Skóla- og frístundastefna

Bjartari framtíð fyrir öll börn

Samfylkingin vill gera einkunnarorð þjóðfundar um menntamál að leiðarljósi reykvískra skóla: ,,Virðing, gleði og sköpun“. Grunnstef jafnaðarstefnunnar segir að skólar eigi að vera fyrir öll börn, óháð atgervi og efnahag. Góður skóli er sá sem ræktar styrkleika hvers barns svo það megi njóta sín til fulls. Frístundastarf, menningarfræðsla og íþróttir eru mikilvægur hluti af námi barna, þroskar þau og eflir. Við þröngan fjárhag borgarinnar  verður að forgangsraða til barna og ungmenna. Þannig vill Samfylkingin forgangsraða.

Sterkari skóli, innihaldsríkur skóladagur og samstarf sem flestra. Stefna Samfylkingarinnar er:

að stórauka samstarf allra þeirra sem koma að menntun, umönnun og uppeldi barna og ungmenna. Færa skal þjónustu út í hverfin, til barnanna og foreldranna.

að stytta vinnudag barna með samþættingu frístunda- og skólastarfs og stuðla þannig að fleiri samverustundum fjölskyldna.

að minnka skutlið með ,,frístundastrætó“ í öllum hverfum.

að íbúar á hverjum stað hafi áhrif á þróun samstarfs frístundaheimila og skóla.

að listnám verði í boði á skólatíma og í skólahúsnæði og leitað allra leiða til að sem flest börn geti notið listkennslu.

að byggja upp öfluga skólaráðgjöf í hverfunum, sem næst börnunum.

Gagnrýnin hugsun skapar sterkara samfélag. Stefna Samfylkingarinnar er:

að auka vægi siðfræði, heimspeki, tjáningar og samvinnu í námi barna í leik- og grunnskólum sem og frístundaheimilum.

að menntastefna landsins speglist í reykvískum leik- og grunnskólum: læsi í víðum skilningi þess orðs, mannréttindi og lýðræði, jafnrétti, menntun til sjálfbærni og skapandi hugsun.

að allt starf með börnum og unglingum í Reykjavík taki mið af mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar.

Aðgengi barna og unglinga að menningu og listsköpun. Stefna Samfylkingarinnar er:

að leik- og grunnskólar og frístundaheimili móti sér menningarstefnu og geri áætlun um samstarf við listamenn og menningarstofnanir.

að skólar geti keppt um ,,menningarfána“, samanber Grænfána í umhverfismennt. Skólar fengju þá viðurkenningu sem skara fram úr í menningar- og listfræðslu og eru í virku samstarfi við listamenn og menningarstofnanir. Fánum gæti fjölgað eftir áherslum í skólasamfélaginu hverju sinni (Tæknifáninn, Heilsufáninn).

Ódýrari frístundir og jafnt aðgengi. Stefna Samfylkingarinnar er:

að forvarnar, frístunda- og félagsstarf séu hluti af menntun barna og unglinga.

að allir sem vilja geti stundað íþróttir ánægjunnar og heilsunnar vegna og að áfram verði stutt við afreksíþróttir.

að fara í viðræður við íþróttafélög, æskulýðsfélög og listaskóla um að skipulagt frístundastarf barna og unglinga verði ódýrara og aðgengilegra.

að öllum börnum bjóðist áfram hollar og ódýrar skólamáltíðir.

að auka samráð við börn og ungmenni um hvað eina sem lýtur að þeirra daglega lífi, frístundaframboð, námsaðferðir og mótun skólanámskrár.

leita allra leiða til að fjármagn til íslenskukennslu barna af erlendum uppruna nýtist sem best og í þágu þeirra barna sem mest þurfa á henni að halda. Tryggja verður að fjármagn til íslenskukennslu sé nægilegt til að hún nái markmiðum sínum.

að sá möguleiki verði fyrir hendi að hægt verði að auka verðgildi frístundakortsins vegna barna sem þurfa sérstakan stuðning. Einnig að aðstandendur barna geti aukið verðgildi frístundakortsins með framlögum.

að við uppbyggingu íþróttaaðstöðu verði einkum horft til þeirra hverfa þar sem lítil aðstaða er í boði, t.d. Grafarholts, Norðlingaholts og Úlfarsárdals.

Samstarf heimila og skóla. Við eigum börnin saman. Stefna Samfylkingarinnar er:

að leiða róttæka hugarfarsbreytingu um að skólinn og samfélagið séu eitt, og að þátttaka allra foreldra í skólastarfi verði raunverulegt hreyfiafl. Fyrir foreldra af erlendum uppruna er túlkaþjónusta mikilvæg svo þátttaka þeirra sé möguleg.

að foreldrum verði gert kleift að láta skoðun sína í ljós á skóla barna sinna með árlegum rafrænum skoðanakönnunum fyrir hvern skóla.

Faglegt starf og samstarf við fræðsluaðila og stofnanir. Stefna Samfylkingarinnar er:

að fara í samstarf innan borgarinnar um kennara- og skólastjóraskipti til að stuðla að útbreiðslu þekkingar, meira samstarfi og starfsþróun.  Skólastjórar verði ráðnir til ákveðins árafjölda í senn en heimilt verði að endurnýja samninga að þeim tíma liðnum.

að styðja við nýbreytni- og þróunarstarf í leik- og grunnskólum og í frístundastarfi.

að styrkja fræðsluhlutverk húsdýragarðsins og leita leiða til að Náttúruskólinn mæti sívaxandi eftirspurn. Hvetja skal til þess að stofnanir borgar og ríkis þrói sambærilegar kynningar- og fræðsludeildir og Rafheimar Orkuveitu Reykjavíkur.

Unga fólkið, brotthvarf og atvinnuleysi. Stefna Samfylkingarinnar er:

að taka upp viðræður við Mennta- og menningarmálaráðuneytið um að Reykjavíkurborg reki tilraunaskóla fyrir 13-18 ára nemendur.

að rjúfa einangrun og óvirkni ungra atvinnuleitenda með samstarfi ríkis og borgar, stéttarfélaga, símenntunarmiðstöðva, ÍTR, grunn- og framhaldsskóla.

að náms- og starfsráðgjöf í grunnskólum verði efld eins og kostur er.

að borgin tryggi sumarstörf eða tómstundastarf fyrir ungmenni yfir sumartímann eftir föngum. Sérstaklega þarf að beina sjónum að 17 ára gömlum Reykvíkingum. Mikilvægt er að virkja frumkvæði ungmenna í því samhengi og mætti horfa til starfsemi Austurbæjarbíós sumarið 2009 í því samhengi.

Flokkað undir Málefni.