Spennandi kosningavika í Noregi og Danmörku
Í dag ganga Norðmenn til kosninga í öllum sveitarstjórnum. Ég er spenntastur fyrir Osló, eðlilega. Reykjavík á í miklum samskiptum við höfuðborgir Norðurlanda og ég á góða vini sem eru í eldlínunni fyrir Verkamannaflokkinn í Osló. Ég fylgist sérstaklega með Rune Gerhardsen sem er býður sig fram til að taka við af sem nk. forseti borgarstjórnar. Í aðdraganda kosninganna vék hann úr oddvitasæti fyrir Liebe Rieber-Mohn sem er borgarstjóraefni jafnaðarmanna. Kosningabaráttan hefur verið mjög sérstök, og í skugga atburðanna í Útey. Einhverjir spá dræmri þátttöku. Ég vona að þær spár rætist ekki – og að Verkamannaflokkurinn komist – loksins – aftur til valda í fæðingarborg minni.
Það er ekki síður spennandi að fylgjast með Helle Thorning og dönskum jafnaðarmönnum. Þar er kosið síðar í vikunni, eða 16. september. Rauða blokkin – einsog samstarf jafnaðarmanna og vinstri flokkanna er gjarnan kallað er yfir, en fylgið hefur verið að sveiflast, í hinni ofurstuttu þriggja vikna kosningabaráttu. Á lokasprettinum virðast jafnaðarmenn hafa vind í seglum. Það verður ekki bara spennandi að sjá Helle ná því markmiði að verða fyrsta konan sem verður forsætisráðherra í Danmörku. Nicolai Wammen varaformaður flokksins og borgarstjóri í Árósum er ekki síður í eldlínunni. Hann er nú í framboði til þings og verður að teljast öruggt ráðherraefni vinnist sigur.
Flokkað undir Pistlar.