Viltu hafa áhrif og forgangsraða framkvæmdum í þínu hverfi? Gjörðu svo vel!

Vefurinn – betri hverfi – er kominn í loftið. Þar geta borgarbúar sett fram hugmyndir um smærri nýframkvæmdir og viðhaldsverkefni í sínu hverfi og aflað stuðnings við þær. Í upphafi næsta árs verður svo kosið á milli þeirra verkefna sem skorað hafa hæst, í beinni rafrænni kosningu borgarbúa.

Vefurinn Betri Reykjavík – og forverar hans, fékk á dögunum ein eftirsóttustu alþjóðlegu verðlaun á sviði rafræns íbúalýðræðis í heiminum. Það verður spennandi að fylgjast með viðbrögðunum þegar við tökum nú ný og stór og spennandi skref þar sem rafrænum kosningum er bætt við málsmeðferðina og aðkomu íbúa að ákvarðanatöku og forgangsröðun Reykjavíkiurborgar.

Íbúalýðræði 2.0

Og hér er slóðin:

www.betrireykjavik.is (undir Betri hverfi)

eða beint, hér:

http://www.betrireykjavik.is/about/choose_partner

Flokkað undir Pistlar.