Samstarfsyfirlýsing Besta flokksins og Samfylkingarinnar
Lýðræði og þátttaka
Fjölgað verði beinum atkvæðagreiðslum um mikilvæg mál og settur skýrari rammi um framkvæmd þeirra.
Samráð verði haft við íbúa og foreldra í skipulags-, umhverfis- og skólamálum, það gert markvissara og stutt við aðkomu þeirra að lykilákvörðunum.
Nefndum verði fækkað og hið pólitíska stjórnkerfi einfaldað. Sambærileg endurskoðun fari fram á stjórnsýslunni.
Borgarráð taki við verkefnum framkvæmda- og [...]
Atvinnumálin eru númer eitt, tvö og þrjú. Ef við komum atvinnunni ekki af stað, þá náum við ekki að tryggja öryggi og velferð
Nicolai Wammen er borgarstjóri Árósa þar sem búa álíka margir og á Íslandi öllu. Hann er vinsælasti stjórnmálamaður Danmerkur vegna árangurs síns í atvinnumálum, í verkefnum um grænan vöxt og í baráttunni við kreppuna. Margir Íslendingar þekkja Árósa, hafa búið þar, stundað nám og vita að undir stjórn Nicolai hefur borgarstjórnin þar náð markverðum árangri. [...]
Örugg atvinna og aðgerðir fyrir börn og fjölskyldur
Samfylkingin í Reykjavík kynnti stefnuskrá sína fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor á opnum fundi í Kolaportinu í dag, sunnudaginn 16. maí. Það þarf nýja hugsun í Ráðhúsið. Borgin verður að vakna, taka forystu og beita öllu afli til að skapa störf og fjölga tækifærum. Kjarninn í hinni nýju hugsun er að Reykjavíkurborg þarf að beita sér og kveikja von til að koma Íslandi út úr kreppunni.
Atvinnustefna
Atvinnustefna og aðgerðir gegn atvinnuleysi
Baráttan fyrir atvinnu er hornsteinn jafnaðarstefnunnar og forgangsmál við núverandi aðstæður. Öflugt og fjölbreytt atvinnulíf er alls staðar undirstaða velferðar og því lítur Samfylkingin á það sem eitt mikilvægasta hlutverk borgarinnar að efla og styrkja atvinnulífið í borginni. Upp á það hefur mikið skort síðustu ár.
Lykiláherslur Samfylkingarinnar í atvinnumálum og aðgerðum [...]
Atvinna, öryggi, von: Reykjavík þarf að taka forystu
Í borgarstjórnarkosningunum í vor stendur valið milli þess að bíða af sér kreppuna, líkt og Sjálfstæðisflokkurinn ætlar sér, eða beita afli borgarinnar til að vinna sig út úr henni eins hratt og kostur er, einsog hugmyndir Samfylkingarinnar ganga út á. Við teljum eindregið að Reykjavík eigi að taka sér forystuhlutverk á krepputímum. Sú forysta á [...]
Hjólreiðaáætlun fyrir höfuðborgarsvæðið
Borgarstjórn samþykkti á fundi sínum á þriðjudag sl. tillögu Samfylkingarinar um að Reykjavík hefði forystu um gerð heildstæðrar hjólreiðaáætlunar fyrir höfuðborgarsvæðið. Hún yrði unnin í samvinnu við önnur sveitarfélög og vegagerðina. Með áætluninni yrði stefnt að því að stórefla möguleika á notkun reiðhjóla á svæðinu með gerð hjólreiðastígakerfis um allt höfuðborgarsvæðið þar sem hjólreiðar eru [...]
Alvarleg staða í ferðaþjónustu í Reykjavík
Samfylkingin óskaði eftir því að alvarleg staða í ferðaþjónustu í Reykjavík yrði sett á dagskrá borgarráðs sem fram fór í gær. Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri Menningar- og ferðamálasviðs sem jafnframt er formaður ferðamálaráðs gerði borgarráði grein fyrir viðbrögðum við eldgosinu í Eyjafjallajökli á vettvangi iðnaðarráðuneytisins og Ferðamálastofu. Þetta starf hefur verið unnið í náinni samvinnu við fyrirtæki [...]
Hlutverk Reykjavíkur í atvinnumálum og aðgerðir gegn atvinnuleysi
Baráttan fyrir fullri atvinnu er hornsteinn jafnaðarstefnunnar og forgangsmál við núverandi aðstæður. Öflugt og fjölbreytt atvinnulíf er alls staðar undirstaða velferðar og því lítur Samfylkingin á það sem eitt mikilvægasta hlutverk borgarinnar að efla og styrkja atvinnulífið í borginni. Avinnuleysi er þjóðarböl og hvert prósentustig í atvinnuleysi kostar borgarsjóð milljarð króna á ári.
Alla síðustu öld [...]
Leiðara Morgunblaðsins svarað – vinnum okkur út úr kreppunni
Kreppuráð Davíðs og Hönnu Birnu gagnast ekki
Morgunblaðið fer mikinn í leiðara dagsins gegn nýjum tillögum Samfylkingarinnar í Reykjavík í atvinnumálum. Ljóst er að þær geta orðið eitt helsta hitamálið í komandi borgarstjórnarkosningum.
Samfylkingin samþykkti á Reykjavíkurþingi sínu á laugardaginn ítarlegar tillögur í atvinnumálum þar sem markið er sett á að í víðræku samstarfi verði tryggður 3,5% [...]
Lykiláherslur Samfylkingarinnar: Vinna – Skólar – Velferð
Samfylkingin samþykkti í gær kosningastefnuskrá vegna komandi borgarstjórnarkosninga á fjölmennu Reykjavíkurþingi sem haldið var í Breiðholti. Yfirskrift fundarins var Bjartari framtíð fyrir börnin okkar. Börn og málefni barna eru í forgrunni í allri stefnunni en megináhersla er lögð á þrennt: Vinnu, Skóla og Velferð.