“Lead, follow or get (the hell) out of the way”.
Jón Sigurðsson forstjóri Össurar flutti mjög athyglivert erindi á Iðnþingi á fimmtudaginn sl – sem merkilegt nokk – hefur hvergi fengið athygli í fjölmiðlum, svo ég hafi séð. Jón kom víða við í ábendingum sínum og oft á tíðum vel rökstuddri gagnrýni. Stjórnmálin fengu sinn skammt og Jón fékk reyndar aldrei meira klapp forystumanna í atvinnulífinu en þegar hann gagnrýndi Sjálfstæðisflokkinn – fyrir “vaðmálspólitík í anda Jónasar frá Hriflu”.
Ríkisstjórnin gat líka tekið ýmislegt til sín – og ekki nema hollt að hlusta á það. Óumdeilanlegur hápunktur í erindinu var þó sá þegar Jón greip til kjörorða bandaríska landgönguliðsins til að senda stjórnarandstöðunni á þingi skilaboð: “Lead, follow or get (the hell) out of the way”. Þessi setning hitti í mark – en hefur ekki síður leitað á mig eftir óljósar yfirlýsingar þeirra daginn eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave: Hvert vilja Sigmundur og Bjarni fara? Ætla þeir að halda samstöðunni og landa betri samningum – eða ætla þeir bara að þvælast fyrir.
Vonast til að Samtök iðnaðarins setji myndband af ræðu Jóns á vefinn hjá sér því sjón er sögu ríkari. Erindið er dregið svona saman á heimasíðu SI:
“Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, sagði í ræðu sinni á Iðnþingi í dag að Íslenska efnahagsumgjörðin hafi hingað til einkennst af því að hér voru stuttar boðleiðir, mikill sveigjanleiki og tiltölulega lítt íþyngjandi eftirlitsstofnanir. Aðlögunarhæfni atvinnulífsins var mikil en myntin okkar örlítil. Þetta umhverfi stuðlaði að alvarlegri fjármála- og efnahagskreppu. Ríkissjóður er stórskuldugur og orðspor okkar hefur beðið mikla hnekki. Atvinnuleysi er ógnvænlegt og nauðsynlegt að skapa skilyrði til að draga úr því. „En því miður hefur okkar háttur verið sá að redda okkur út úr vandamálum frekar en að sveigja framhjá þeim. Nú þarf nauðsynlega að breyta um farveg. Hagkerfið er nánast lokað og ég óttast að þarna vilji sumir vera.“
http://www.si.is/upplysingar-og utgafa/idnthing/idthing2010/greinar/nr/3991
Hér eru glærurnar:
http://www.si.is/media/idnthing/Idnthing2010-jon_sig.pdf
Flokkað undir Pistlar.