Alvarleg staða í ferðaþjónustu í Reykjavík

Samfylkingin óskaði eftir því að alvarleg staða í ferðaþjónustu í Reykjavík yrði sett á dagskrá borgarráðs sem fram fór í gær. Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri Menningar- og ferðamálasviðs sem jafnframt er formaður ferðamálaráðs gerði borgarráði grein fyrir viðbrögðum við eldgosinu í Eyjafjallajökli á vettvangi iðnaðarráðuneytisins og Ferðamálastofu. Þetta starf hefur verið unnið í náinni samvinnu við fyrirtæki í ferðaþjónustu.

Staðan er alvarleg. Fram kom að nýting hótela í Reykjavík er niður í helmingur af því sem hann var á sama tíma í fyrra. Rekstraraðilar í miðborg Reykjavíkur hafa boðað til neyðarfundar vegna ástandsins og ráðstefnur og komur hópa hafa fallið niður.

Ríkisstjórnin samþykkti á þriðjudaginn að verja 350 milljónum til viðbragðsáætlunar vegna þessarar stöðu. Áskilið var að ferðaþjónustufyrirtæki og sveitarfélög kæmu með framlög á móti.

Á fundi sínum sameinaðist borgarráð um tillögu um að verja 100 milljónum króna í markaðsátak í ferðaþjónustu. Það er mikið fagnaðarefni og í góðu samræmi við stefnu Samfylkingarinnar sem hefur þrýst á um aukna áherslu Reykjavíkur á atvinnu- og ferðamál, allt frá hruni.

Reykjavík á gríðarlega mikið undir því að þetta markaðsátak takist vel og sú mikla umfjöllun sem eldgosið hefur skapað verði nýtt til að koma skilaboðum um að ferðamenn séu engu síður öryggir á Íslandi – og til nýrrar sóknar.

 Þessu framlagi er því mjög mikilvægt að fylgt verði eftir með markvissri samvinnu Reykjavíkurborgar, ferðaþjónustunnar og ríkisstjórnarinnar, líkt og gerðar eru tillögur um í nýrri atvinnustefnu Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningar.

Flokkað undir Pistlar.