Bjartari framtíð fyrir börnin okkar – átakalínurnar skýrast í borginni (viðtal)
Sólveig Arnarsdóttir leikkona tók mig tali stuttu fyrir páska.
Fyrsta spurning, Dagur. Það er kosið til borgarstjórnar 29. maí. Er einhver þörf á að skipta um meirihluta?
Þú ætlar ekki að byrja neinum smáspurningum! En reyndar er frábært að þú skulir vinda þér svona beint í efnið því ég held að þetta sé einmitt spurningin sem Reykvíkingar [...]
Borgin kaupir inn fyrir milljarða án útboðs
Á fundi borgarráðs í dag lagði Samfylkingin fram tillögu um að trúnaði yrði aflétt af skýrslu innri endurskoðunar um innkaupamál borgarinnar. Í greinargerð með henni sem er opinber kemur fram að keypt er inn hjá Reykjavíkurborg fyrir milljarða án útboðs og aðkomu innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar.
Skrifstofur í ráðhúsinu eru ekki á einu máli um hversu stór hluti [...]
Reykjavíkurráð ungmenna: Sumarstörf og forvarnir strax – en golfið má bíða
Unga fólkið í Reykjavík vill sumarstörf, forvarnir, fjármálakennslu, betri strætó, innihaldsríkari lífsleiknikennslu og sköpunarmiðstöð svo nokkur dæmi séu nefnd af líflegum og skemmtilegum fundi borgarstjórnar og Reykjavíkurráðs ungmenna sem haldinn var í dag. Þar fluttu fulltrúar Ungmennaráða borgarinnar tillögur sínar. Fulltrúi þeirra taldi hins vegar að stækkun á golfvelli mætti bíða.
Hanna Birna í kosningaham: 230 milljónir í golfvöll þvert ofan í niðurskurðinn!
Hanna Birna Kristjánsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn lagði í dag fram tillögu í borgarráði um að 230 milljónir verði settar í að bæta 9 holum við golfvöllinn á Korpúlfsstöðum. Málinu er augljóslega ætlað að afla vinsælda í aðdraganda borgarstjórnarkosninga enda eru all-nokkrir á biðlista eftir að komast í Golfklúbb Reykjavíkur. En hvar er forgangsröðunin? Á [...]
Opinn fundur á Kaffivagninum
Miklu máli skiptir að borgarfulltrúar séu aðgengilegir fyrir borgarbúa og í beinum tengslum við þá. Morgunfundurinn, eins og hverfafundir, eru tilvalinn vettvangur fyrir borgarbúa til að koma sínum málefnum og ábendingum á framfæri og fá svör við brennandi spurningum.
Reykjavík: Viljum við framkvæmdir til að vinna gegn atvinnuleysi?
Breytingartillaga Samfylkingarinnar við þriggja ára áætlun gerir ráð fyrir sömu upphæð til framkvæmda og sérstakri áherslu á meiriháttar viðhaldsverkefni á árunum 2011-2013 og á síðustu árum, alls að upphæð 5,3 milljarðar króna á ári í stað þess 70% niðurskurðar sem fyrirhugaður er í fyrirliggjandi frumvarpi. Þetta felur í sér 8,8 milljarða hækkun á fjármunum til framkvæmda og viðhalds á næstu þremur árum. Það voru vonbrigði að meirihlutinn gat ekki tekið undir þessa tillögu.
Framkvæmdastopp í Reykjavík
Átakalínurnar í aðdraganda borgarstjórnarkosninga eru að skýrast. Samfylkingin vill að Reykjavíkurborg ráðist í nauðsynlegt viðhald og framkvæmdir á næstu þremur árum og halda þannig uppi atvinnu í mestu kreppunni. Sjálfstæðisflokkurinn boðar frjálshyggju og afskiptaleysi og boðar 70% niðurskurð í framkvæmdum næstu þrjú árin. Þetta birtist í þriggja ára áætlun um framkvæmdir og rekstur Reykjavíkurborgar sem [...]
Ríkisstjórn á krossgötum
Yfirlýsingar leiðtoga stjórnarandstöðuflokkanna í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave undirstrika að ríkisstjórnin er á krossgötum. Með því að stilla úrslitum kosninganna þannig upp að þau séu vantraust á ríkisstjórnina, frekar en dómur um samning sem beri að víkja vegna þess að betra tilboð liggi á borðinu, er stjórnarandstaðan að reyna að nýta sér atkvæðagreiðsluna í flokkspólitískum tilgangi. [...]
“Lead, follow or get (the hell) out of the way”.
Jón Sigurðsson forstjóri Össurar flutti mjög athyglivert erindi á Iðnþingi á fimmtudaginn sl – sem merkilegt nokk – hefur hvergi fengið athygli í fjölmiðlum, svo ég hafi séð. Það er dregið svona saman á heimasíðu Samtaka iðnaðarins. Jón kom víða við í ábendingum og vel rökstuddri gagnrýni og fékk reyndar aldrei meira forystumanna í atvinnulífinu en þegar hann gagnrýndi Sjálfstæðisflokkinn – fyrir “vaðmálspólitík í anda Jónasar frá Hriflu. Mér fannst reyndar risið í erindinu þegar hann greip til kjörorða úr bandaríska landgönguliðinu til að senda stjórnarandstöðunni á þingi skilaboð: “Lead, follow or get (the hell) out of the way”.
Sjálfstæðisflokkurinn dalar í borginni
Nýja Gallup-könnunin sem birtist í upphafi vikunnar fékk nánast enga athygli, þó hún sé allrar athygli virði. Samkvæmt henni fengi Sjálfstæðisflokkurinn fengi 37% fylgi ef kosið yrði til borgarstjórnar í dag. Samfylking og Sjálfstæðisflokkur fengju sex borgarfulltrúa hvor flokkur. Sjálfstæðisflokkurinn fengi nú 4% minna fylgi en flokkurinn mældist með í janúar. 34% myndu kjósa Samfylkinguna [...]