Umhverfisstefna

Umhverfismál krefjast samvinnu

Umhverfismál snúast bæði um réttindi og skyldur. Rétt okkar til að búa í heilbrigðu umhverfi og njóta þeirra lífsgæða sem nútíminn hefur upp á að bjóða en einnig þær skyldur okkar að ganga vel um umhverfi okkar sem við höfum fengið að láni og skila því í jafn góðu eða betra ástandi til næstu kynslóðar. Umhverfismál krefjast samvinnu, ekki bara yfir hreppamörk heldur yfir höf og álfur.

Reykjavíkurborg hefur möguleika á að vera í hópi grænustu höfuðborga heims en til þess þarf samstillt átak margra aðila. Samfylkingin í Reykjavík ætlar að:

skapa betri borgarbrag og draga úr þörf fyrir sífellt stærri og dýrari umferðarmannvirki með betra borgarskipulagi, betri almenningssamgöngum og bættri aðstöðu fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.

að orkukerfi samgangna verði endurhugsað til að skapa sem mestan heildrænan ávinning fyrir samfélag og umhverfi.

setja skilgreind og tímasett markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda í Reykjavík.

setja sér markmið um að innan áratugar verði annað hvert ökutæki í borginni knúið visthæfum innlendum orkugjöfum. Til að ná þessu markmiði verði efnt til samstarfs við framkvæmda- og löggjafavaldið, nágrannasveitarfélög og áhugasömum aðilum, innlendum sem erlendum, boðið samstarf um að ná settu marki.

fara í markvissar aðgerðir til að draga úr umferðarhættu, svifryks- og hávaðamengun í borginni.

gera strætó að raunverulegum valkosti við einkabílinn en til þess þarf að auka tíðni á álagstímum, tryggja að strætó gangi alla daga ársins og að leiðarkerfið nýtist börnum til að komast til og frá frístundum.

að notendaráð starfi með virkum hætti og leiðbeini stjórn Strætó Bs. um þjónustu. Sérstaklega skal horft til þess að Reykjavíkurráð ungmenna geti haft áhrif á leiðakerfi strætó.

bæta flæði hjólandi umferðar innan borgarinnar og hvetja fyrirtæki í borginni til að bæta aðstöðu fyrir hjólreiðafólk á vinnustað og að láta það njóta sömu hlunninda og þeir sem mæta á bíl, í anda hugmyndafræði um jafnræði samgöngumáta.

gera borgarbúum auðveldara að flokka sorp og koma því til skila. Reykjavíkurborg á að tryggja gæði sorphirðunnar en nýta sér þá samkeppni sem fyrir hendi er um frágang og nýtingu á þeim verðmætum sem vel flokkað sorp skilar.

gera heildstæða úttekt á grænum svæðum borgarinnar og marka þeim vernd á grunni hennar. Of lengi hefur viðgengist að kroppað sé úr þessum svæðum til mannvirkjagerðar og tími til kominn að ákveða framtíð þeirra út frá gildi þeirra sem útivistarsvæða fyrir almenning í stað þess að líta á þau sem einskismannsland.

auka áherslu á útikennslu og náttúruskóla fyrir börn og tryggja að öll skólahverfi eigi möguleika á nálægð við grænt náttúrusvæði með aðstöðu fyrir slíka fræðslu.

endurhanna opin leiksvæði, græna reiti og vannýtta rólóvelli víða um borgina þannig að þar verði eitthvað spennandi við að vera fyrir alla fjölskylduna.

gera samkomulag við öll sveitarfélög sem land eiga að náttúrusvæðum á Reykjanesskaganum um vernd og aðra nýtingu þessara svæða t.d. í anda hugmynda um eldfjallagarð og fjölbreytt útivistarsvæði. Ljóst er að gildi þessara svæða fyrir útivist og ferðamennsku er þegar mikið og á aðeins eftir að aukast á næstu áratugum. Mikill skaði væri að fórna slíkum verðmætum fyrir þrönga skammtímahagsmuni.

Flokkað undir Málefni.