Hanna Birna í kosningaham: 230 milljónir í golfvöll þvert ofan í niðurskurðinn!
Hanna Birna Kristjánsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn lagði í dag fram tillögu í borgarráði um að 230 milljónir verði settar í að bæta 9 holum við golfvöllinn á Korpúlfsstöðum. Málinu er augljóslega ætlað að afla vinsælda í aðdraganda borgarstjórnarkosninga enda eru all-nokkrir á biðlista eftir að komast í Golfklúbb Reykjavíkur. En hvar er forgangsröðunin? Á sama tíma er hvarvetna mikill niðurskurður og launalækkanir. Forvarnarsjóður hefur verið lækkaður, afleysingarkennslu hætt, biðlistar í leikskólum lengdir, frístundakortin barna fryst og sumarstörfum stór-fækkað, svo aðeins séu tekin örfá dæmi.
Foreldrar, börn og starfsfólk hafa sýnt því skilning að draga þurfi saman vegna afleiðinga hrunsins og kreppunnar. Sama má segja um íþróttafélög sem hafa þurft að fresta samningsbundinni uppbyggingu og það á raunar líka við um okkur í minnihlutanum í borgarstjórn. Allir hafa axlað sinn hlut af aðhaldi og sparnaði, þótt annað hafi verið umdeilanlegt og þess vegna gagnrýnt. En hver var að taka á sig niðurskurð og skerðingar til að borgarstjóri gæti slegið sér upp hjá golfurum korteri fyrir kosningar? Enginn. Samfylkingin ekki heldur og lögðumst við því eindregið gegn tillögu Hönnu Birnu í borgarráði í dag. Þótt golf sé afbragðs íþrótt þá verður golfvallargerð einfaldlega að bíða fram yfir kreppu – ef kostnaðurinn þarf að koma úr borgarsjóði.
Bókun Samfylkingarinnar úr borgarráði:
Bókun um níu holu golfvöll
Í tillögu borgarstjóra felst að leggja fram 230 milljónir króna úr borgarsjóði í nýjan golfvöll. Það getur Samfylkingin ekki stutt á sama tíma og laun og þjónusta hefur verið skert og þrengt mjög að mikilvægri starfsemi í allri borginni. Samningar við íþróttafélög hafa þar ekki verið undanskildir og mörg brýn verkefni sem verða að bíða. Golf er góð íþrótt sem margir hafa áhuga á en það er ekki hægt að ætlast til þess að borgarbúar, foreldrar, starfsfólk og önnur íþróttafélög sætti sig við erfiðan sparnað og áframhaldandi aðhald þegar borgarstjóri snarar fram 230 milljónum í golfvöll.
Flokkað undir Pistlar.