Örugg atvinna og aðgerðir fyrir börn og fjölskyldur

Atvinnumál eru forgangsmál Samfylkingarinnar í borgarstjórnarkosningunum. Enda hafa aldrei fleiri verið atvinnulausir í Reykjavík. Það gengur ekki að raðir lengist við hjálparstofnanir og ójöfnuður aukist. Það verður að koma vinnufúsum höndum til verka.

Það þarf nýja hugsun í Ráðhúsið. Borgin verður að vakna, taka forystu og beita öllu afli til að skapa störf og fjölga tækifærum. Kjarninn í hinni nýju hugsun er að Reykjavíkurborg þarf að beita sér og kveikja von til að koma Íslandi út úr kreppunni.

Borgin býr yfir sterkum innviðum og miklum mannauði en hlutverk hennar þarf að endurhugsa, eins og svo margt annað, eftir hrun. Það hefur Samfylkingin gert og kynnir aðgerðir á öllum lykilsviðum með megináherslu á atvinnumál, jöfn tækifæri og öruggt umhverfi barna.

Samfylkingin vill binda endi á aðgerðaleysið og hrinda markvissum og mikilvægum aðgerðum í framkvæmd í atvinnumálunum:

  1. Tvöföldun viðhalds og auknar verklegar framkvæmdir
  2. Endurnýjun í eldri hverfum og efling innviða
  3. Samstillt vaxtarátak á öllu höfuðborgarsvæðinu
  4. Átak í nýsköpun og nýtingu á tómu húsnæði
  5. Vaxtarátak í græna geiranum

Samfylkingin vill aukið samstarf á höfuðborgarsvæðinu sem er eitt búsetu- og atvinnusvæði til að tryggja heildaryfirsýn og koma í veg fyrir kostnaðarsamt lóðakapphlaup og sóun á fjármunum útsvarsgreiðenda. Vítin eru til að varast þau.

Samfylkingin vill tryggja öllum börnum örugga þjónustu, standa vörð um grunn- og leikskóla og tryggja ódýrari frístundir fyrir öll börn, óháð efnahag. Að öðrum kosti er veruleg hætta á að hópar fólks, heilu kynslóðirnar beri varanlegan skaða af efnahagskreppunni.

Samfylkingin hafnar öllum hugmyndum um einkavæðingu Orkuveitunnar og leggur áherslu á að unnið verði á skuldavanda fyrirtækisins án tafar en skuldirnar hafa fjórfaldast á kjörtímabilinu sem er að ljúka.

Borgarmálin hafa verið í kreppu allt kjörtímabilið. Það er lykilatriði að endurvekja traust á borgarstjórn. Það verður aðeins gert með markvissum umbótum.

Auk ofangreindra áhersluatriða leggur Samfylkingin fram heildstæða stefnuskrá í öllum málaflokkum sem byggir á ítarlegri stefnumótun og samráði við á annað þúsund Reykjavíkinga og Samfylkingarfólk í vetur. Hægt er nálgast alla málaflokka á heimasíðunni undir Málefni.

Flokkað undir Málefni, Pistlar.