Reykjavík: Viljum við framkvæmdir til að vinna gegn atvinnuleysi?

Breytingartillaga Samfylkingarinnar við þriggja ára áætlun gerir ráð fyrir sömu upphæð til framkvæmda og sérstakri áherslu á meiriháttar viðhaldsverkefni á árunum 2011-2013 og á síðustu árum, alls að upphæð 5,3 milljarðar króna á ári í stað þess 70% niðurskurðar sem fyrirhugaður er í fyrirliggjandi frumvarpi. Þetta felur í sér 8,8 milljarða hækkun á fjármunum til framkvæmda og viðhalds á næstu þremur árum. Það voru vonbrigði að meirihlutinn gat ekki tekið undir þessa tillögu.

  Lesa greinina

Framkvæmdastopp í Reykjavík

Átakalínurnar í aðdraganda borgarstjórnarkosninga eru að skýrast. Samfylkingin vill að Reykjavíkurborg ráðist í nauðsynlegt viðhald og framkvæmdir á næstu þremur árum og halda þannig uppi atvinnu í mestu kreppunni. Sjálfstæðisflokkurinn boðar frjálshyggju og afskiptaleysi og boðar 70% niðurskurð í framkvæmdum næstu þrjú árin. Þetta birtist í þriggja ára áætlun um framkvæmdir og rekstur Reykjavíkurborgar sem [...]

  Lesa greinina

Ríkisstjórn á krossgötum

Yfirlýsingar leiðtoga stjórnarandstöðuflokkanna í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave undirstrika að ríkisstjórnin er á krossgötum. Með því að stilla úrslitum kosninganna þannig upp að þau séu vantraust á ríkisstjórnina, frekar en dómur um samning sem beri að víkja vegna þess að betra tilboð liggi á borðinu, er stjórnarandstaðan að reyna að nýta sér atkvæðagreiðsluna í flokkspólitískum tilgangi. [...]

  Lesa greinina

“Lead, follow or get (the hell) out of the way”.

Jón Sigurðsson forstjóri Össurar flutti mjög athyglivert erindi á Iðnþingi á fimmtudaginn sl – sem merkilegt nokk – hefur hvergi fengið athygli í fjölmiðlum, svo ég hafi séð. Það er dregið svona saman á heimasíðu Samtaka iðnaðarins. Jón kom víða við í ábendingum og vel rökstuddri gagnrýni og fékk reyndar aldrei meira forystumanna í atvinnulífinu en þegar hann gagnrýndi Sjálfstæðisflokkinn – fyrir “vaðmálspólitík í anda Jónasar frá Hriflu. Mér fannst reyndar risið í erindinu þegar hann greip til kjörorða úr bandaríska landgönguliðinu til að senda stjórnarandstöðunni á þingi skilaboð: “Lead, follow or get (the hell) out of the way”.

  Lesa greinina

Sjálfstæðisflokkurinn dalar í borginni

 

Nýja Gallup-könnunin sem birtist í upphafi vikunnar fékk nánast enga athygli, þó hún sé allrar athygli virði. Samkvæmt henni fengi Sjálfstæðisflokkurinn fengi 37% fylgi ef kosið yrði til borgarstjórnar í dag. Samfylking og Sjálfstæðisflokkur fengju sex borgarfulltrúa hvor flokkur. Sjálfstæðisflokkurinn fengi nú 4% minna fylgi en flokkurinn mældist með í janúar. 34% myndu kjósa Samfylkinguna [...]

  Lesa greinina

Hanna Birna vill bíða: 70% samdráttur í framkvæmdum Reykjavíkurborgar

Klassísk jafnaðarstefna á krepputímum er þvert á móti sú að þá sé réttlætanlegt og mikilvægt að stuðla að atvinnu með opinberum fjárfestingum og átaki í tímabærum viðhaldsverkefnum, eftir því sem nokkur kostur er. Óhætt er að segja að hinar pólitísku átakalínur eru því að skírast.

  Lesa greinina

Framkvæmdastopp í Reykjavík

Heildarfjárfestingar á vegum Reykjavíkurborgar næstu þrjú árin dragast saman um 70% samkvæmt framlagðri þriggja ára áætlun sem lögð var fram af borgarstjóra og meirihluta borgarstjórnar í dag. Áætlunin felur nánast i sér framkvæmdastopp en heildarfjárfesting A-hluta borgarinnar á tímabilinu á að vera 6,6 milljarðar sem er minna en framkvæmt hefur verið á meðalári að undanförnu. Þess má geta að árið 2008 var framkvæmt fyrir 10,3 milljarða en framkvæma á fyrir 1,3 árið 2013 samkvæmt áætluninni sem kynnt var í dag.

  Lesa greinina

Ódýrari frístundir fyrir börn og fjölskyldur

Samfylkingin hefur lagt ríka áherslu á málefni barna og ungmenna á kjörtímabilinu og tvívegis með stuttu millibili lagt fram tillögur í borgarstjórn um leiðir til að gera frístundir ódýrari fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Af því tilefni birtist viðtal við mig í Vesturbæjarblaðinu sem kom út í lok febrúar.
Viðtalið fer hér á eftir.
Ódýrari frístundir fyrir [...]

  Lesa greinina

Lóðaskil: spurt út í viðbrögð og yfirlýsingar borgarstjóra

Á fundi borgarráðs í dag óskuðu fulltrúar Samfylkingarinnar eftir upplýsingum um viðbrögð borgarstjóra í málefnum lóðahafa sem ekki hafa fengið að skila lóðum sínum þrátt fyrir úrskurð samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis um að þær ákvarðanir hafi verið ólögmætar. Svo virðist sem aðilum hafi verið send bréf án þess að þau hafi verið lögð fram eða kynnt [...]

  Lesa greinina

Listinn klár: Nýtt fólk úr atvinnulífinu áberandi

Fulltrúaráðsfundur Samfylkingarinnar í Reykjavík samþykkti í gærkvöldi einróma framboðslista flokksins vegna komandi borgarstjórnarkosninga. Nýtt fólk úr atvinnulífinu er áberandi í væntanlegum borgarstjórnarflokki, í sætunum sem raðast neðan þeirra sem þátt tóku í nýafstöðu prófkjöri. Og það er jafnframt áberandi hversu mikil breidd einkennir hópinn, fjölbreytt reynsla og fólk sem býr og þekkir til í öllum [...]

  Lesa greinina
Page 4 of 6