Borgin kaupir inn fyrir milljarða án útboðs

Á fundi borgarráðs í dag lagði Samfylkingin fram tillögu um að trúnaði yrði aflétt af skýrslu innri endurskoðunar um innkaupamál borgarinnar. Í greinargerð með henni sem er opinber kemur fram að keypt er inn hjá Reykjavíkurborg fyrir milljarða án útboðs og aðkomu innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar.

Skrifstofur í ráðhúsinu eru ekki á einu máli um hversu stór hluti innkaupanna er án útboðs. Í tölum innri endurskoðunar kemur hins vegar fram að af 7,4 milljarða innnkaupum fari einungis 14% í gegnum útboð og rammasamninga með aðkomu innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar. Alls 1,7 milljarður er keyptur af sérfræðiþjónustu og aðkeyptri vinnu – en aðeins 2% þeirra innkaupa fara í gegnum innkaupaskrifstofu og útboð á hennar vegum. Í báðum tilvikum er verið að miða við árið 2008, sem er það ár sem tekið var út af innri endurskoðun. Því er ljóst að innkaupa og útboðsmál borgarinnar þurfa rækilegrar athugunar við.

Í tilefni af skýrslu innri endurskoðunar lögðu fulltrúar Samfylkingarinnar fram eftirfarandi fyrirspurn í borgarráði:

“Innkaupastefnu Reykjavíkurborgar er skýr í því efni að útboðum skuli beitt að svo miklu leyti og unnt er og að hlutur útboða skuli aukast. Þá er kveðið á um að skipulögðum vinnubrögðum skuli beitt. Tölulegar upplýsingar í skýrslu innri endurskoðunar virðast í hróplegu ósamræmi við þessi stefnumið.

Óskað er eftir skýringum á því að einungis 14% af 7,4 milljaða árlegum innkaupum Reykjavíkurborgar fari í gegnum útboð eða rammasamninga með aðkomu innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar. Er þetta hlutfall ásættanlegt að mati borgarstjóra?

Óskað er sérstakra skýringa og nákvæmrar sundurliðunar á 1,7 milljarða innkaupum á sérfræðiþjónustu og aðkeyptri vinnu en einungis 2% þeirra innkaupa fór í gegnum innkaupaskrifstofu. Er þetta hlutfall ásættanlegt að mati borgarstjóra?

Óskað er upplýsinga um hvernig var staðið að innkaupum fyrir þá 6,4 milljarða króna sem ekki fóru í gegnum innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar og hvernig eftirliti með þeim hefur verið háttað. Er þetta eftirlit ásættanlegt að mati borgarstjóra?

Þá er óskað eftir sambærilegum upplýsingum yfir innkaup á vegum eigna- og framkvæmdasviðs sem ekki fellur undir ofangreinda úttekt innri endurskoðunar.”

Flokkað undir Pistlar.