Reykjavík: Nýtt og öflugt markaðssamstarf í ferðaþjónustu
Á síðasta fundi borgarráðs var samþykkt tillaga um að Reykjavíkurborg gerðist aðila að víðtæku samstarfi til að efla ferðamennsku haust-vetur og vor. Samstarfið er framhald Inspired by Iceland og er leitt af iðnaðarráðuneytinu og lykil-fyrirtækjum í greininni. Þessar áherslur eru í fullkomnu samræmi við nýja ferðamálastefnu borgarinnar og byggir að auki á nánu samstarfi og kostnaðarþátttöku hagsmunaaðila. Það er mjög að mínu skapi og tryggir hámarksárangur. Stefnt er að 300-500 mkr. árlegum framlögum í þetta sameiginlega átak en Reykjavíkurborg leggur fram 40 milljónir króna sem sinn hlut.
Tölur um aukningu ferðamanna þar sem hvert metið af öðru er slegið eru hvatning til að halda áfram á þessari braut. Líklega er engin atvinnugrein líklegri til að eiga stærri hlut við að skapa ný og góð framtíðarstörf næstu misserin. Jafnframt er mikilvægt að tryggja gæði og þróa framboð þjónustu og afþreyingar fyrir ferðamenn allt árið um kring. Þar gegna borgarhátíðir ekki minnstu máli, sérstaklega yfir vetrartímann. Ekki þarf að horfa marga daga fram í tímann til að muna eftir Airwaves í því sambandi, eða RIFF kvikmyndahátíðina, sem er nýafstaðinn. Bæði dæmin undirstrika að í flestum tilfellum er það sem er frábært fyrir ferðafólk, frábært fyrir íbúa um leið.
Eitt enn. Reykjavíkurborg hefur einnig nýverið staðið að eflingu og fjármögnun hlutafélags um fullkönnun þess að gera Þríhnjúkagíg (gífurlega stóran hraunhelli) aðgengilegan ferðafólki. Þetta náttúru-undur er í návígi við borgina og ótrúlega spennandi möguleiki til að gera jarðfræði landsins og leyndardóma eldfjallagarðsins á Reykjanesi aðgengilegan öllum.
Flokkað undir Pistlar.