á á fjórum árum, þrátt fyrir viðvaranir. Ljóst er að leita þarf nýrra leiða við fjármögnun Hverahlíðavirkjunar. Virkjunin er lykilforsenda fyrir orkuöflun til álvers í Helguvík.
Áfram niðurskurður í viðhaldi og sumarstörfum
Rétt er að minna á að til viðbótar niðurskurði í framkvæmdum hefur meirihlutinn þegar skorið niður í viðhaldi fasteigna úr 1.323 milljónum 2008 í 734 milljónir á yfirstandandi fjárhagsáætlun eða um nær 50%. Enn meiri niðurskurður er í viðhaldi í umhverfi borgarinnar eða úr 1.323 milljónum árið 2008 í 611 milljónir króna á yfirstandandi ári. Þá er ótalið að sumarstörfum fækkar hjá umhverfissviði og framkvæmdasviði auk íþrótta- og tómstundasviðs eða samtals um 300 störf.
Samfylkingin setur atvinnumálin númer eitt
Samfylkingin mun leggja sérstaka áherslu atvinnumál í aðdraganda borgarstjórnarkosninga og boðar breytingartillögur við framlagða þriggja ára áætlun þegar hún verður tekin til afgreiðslu í borgarstjórn 16. mars nk. Þá minnir Samfylkingin á ítrekaðar tillögur flokksins um átak í viðhaldsverkefnum, mótun atvinnustefnu, nýtingu á tómu húsnæði í þágu nýsköpunar og atvinnueflingar auk annarra tillagna flokksins um atvinnumál í borgarstjórn.
Flokkað undir Pistlar.