Útilaug við Sundhöllina undirbúin

Borgarráð ákvað á fundi sínum í morgun að kanna leiðir til að byggja útilaug og aðstöðu fyrir heilsutengda ferðaþjónustu á auðri lóð við hlið Sundhallarinnar. Hugmyndin er ekki ný en auð lóð er við hlið Sundhallarinnar og hefur verið sýnt fram á að hægt er að koma fyrir útilaug og annarri starfsemi þar þannig að vel fari. Þessar hugmyndir verða nú kannaðar frekar ásamt hugsanlegum leiðum til að vinna verkefnið í samstarfi við fyrirtæki í heilsutengdri ferðaþjónustu þannig að kostnaði yrði deilt. Útilaugin yrði tengd núverandi Sundhöll og opin almenningi. Sundhöllin sjálf er friðuð að ytra og innra byrði og ekki er gert ráð fyrri breytingu þar á.
Læt samþykkt borgarráðs fylgja:

“Óskað er eftir heimild borgarráðs til að setja af stað undirbúningsvinnu í sameiginlegum starfshópi framvkæmda- og eignasviðs, skipulags- og byggingasviðs, menningar- og ferðamálasviðs, ÍTR og innkaupaskrifstofu vegna endurbóta og hugmynda um stækkun Sundhallarinnar. Undirbúningsvinna felst m.a. í forsögn að gerð deiliskipulags, greiningu hagsmunaaðila, frekari skilgreiningu verkefnisins, markmiðssetningu og tillögu um útboðsaðferð og rekstrarform. Lagt er til að framkvæmda- og eignasvið.

Greinargerð:

Ráðast þarf í endurbætur og lagfæringar á Sundhöllinni í Reykjavík innan ekki langs tíma. Vaknað hafa hugmyndir um að samhliða þeim framkvæmdum yrði ráðist í byggingu útisundlaugar og komið upp heilsutengdri starfsemi við Sundhöllina sem höfðað gæti til íbúa sem og ferðamanna. Nýframkvæmdir þessar, endurbætur á eldra húsi og mögulega rekstur væru boðnar út sem samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og einkaaðila.”

Tillagan var samþykkt einróma.

Flokkað undir Pistlar.