Þorpin í borginni

Samfylkingin vill dreifa valdi og verkefnum og efla sjálfstæði hverfanna í þeim tilgangi að auka íbúalýðræði og bæta þjónustu borgarinnar við íbúa hennar. Framundan er tilfærsla verkefna frá ríki til sveitarfélaga, málefni fatlaðra og málefni aldraðra. Samfylkingin fagnar þeim breytingum og sér tækifæri til markvissari og betri þjónustu við íbúa. Þekkingin á þörfum íbúanna býr ekki bara á sviðum borgarinnar, hún leysist úr læðingi á heimaslóð þar sem börn breytast í krakka, svo í unglinga og loks í fullorðið fólk. Árangursríkasta leiðin til að þjónusta borgarbúa er að sinna þeim úti í hverfunum, með samanlögðum kröftum þess starfsfólks sem þekkir best til þarfa á hverjum stað. Félagsauður hverfanna og samstarf ólíkra aðila sem sinna borgarbúum frá vöggu til grafar eru verðmæti sem borgaryfirvöld eiga að leggja rækt við.

Samfylkingin ætlar að:

Styðja við starf íbúasamtaka og efla hverfisráð sem umsagnar- og samráðsaðila í öllu sem lýtur að málefnum hverfisins. Fundir hverfisráða verði öllum opnum.

Fella múra milli stofnanna og ná fram hagræðingu og markvissari þjónustu með flutningi verkefna til þjónustumiðstöðva.

Koma á frístundastrætó í hverju hverfi til að minnka skutl og auka strætónotkun barna og ungmenna.

Endurskoða fyrirkomulag sérfræðiþjónustu við börn í samstarfi við ríkið. Börnin eiga að vera í brennidepli, ekki þær allt of mörgu stofnanir sem koma að velferð þeirra.

Styðja við hverfablöð sem upplýsinga- og samskiptatorg í öllum hverfum.

Opna leiðir fyrir íbúa sem vilja hafa áhrif á umhverfi sitt, s.s. leiksvæði, taka opin svæði í fóstur, skipuleggja hlaupabrautir, hjólaleiðir, matjurtagarða og aðstöðu til frístunda fyrir unga sem eldri.

Mæta þörfum 16-24 ára ungmenna í hverju hverfi með samstarfi grunnskóla, framhaldsskóla, ÍTR og vinnumálastofnunar.

Tryggja þarf sýnilega löggæslu í hverfunum og samstarf lögreglu, barnaverndar og skóla.

Stuðla að því að öll hverfi geti boðið upp á fjölbreytt úrval íþrótta og tómstunda. Hér má virkja félagsauð hverfanna með nýjum leiðum.

Stuðla að jöfnu aðgengi allra barna að menningarstarfi óháð búsetu. Allir skólar móti menningarstefnu með aðkomu listafólks.

Fara í sérstakt átak um endurnýjun eldri hverfa og verslunarkjarna. Byrjað verði í Fellahverfi.

Stuðla að því að núverandi félagsmiðstöðvar fyrir eldri borgara verði einnig nýttar fyrir atvinnulausa, foreldramorgna og ýmis félagasamtök í hverfinu.

Skilgreina grunnskóla sem almannatorg og að þeir nýtist öllum aldurshópum í hverfunum.

Efla þjónustumiðstöðvar í því hlutverki að sinna ráðgjöf við innflytjendur í hverju hverfi.

Efla foreldrarölt og nágrannavörslu í samráði við íbúa í hverju hverfi.

Efla samstarf við háskóla um afmörkuð uppbyggingarverkefni í hverfum.

Flokkað undir Málefni.