Reykjavík: Viljum við framkvæmdir til að vinna gegn atvinnuleysi?
Enn var tekist á um það í borgarstjórn í dag hvort réttlætanlegt sé að taka lán fyrir framkvæmdum til að fækka atvinnulausum í Reykjavík. Þriggja ára áætlun um fjárhag og rekstur Reykjavíkurborgar gerir ráð fyrir að samdráttur í framkvæmdum verði um 70% frá 2009-2013. Þess má geta að árið 2008 var framkvæmt fyrir 10,3 milljarða en framkvæma á fyrir 1,3milljarða árið 2013 samkvæmt áætluninni. Rétt er að minna á að til viðbótar niðurskurði í framkvæmdum hefur meirihlutinn þegar skorið niður í viðhaldi fasteigna úr 1.323 milljónum 2008 í 734 milljónir á yfirstandandi fjárhagsáætlun eða um nær 50%. Enn meiri niðurskurður er í viðhaldi í umhverfi borgarinnar eða úr 1.323 milljónum árið 2008 í 611 milljónir króna á yfirstandandi ári.
Þessar áherslur meirihlutans fela í sér að ekki verði ráðist í nein ný verkefni og framkalla framkvæmdastopp. Það gengur þvert á skynsamlega stefnu til að bregðast við atvinnuleysi og kreppu. Sérstaka athygli vekur að gert er ráð fyrir því að atvinnuleysi haldist í 11% allt tímabilið, 2011-2013 án þess að því sjái stað að meirihlutinn ætli að gera annað en að stöðva framkvæmdir til að bregðast við.
Breytingartillaga Samfylkingarinnar við þriggja ára áætlun gerir ráð fyrir sömu upphæð til framkvæmda og sérstakri áherslu á meiriháttar viðhaldsverkefni á árunum 2011-2013 og á síðustu árum, alls að upphæð 5,3 milljarðar króna á ári í stað þess 70% niðurskurðar sem fyrirhugaður er í fyrirliggjandi frumvarpi. Þetta felur í sér 8,8 milljarða hækkun á fjármunum til framkvæmda og viðhalds á næstu þremur árum. Það voru vonbrigði að meirihlutinn gat ekki tekið undir þessa tillögu.
Ljóst er að Reykjavíkurborg getur ekki haldið uppi atvinnu- og framkvæmdastigi í borginni, ein og sér. Jafnmikilvægt er að borgin axli sína ábyrgð á að bregðast við erfiðri stöðu í atvinnumálum og sitji ekki aðgerðarlaus hjá. Að halda uppi framkvæmdastigi er eðlilegur hluti af því. Þríþætt rök eru fyrir því að viðhalda framkvæmdastigi næstu þrjú ár:
Atvinnuleysi hefur aldrei verið meira í borginni. Spá Reykjavíkurborgar um að 11% atvinnuleysi verði viðvarandi og óbreytt til 2013 undirstrikar mikilvægi þess að bregðast við. Kostnaður Reykjavíkurborgar við hvert prósentustig í atvinnuleysi hefur verið metinn 1 milljarður króna í töpuðu útsvari og auknum velferðarútgjöldum. Útgjöld til atvinnusköpunar spara útgjöld til velferðarmála.
Hagstæð tilboð og lægri framkvæmdakostnaður í samdrættinum. Útboð að undanförnu hafa verið umtalsvert undir kostnaðaráætlunum. Verk sem verður ráðist í næstu þrjú ár ættu því að vera ódýrari sem því nemur. Betra er því að framkvæma á samdráttarskeiðinu en eftir kreppu. Meira fæst fyrir hverja framkvæmdakrónu nú en eftir nokkur ár.
Endurgreiðsla virðisaukaskatts vegna viðhaldsframkvæmda. Viðhaldsverkefni eru mannaflsfrekustu framkvæmdirnar. Það gerir þær sérstaklega áhugaverðan kost í atvinnuleysi. Til viðbótar hefur Alþingi samþykkt tímabundna endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu á verkstað fyrir sveitarfélög. Sérstaklega hagkvæmt er því að ráðast í átak í tímabæru viðhaldi við núverandi aðstæður. Viðhaldsframkvæmdir eru bæði hagkvæmur og góður kostur í kreppu.
Svar Samfylkingarinnar við yfirskriftinni er því afdráttarlaust: já!
Flokkað undir Pistlar.