Hanna Birna vill bíða: 70% samdráttur í framkvæmdum Reykjavíkurborgar

Þriggja ára áætlun um fjárhag og rekstur Reykjavíkurborgar var lögð fram til fyrri umræðu í borgarstjórn í gær. Sérstaka athygli vekur að samdráttur í framkvæmdum er um 70%. Þess má geta að árið 2008 var framkvæmt fyrir 10,3 milljarða en framkvæma á fyrir 1,3 árið 2013 samkvæmt áætluninni. Rétt er að minna á að til viðbótar niðurskurði í framkvæmdum hefur meirihlutinn þegar skorið niður í viðhaldi fasteigna úr 1.323 milljónum 2008 í 734 milljónir á yfirstandandi fjárhagsáætlun eða um nær 50%. Enn meiri niðurskurður er í viðhaldi í umhverfi borgarinnar eða úr 1.323 milljónum árið 2008 í 611 milljónir króna á yfirstandandi ári.

Athyglisvert var að Hanna Birna brást við gagnrýni Samfylkingarinnar á þessa stefnu með þeim orðum að ljóst væri að Samfylkingin “hefði ekki trú á atvinnulífinu”. Líklega er þarna um að ræða einhverja ómenguðustu frjálshyggjustefnu í atvinnumálum sem kynnt hefur verið frá hruni. Það á ekkert að gera – bara bíða. Klassísk jafnaðarstefna á krepputímum er þvert á móti sú að þá sé réttlætanlegt og mikilvægt að stuðla að atvinnu með opinberum fjárfestingum og átaki í tímabærum viðhaldsverkefnum, eftir því sem kostur er. Óhætt er að segja að hinar pólitísku átakalínur séu að skírast.

Flokkað undir Pistlar.