Leiðara Morgunblaðsins svarað – vinnum okkur út úr kreppunni

Kreppuráð Davíðs og Hönnu Birnu gagnast ekki

Morgunblaðið fer mikinn í leiðara dagsins gegn nýjum tillögum Samfylkingarinnar í Reykjavík í atvinnumálum. Ljóst er að þær geta orðið eitt helsta hitamálið í komandi borgarstjórnarkosningum.

Samfylkingin samþykkti á Reykjavíkurþingi sínu á laugardaginn ítarlegar tillögur í atvinnumálum þar sem markið er sett á að í víðræku samstarfi verði tryggður 3,5% meðalhagvöxtur í borginnni á næsta kjörtímabili. Um þetta fjalla tillögur að vaxtarsamningi fyrir Reykjavík, nýsköpun, framtíðarsýn og samstarf.

Viðhaldsverkefni og verklegar framkvæmdir

Mest fyrir brjóstið á Morgunblaðinu fara þó tillögur um að taka tímabundin lán til að ráðast í viðhaldsverkefni og verklegar framkvæmdir. Þetta er skynsamlegt til að draga úr atvinnuleysi, nýta hagstæð verð á byggingamarkaði og þá ívilnun Alþingis að endurgreiða virðisauka á viðhaldsvinnu.

Mestu skiptir þó að árlegur kostnaður Reykjavíkurborgar við hvert prósent í atvinnuleysi kostar borgarsjóð einn milljarð króna, í tekjutapi og auknum velferðarútgjöldum. Þar ofaná bætast afleiðingar atvinnuleysis fyrir fjölskyldur og börn atvinnulausra. Samfylkingin mun aldrei sætta sig við atvinnuleysi í borginni.

Á að bíða af sér kreppuna – eða gera eitthvað?

Ekki þarf að koma á óvart að ritstjóri Morgunblaðsins taki sér stöðu með Hönnu Birnu og Sjálfstæðisflokknum í borginni. Þau ætla -í sönnum frjálshyggjuanda – að reyna að bíða af sér kreppuna, aðgerðarlaus í atvinnumálum. Í þriggja ára áætlun um fjármál og rekstur 2011-2014 sem kynnt var á dögunum boðaði meirihlutinn í borginni 70% niðurskurð í framkvæmdum og áframhaldandi 50% niðurskurð í eðlilegu viðhaldi. Framtíðarsýn meirihlutans birtist m.a. í því að gert er ráð fyrir 11% atvinnuleysi allt til ársins 2014 með tilheyrandi kostnaði fyrir borgarsjóð. Þetta gagnrýndi Samfylkingin harðlega í borgarstjórn og leggur nú fram tillögur og nýja sýn á atvinnumál og aðgerðir gegn atvinnuleysi. Með framkvæmd þeirra kemst Reykjavík bæði fyrr og sterkari út úr kreppunni.

Flokkað undir Pistlar.