Hvernig tryggjum við öllum öruggt húsnæði á viðráðanlegu verði?
Borgarráð óskar eftir umsögnum um drög að nýrri húsnæðisstefnu Reykjavíkurborgar. Drög hennar hafa verið sett fram af þverpólitískum starfshópi undir forystu Bjarkar Vilhelmsdóttur borgarfulltrúa. Töluverð tíðindi felast í stefnunni og verður spennandi að sjá hvaða viðbrögð hún fær en verkefnið er eitt það brýnasta sem hrunið skyldi við sig: að skapa húsnæðismarkað sambærilegan við það sem við þekkjum á öðrum Norðurlöndum.
Meginstefnumið fyrrnefndra draga felast í því að tryggja öllum borgarbúum öruggt húsnæði á viðráðanlegu verði hvort sem þeir þurfa stuðning vegna húsnæðismála eða ekki. Stefnt er að því að hafa fjölbreytt framboð á íbúðum í öllum hverfum borgarinnar. Beinar tillögur eru settar fram að þessu markmiði. Hér eru nokkrar þær helstu:
Leiguhúsnæði allt að fjórðungur íbúða í nýjum hverfum
Kveðið er á um að við skipulag íbúðahverfa skuli tryggt að fimmtungur íbúða a.m.k. miðist við þarfir tekjuminni hópa. Í dag er hlutfall leiguíbúða talið vera vel undir 20% af öllu íbúðarhúsnæði í Reykjavík, en stefna á að því að leigu- og eða búseturéttaríbúðir verði um fjórðungur af öllu íbúðarhúsnæði í borginni. Starfshópurinn leggur til að í nýjum hverfum miðsvæðis, s.s. í Vatnsmýri, við Mýrargötu, Hlemm og á Ártúnshöfða verði gert ráð fyrir að leiguhúsnæði verði a.m.k. fjórðungur alls húsnæðis. Með fjölbreyttu framboði á húsnæði hvað varðar stærð, gerð og eignarform megi betur tryggja félagslegan fjölbreytileika.
Borgin kjölfesta á stórum leigumarkaði
Til að stækka leigumarkaðinn er lagt til að skoðað verði hvort styðja megi við húsnæðissamvinnufélög og félagssamtök með lóðaúthlutunum svo þau geti boðið ungu fólki og tekjulágu upp á leigu- og búseturéttaríbúðir á viðráðanlegum kjörum. Jafnframt að kannaðir verði kostir þess og gallar að Reykjavíkurborg verði kjölfesta í langtíma leigufélögum til að byggja upp varanlegan og öruggan leigumarkað á höfuðborgarsvæðinu. Framlag borgarinnar gæti falist í lóðum, fasteignum eða beinum framlögum.
Samræmdar húsaleigubætur
Í tillögum að nýrri húsnæðisstefnu borgarinnar er kveðið á um sérstakan persónubundinn stuðning vegna húsnæðis. Reykjavíkurborg skuli hafa forystu um að samræma húsaleigubætur í samvinnu við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu með það að markmiði að létta greiðslubyrði tekjulágs fólks sem jafnframt á í félagslegum vanda. Stuðningur verði óháður því hver á eða rekur húsnæðið, hann miðist við aðstæður og greiðslubyrði sérhvers leigjanda.
Gert er ráð fyrir að Félagsbústaðir reki áfram húsnæði fyrir þá sem ekki geta leigt á almennum markaði, en lagt til að gerð verði úttekt á rekstrarfyrirkomulaginu og kannað hvort Félagsbústaðir geti sinnt félagslegu húsnæði á öllu höfuðborgarsvæðinu. Þá er lagt til að gert verði átak í aðgengismálum þannig að sérstakir hópar, s.s. aldraðir og öryrkjar, geti valið sér búsetu óháð aldri og líkamlegu eða andlegu ástandi.
Tillögur að húsnæðisstefnu í kynningu
Tillögur að nýrri húsnæðisstefnu verða sendar til umsagnar hjá hinum ýmsu hagsmunasamtökum, s.s. ASÍ, BSRB, Félagi eldri borgara og Félagsstofnun stúdenta. Jafnframt verður opnuð ábendingargátt á vef Reykjavíkurborgar husnaedisstefna@reykjavik.is og eru borgarbúar hvattir til að kynna sér stefnuna og koma með ábendingar.
Ég hvet alla til að láta sig málið varða.
Flokkað undir Pistlar.