Reykjavíkurráð ungmenna: Sumarstörf og forvarnir strax – en golfið má bíða

Unga fólkið í Reykjavík vill sumarstörf, forvarnir, fjármálakennslu, betri strætó, innihaldsríkari lífsleiknikennslu og sköpunarmiðstöð svo nokkur dæmi séu nefnd af líflegum og skemmtilegum fundi borgarstjórnar og Reykjavíkurráðs ungmenna sem haldinn var í dag. Þar fluttu fulltrúar Ungmennaráða borgarinnar tillögur sínar.

Natan Kolbeinsson, ungmennaráði Kringluhverfis flutti eldræðu um sumarstörf fyrir ungt fólk. Natan færði sterk rök fyrir því að allt ungt fólk ætti að fá vinnu í sumar líkt og í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur. Gagnrýndi hann einnig réttilega að verið væri að forgangsraða í þágu stækkunar á golfvelli sem varið verður í um 230 milljónum úr borgarsjóði samkvæmt tillögu borgarstjóra frá síðasta borgarráðsfundi. Sérstaka athygli vakti að Natan rak ofan í borgarstjóra tölur um ráðningar Reykjavíkurborgar á ungu fólki í sumarstörf sem hann taldi borgarstjóra hafa ýkt í máli sínu. Gaman að heyra í ungu fólki sem er jafn vel inni í málum og Natan.

Katrín Júníana Lárusdóttir, ungmennaráði Vesturbæjar, sendi bönkunum væna sneið og líkti þeim við hvali sem sætu um fiskitorfur þegar hún lýsti markaðsetningu þeirra gagnvart ungu fólki. Lagði hún til að fjármálakennslu þyrfti að efla stórlega í skólum – og lét fylgja að fjölmörgum fullorðnum væri ekki síður hollt að sitja í slíkum kennslustundum og skilja hlutverk Seðlabanka í fjármálakerfinu, svo dæmi væri tekið. Ekki er ljóst hvort Katrín hefði tiltekna fyrrverandi starfsmenn Seðlabankans í huga.

Einar Karl Gunnarsson, ungmennaráði Miðborgar og Hlíða, talaði fyrir ítarlega útfærðri tillögu um Sköpunarmiðstöð fyrir ungmenni. Hann rakti einnig að ungmennaráðið er búið að setja sig í samband við fleiri en einn og fleiri en tvo ráðherra. Húsið sem þau hafa í huga er ekki síður spennandi – O. Johnson og Kaaber-húsið við Sætún.

Eva Brá Axelsdóttir, Arnór Gunnar Gunnarsson og Kjartan Orri Þórsson fluttu tillögur sem lutu að betri kennslu og skólastarfi. Eva lagði áherslu á rétt ungs fólks í öllum hverfum til jafnra gæða í námi. Arnór færði skýr rök fyrir því að lífsleiknikennslu mætti bæta til muna og rakti niðurstöður athugunar sem unnin var með þátttöku ungs fólks í Vinnuskóla Reykjavíkur máli sínu tilstuðnings. Kjartan undirrstrikaði mikilvægi aukinnar og markvissri forvarnarfræðslu í skólum þar sem sérstaklega yrði sjónum beint að einelti, vímuefnum og kynþáttarfordómum.

Úlfar Viktor Björnsson og Edison Banushi fluttu tillögur um aðgengis- og samgöngumál. Úlfar flutti vel útfærða tillögu um aðgengi að Gufunesbæ í Grafarvogi. Edison rakti hvað þyrfti að laga í málefnum Strætó. Fjölmargir góðir punktar þar en minnti jafnframt á það fáránlega misvægi sem bitnar á Árbæjarhverfi en það er eina hverfið á höfuðborgarsvæðinu þar sem ekki er hægt að komast niður í miðbæ án þess að skipta um vagn.

Í Ungmennaráði Reykjavíkur eiga sæti fulltrúar ungs fólks á aldrinum 14-18 ára úr öllum hverfum borgarinnar en hvert hverfi á sér sitt ungmennaráð. Maður fyllist beinlínis bjartsýni á að heyra málflutning þeirra, rökfestuna og góðan flutning. Framtíð Reykjavíkur er björt!

Flokkað undir Pistlar.