Lykiláherslur Samfylkingarinnar: Vinna – Skólar – Velferð

Samfylkingin samþykkti í gær kosningastefnuskrá vegna komandi borgarstjórnarkosninga á fjölmennu Reykjavíkurþingi sem haldið var í Breiðholti. Yfirskrift fundarins var Bjartari framtíð fyrir börnin okkar. Börn og málefni barna eru í forgrunni í allri stefnunni en megináhersla er lögð á þrennt: Vinnu, Skóla og Velferð.

Nýjar leiðir í stefnumótun – á annað þúsund Reykjavíkingar þátttakendur

Stefnuskráin hefur verið undirbúin á nýstárlegan hátt. Í haust var haldið framtíðarþing í anda þjóðfundar um grunngildi jafnaðarstefnunnar og lykilverkefnin í borgarmálunum. Frá áramótum hefur Samfylkingarfólk og fjöldi annarra Reykvíkinga svo hist á opnum stefnumótunarfundum og haldnir hafa verið um 60 heimafundir. Heimafundir eru ný leið í stjórnmálastarfi á Íslandi þar sem 15-20 einstaklingum, flokksbundnum og óflokksbundnum er boðið í heimahús og málin rædd á óformlegan – en umfram allt skemmtilegan hátt. Gríðarlegt magn ábendinga og hugmynda hafa komið fram á heimafundum Samfylkingarinnar sem nýst hafa við gerð kosningastefnuskrárinnar. Því má ætla að á annað þúsund manns hafi komið að undirbúningi kosningastefnu Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar 29. maí 2010.

Atvinnumál verða lykilmál Samfylkingarinnar

Ítarlegasti þáttur kosningastefnuskrárinnar fjallar um atvinnustefnu og aðgerðir gegn atvinnuleysi. Samfylkingin lítur á atvinnumál sem algjört forgangsmál á næsta kjörtímabili. Áframhaldandi aðgerðarleysi núverandi meirihluta er algerlega óviðunandi. Gerð er tillaga um að sett verði hagvaxtarmarkmið fyrir næsta kjörtímabil og kallað til víðtæks samstarf til að ná þeim með gerð sérstaks Vaxtarsamnings fyrir Reykjavík.

“Til að standa undir velferð og lífskjörum þarf að tryggja 3,5% meðalhagvöxt í Reykjavík næsta kjörtímabil. Vegna stöðu efnhagsmála þýðir þetta jafnframt að stefna þarf að um 5% hagvexti 2014. Til þess þarf margþættar aðgerðir sem ekki eru allar á færi Reykjavíkur heldur þarf að ná víðtækari samstöðu og samstarfi. Þessi tölulegu markmið eiga að vera markmið vaxtarsamnings Reykjavíkur, ríkisstjórnar, verkalýðshreyfingar, fyrirtækja, stuðningsstofnana atvinnulífsins og annarra samtaka í atvinnulífi.”

Vaxtarsamningi fyrir Reykjavík er frekar lýst í atvinnustefnu Samfylkingarinnar.

Lykilþættir í atvinnustefnu Samfylkingarinnar

Í inngangi atvinnustefnunar segir: Baráttan fyrir atvinnu er hornsteinn jafnaðarstefnunnar og forgangsmál við núverandi aðstæður. Öflugt og fjölbreytt atvinnulíf er alls staðar undirstaða velferðar og því lítur Samfylkingin á það sem eitt mikilvægasta hlutverk borgarinnar að efla og styrkja atvinnulífið í borginni. Upp á það hefur mikið skort síðustu ár.

Lykiláherslur Samfylkingarinnar í atvinnumálum og aðgerðum gegn atvinnuleysi eru:

i) Nýsköpun, framtíðarsýn og samstarf

ii) Vaxtarsamningur Reykjavíkur og nágrennis

iii) Viðhald og verklegar framkvæmdir

iv) Grænn vöxtur

v) Evrópska leiðin í fjármögnun á endurnýjun hverfa og fjárfestingu í innviðum

Dæmi um stefnumál Samfylkingarinnar í atvinnumálum

Meðal stefnumála sem sett eru fram í atvinnustefnunni má nefna:

  • Tvöfalda viðhald á fasteignum borgarinnar árin 2011-2012 með því að flýta brýnum viðhaldsverkefnum sem annars hefðu komið til framkvæmda 2013-2015. Þannig skapast störf þegar mest þarf á þeim að halda.
  • Setja fram heildstæða áætlun fyrir endurnýjun eldri hverfa að evrópskri fyrirmynd. Í stað þess að hverfin drabbist niður í kreppunni verði efnt til tímabærs viðhalds og endunýjunar á húsum og opinberum byggingum, auk endurnýjunnar borgarumhverfis og útisvæða. Byrjað verði í Breiðholti.
  • Höfuðborgarstofa, viðburða- og markaðsskrifstofa Reykjavíkurborgar í ferðaþjónustu verði opnuð fyrir aðkomu, fjármagni og nánara samstarfi við ferðaþjónustufyrirtæki í Reykjavík. Sérstaklega verði kannaður grundvöllur til að fjölga viðburðum sem styðja við markaðssetningu Reykjavíkur gagnvart ferðamönnum utan háannatíma.
  • Kanna möguleika á eflingu alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar og aðkomu Reykjavíkurborgar að samstarfi um rekstur kvikmyndahúss í miðborginni sem myndi helga sig sögu og sýningum á íslenskum kvikmyndum. Kanna fýsileika og sóknarfæri fyrir úthlutun lóðar fyrir alhliða kvikmyndaver í borgarlandinu.
  • Styðja við nýsköpunarsetur, sprota-hótel og/eða listasmiðjur. Í því skyni verði kortlagt hvaða tækifæri geti falist í auðu og óseldu húsnæði víðs vegar um borgina, umfang þess og staðsetningu. Þá verði útfærðar leiðir til að tryggja notkun á auðu húsnæði og laða að smærri fyrirtæki inn í hverfi borgarinnar.
  • Einfalda leyfisveitingar og umsóknarferli fyrir þá sem vilja stofna til reksturs í Reykjavíkurborg. Þeim standi jafnframt til boða leiðsögn og aðstoð við öflun nauðsynlegra leyfa til reksturs sér að kostnaðarlausu.
Flokkað undir Pistlar.