Mannréttinda, jafnréttis- og menningarstefna

Borg fjölbreytileikans

Í miklu atvinnuleysi og efnahagsþrengingum eykst hættan á félagslegri mismunun. Innflytjendur eiga á hættu að vera á jaðri samfélagsins, fólk með fötlun á undir högg að sækja á vinnumarkaði og huga ber að ólíkri stöðu kynjanna í þróun atvinnuleysis. Stéttskipting birtist okkur í gegnum menningar-, íþrótta- og frístundaþátttöku barna og unglinga. Samfylkingin vill jafnt aðgengi allra að menningu og þjónustu borgarinnar.

Forysta borgarinnar í mannréttinda- og menningarmálum verður að vera ótvíræð. Í Reykjavík er fjölbreytileikinn mestur og atvinnuleysi mikið. Samfylkingin telur að mannréttindi, menning og jafnrétti séu samþætt allri tilveru borgarbúa og allri starfsemi borgarinnar; frá borgarskipulagi til skólastarfs. Mannréttindastefna borgarinnar á að vera leiðarljós í allri þjónustu borgarinnar.

Reykjavík er fjölmenningarsamfélag

Samfylkingin ætlar sér að marka skýra stefnu í þjónustu og ráðgjöf við innflytjendur.

Samfylkingin ætlar að:

endurskoða þjónustu- og ráðgjafarhlutverk borgarinnar í samráði við ríkið og önnur sveitarfélög.

stuðla að aukinni þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna í frístundastarfi í samstarfi við íþróttafélög, skólahljómsveitir og listaskóla.

efla móðurmálskennslu barna af erlendum uppruna í samstarfi við grasrótarsamtök.

leita allra leiða til að fjármagn til íslenskukennslu barna af erlendum uppruna nýtist sem best og í þágu þeirra barna sem mest þurfa á henni að halda. Tryggja verður að fjármagn til íslenskukennslu sé nægilegt til að hún nái markmiðum sínum.

styðja við félög og hagsmunasamtök útlendinga og fela þeim ákveðið hlutverk í stefnumótun borgarinnar í málefnum innflytjenda.

Jafnrétti í verki

Reykjavíkurborg er stærsti vinnustaður landsins.

Samfylkingin ætlar að:

kanna árlega þróun kynbundins launamunar og bregðast við með áætlun sem hefur það að markmiði að honum verði útrýmt að fullu.

marka stefnu um jafnréttisfræðslu. Skólar verða að mæta þörfum bæði stráka og stelpna.

móta aðgerðaráætlun gegn ofbeldi. Tryggja að allt starfsfólk borgarinnar bregðist markvisst við þegar grunur leikur á um ofbeldi.

Mannréttindi og þjónusta sem næst fólki

Reykjavíkurborg tekur við málefnum fatlaðra frá árinu 2011 og málefnum aldraðra frá árinu 2012.

Samfylkingin ætlar að:

tryggja að þjónustan verði þróuð og unnin í samráði við notendur og starfsfólk.

styrkja þjónustumiðstöðvar í hverfum borgarinnar m.t.t. málefna fatlaðra og aldraðra.

móta stefnu um félagsstarf og aðra þjónustu við eldri borgara með það að markmiði að eldri borgarar hafi sjálfir um það að segja hvernig þjónustan er.

Menning fyrir alla

Menning og listir í Reykjavík eru mikilvægar fyrir sjálfsmynd borgarbúa, mannlífið, menntun barna og Reykjavík sem ferðamannastað. Menningarlíf á að einkennast af fjölbreytni og virkri þátttöku allra á öllum aldri. Fjölmenning er dýrmætur þáttur í menningu borgarinnar. Ekki skal einblína á efnahagslegan ávinning af menningarstarfsemi, menningin er í sjálfu sér bæði auður og uppspretta. Menningarstefna borgarinnar á að ná til allra hverfa og miða að samstarfi ólíkra aðila. Börn og unglingar hafa rétt á því að komast í kynni við menningu og listir. Starfsemi sjálfstætt starfandi listahópa er mikilvæg borgarmenningunni. Fjölmenning er dýrmætur þáttur í menningu borgarinnar.

Samfylkingin ætlar að:

stuðla að því að styrkir til menningarmála séu veittir með hliðsjón af nýsamþykktri menningarstefnu borgarinnar.

setja markmið um styrkveitingar fyrir hvert ár.

móta stefnu um framtíðarhlutverk Hörpunnar sem tónlistarhús fyrir alla.

stofna til ,,Menningarfána“. Skólar keppi að því markmiði að uppfylla skilyrði um menningarstarf, listsköpun, samstarf við listamenn og áherslu á fjölmenningu.

Flokkað undir Málefni.