Sjálfstæðisflokkurinn dalar í borginni
Nýja Gallup-könnunin sem birtist í upphafi vikunnar fékk nánast enga athygli, þó hún sé allrar athygli virði. Samkvæmt henni fengi Sjálfstæðisflokkurinn fengi 37% fylgi ef kosið yrði til borgarstjórnar í dag. Samfylking og Sjálfstæðisflokkur fengju sex borgarfulltrúa hvor flokkur. Sjálfstæðisflokkurinn fengi nú 4% minna fylgi en flokkurinn mældist með í janúar. 34% myndu kjósa Samfylkinguna eða einu prósentustigi meira en í síðustu könnun. Tæp 19% myndu kjósa Vinstri græna, 5% Framsóknarflokkinn, 3% Besta flokkinn og 2% Frjálslynda flokkinn.
11% sögðust mundu skila auðu. Samkvæmt þessu fengju Sjálfstæðismenn og Samfylking 6 borgarfulltrúa hvor og Vinstri grænir fengju 3.
Heildarúrtaksstærð var 6.968 af öllu landinu en þar af voru Reykvíkingar 2.552 og svarhlutfall var 67,1%.
Sjá hér: http://www.ruv.is/frett/sjalfstaedisflokkur-tapar-fylgi
Og svo hvet ég alla sem hafa áhuga á að leggja jafnaðarstefnuninni og framtíð Reykjavíkur lið fram að kosningum að hafa samband. Saman til sigurs!
Flokkað undir Pistlar.