Nýr Landsspítali
Í kreppunni miklu byggðu Íslendingar Landsspítalann af ótrúlegri framsýni og stórhug. Það var gert að frumkvæði íslenskra kvenna (hugsanlega vildu einhverjir frekar virkjanir og vegi). Bygging Landsspítals nú snýst um ekki aðeins um sjúklinga og starfsfólk heldur ekki síður þekkingarsamfélagið, heilbrigði, lífgæði og hagvöxt – en líka gott borgarumhverfi og gott borgarskipulag. Stóra spurningin er hvort við getum rætt byggingu spítalans málefnalega frá öllum þeim fjölmörgu hliðum sem þörf er á, og í anda aldamótakynslóðarinnar sem lagði grunn að íslensku samfélagi við kröpp kjör. Mig hryllir við því að umræðan um Landsspítalann detti ofaní stór-orð-og-upphrópanir-skotgrafirnar sem því miður einkennir umræðu um mikilvæg samfélagsmál alltof gjarnan.
Flokkað undir Pistlar.