Ný byggðastefna

Það taka margir undir þá skoðun að það sé engin byggðastefna á Íslandi. Mín skoðun er sú að hornsteinninn í alvöru byggðastefnu sé að efla sveitarfélög (fækka og stækka) og landshlutasamtök þeirra. Þar á að leggja línurnar og forgangsraða fjármunum í samgöngu, atvinnu- menningar-, menntamálum og öðrum lykilmálum út frá styrkleikum og veikleikum hvers svæðis um sig. Alþingi á að huga að heildarhag. Sveitarstjórnarmenn og heimafólk eiga að vera hinir sjálfsögðu fulltrúar sinna svæða í umræðu og ákvörðunum. Það þýðir að dreifa þarf raunverulegum völdum. Líklega verður valddreifingin stærsti bitinn að kyngja fyrir ráðuneytin og fjárveitingarvaldið. En línan hefur verið lögð í þessu efni í sóknaráætlun og Ísland 2020. Sóknaráætlanir landshluta eiga að vera lykilverkfæri til að innleiða þessa nýju hugsun og kristalla valddreifinguna. Þetta er róttæk stefnumörkun en löngu tímabær.

Flokkað undir Pistlar.