Örugg atvinna og aðgerðir fyrir börn og fjölskyldur
Samfylkingin í Reykjavík kynnti stefnuskrá sína fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor á opnum fundi í Kolaportinu í dag, sunnudaginn 16. maí. Það þarf nýja hugsun í Ráðhúsið. Borgin verður að vakna, taka forystu og beita öllu afli til að skapa störf og fjölga tækifærum. Kjarninn í hinni nýju hugsun er að Reykjavíkurborg þarf að beita sér og kveikja von til að koma Íslandi út úr kreppunni.
Þorpin í borginni
Samfylkingin vill dreifa valdi og verkefnum og efla sjálfstæði hverfanna í þeim tilgangi að auka íbúalýðræði og bæta þjónustu borgarinnar við íbúa hennar. Framundan er tilfærsla verkefna frá ríki til sveitarfélaga, málefni fatlaðra og málefni aldraðra. Samfylkingin fagnar þeim breytingum og sér tækifæri til markvissari og betri þjónustu við íbúa. Þekkingin á þörfum íbúanna býr [...]
Lýðræðis- og umbótastefna
Uppstokkun, stjórnfesta og ábyrg fjármálastjórn
Uppstokkun og endurmat
Eftir hrun bankanna og þau ótrúlegu vinnubrögð sem birst hafa borgarbúum á kjörtímabilinu þarf borgarstjórn að leggja áherslu á að endurheimta traust.
Undirstrika þarf gegnsæi og góða meðferð almannafjár í öllum rekstri Reykjavíkurborgar.
Forgangsraðað verði í þágu þjónustu við íbúa.
Stofnað verði embætti Umboðsmanns borgarbúa til að leiðbeina íbúum og veita þeim [...]
Mannréttinda, jafnréttis- og menningarstefna
Borg fjölbreytileikans
Í miklu atvinnuleysi og efnahagsþrengingum eykst hættan á félagslegri mismunun. Innflytjendur eiga á hættu að vera á jaðri samfélagsins, fólk með fötlun á undir högg að sækja á vinnumarkaði og huga ber að ólíkri stöðu kynjanna í þróun atvinnuleysis. Stéttskipting birtist okkur í gegnum menningar-, íþrótta- og frístundaþátttöku barna og unglinga. Samfylkingin vill jafnt [...]
Skipulags- og samgöngustefna
Gott borgarumhverfi skapar lífsgæði fyrir alla
Gott borgarumhverfi einkennist af félagslegu réttlæti, skemmtilegu götulífi, góðum samgöngum, skjólsælum torgum, fallegum húsaröðum og görðum; góðu vatni, heilnæmu lofti, góðu aðgengi að þjónustu og skjóli fyrir veðri og vindum.
Lélegt borgarumhverfi einkennist af skorti á þessu. Gott borgarumhverfi er eitt stærsta hagsmunamál borgarbúa. Gott borgarumhverfi gerir ekki upp á milli [...]
Umhverfisstefna
Umhverfismál krefjast samvinnu
Umhverfismál snúast bæði um réttindi og skyldur. Rétt okkar til að búa í heilbrigðu umhverfi og njóta þeirra lífsgæða sem nútíminn hefur upp á að bjóða en einnig þær skyldur okkar að ganga vel um umhverfi okkar sem við höfum fengið að láni og skila því í jafn góðu eða betra ástandi til [...]
Skóla- og frístundastefna
Bjartari framtíð fyrir öll börn
Samfylkingin vill gera einkunnarorð þjóðfundar um menntamál að leiðarljósi reykvískra skóla: ,,Virðing, gleði og sköpun“. Grunnstef jafnaðarstefnunnar segir að skólar eigi að vera fyrir öll börn, óháð atgervi og efnahag. Góður skóli er sá sem ræktar styrkleika hvers barns svo það megi njóta sín til fulls. Frístundastarf, menningarfræðsla og íþróttir eru [...]
Velferðarstefna
Eitt samfélag fyrir alla – velferð borgarbúa
Samfylkingin vill ýta undir virka þátttöku allra. Þátttaka er mannréttindi. Við tryggjum öllum tækifæri. Samfylkingin hafnar fátækt og félagslegri mismunum einstaklinga og hópa.
Ójöfnuður leiðir til sundrungar en jöfnuður skapar stöðugleika. Reykjavík á að verða borg sanngirni.
Þjónusta í hverfinu þínu
Velferðar- og sérfræðiþjónusta á að snúa jafnt að öllum, ungum sem [...]
Atvinnustefna
Atvinnustefna og aðgerðir gegn atvinnuleysi
Baráttan fyrir atvinnu er hornsteinn jafnaðarstefnunnar og forgangsmál við núverandi aðstæður. Öflugt og fjölbreytt atvinnulíf er alls staðar undirstaða velferðar og því lítur Samfylkingin á það sem eitt mikilvægasta hlutverk borgarinnar að efla og styrkja atvinnulífið í borginni. Upp á það hefur mikið skort síðustu ár.
Lykiláherslur Samfylkingarinnar í atvinnumálum og aðgerðum [...]
Bjartari framtíð fyrir börnin okkar – átakalínurnar skýrast í borginni (viðtal)
Sólveig Arnarsdóttir leikkona tók mig tali stuttu fyrir páska.
Fyrsta spurning, Dagur. Það er kosið til borgarstjórnar 29. maí. Er einhver þörf á að skipta um meirihluta?
Þú ætlar ekki að byrja neinum smáspurningum! En reyndar er frábært að þú skulir vinda þér svona beint í efnið því ég held að þetta sé einmitt spurningin sem Reykvíkingar [...]