Krónan eða óstjórn?

Sjálfstæðisflokkurinn hefur stjórnað efnahagsmálum landsins með stuttum hléum áratugum saman. Nú stíga talsmenn flokksins fram og segja að sá óstöðugleiki (fínt orð yfir reglulegt hrun gjaldmiðilsins) sem iðulega hefur einkennt efnhagslífið hafi ekkert með krónuna að gera, heldur (ó)stjórn efnahagsmála. Jákvæðir myndu segja að þetta væri góð og tímabær sjálfsgagnrýni. Neikvæðir að þetta væri til marks um nauð-vörn í umræðu um nýjan gjaldmiðil. Strákurinn í Nýjum fötum keisarans myndi væntanlega spyrja hvort í ljósi þessa væri ekki rökrétt að flokkurinn bæðist afsökunar á þætti sínum í óstjórn efnahagsmála og varaði kjósendur við því að þar væri ekkert að breytast.

Flokkað undir Pistlar.