Dagur B Eggertsson

Samstarfsyfirlýsing Besta flokksins og Samfylkingarinnar
Lýðræði og þátttaka

Fjölgað verði beinum atkvæðagreiðslum um mikilvæg mál og settur skýrari rammi um framkvæmd þeirra.

Samráð verði haft við íbúa og foreldra í skipulags-, umhverfis- og skólamálum, það gert markvissara og stutt við aðkomu þeirra að lykilákvörðunum.

Nefndum verði fækkað og hið pólitíska stjórnkerfi einfaldað. Sambærileg endurskoðun fari fram á stjórnsýslunni.

Borgarráð taki við verkefnum framkvæmda- og eignaráðs.

Menntaráð og leikskólaráð sameinist og nefnist „Menntaráð“.

Skipulagsráð nefnist „Skipulags- og samgönguráð“ og taki við samgöngumálum af umhverfis- og samgönguráði.

Umhverfisráð nefnist „Umhverfis- og auðlindaráð“. Ráðið fari með stefnumótun í orku- og auðlindamálum og taki einnig við verkefnum heilbrigðisnefndar.

Framtalsnefnd verði lögð niður og verkefni hennar lögð undir velferðarráð.

Stjórnsýsla í ráðhúsi verði endurskipulögð og einfölduð.

Hverfaráð verði efld.

Skerpt verði á verkaskiptingu milli stjórnmálamanna og embættismanna.

Öll störf hjá Reykjavíkurborg, önnur en pólitískra aðstoðarmanna, verði auglýst og ráðningar ákveðnar á faglegum forsendum.

Siðareglur borgarstjórnar verði endurskoðaðar.

Reykjavíkurborg þrýsti á að sett verði á stofn siðanefnd á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga til að úrskurða í álitamálum og þegar grunur vaknar um brot á siðareglum.

Hverfastefna

Aukin verkefni og fjárráð flytjist til hverfaráðanna.

Í samráði við íbúa og starfsfólk verði útfærðar tillögur um hvernig best sé að draga úr miðstýringu og auka sjálfstæði hverfanna með eflingu hverfaráða, hverfatengdrar þjónustu og forgangsröðun í rekstri innan hverfis.

Innflytjendur og jafnréttismál

Þjónustu- og ráðgjafarhlutverk borgarinnar við innflytjendur verði endurskoðað í samráði við fulltrúa innflytjenda, önnur sveitarfélög, og ríkið.

Fjölmenningu og framlagi innflytjenda til samfélagsins verði gert hærra undir höfði.

Félög innflytjenda taki þátt í stefnumótun borgarinnar.

Þátttaka barna og ungmenna af erlendum uppruna í frístundastarfi verði aukin í samstarfi við íþróttafélög, skólahljómsveitir, lífsskoðunarfélög og listaskóla.

Móðurmálskennsla barna af erlendum uppruna og íslenskukennsla fyrir innflytjendur verði efld í samstarfi við grasrótarsamtök.

Þróun kynbundins launamunar verði könnuð reglulega og brugðist við henni með áætlun sem hefur það að markmiði að honum verði útrýmt að fullu.

Mörkuð verði stefna um jafnréttisfræðslu. Grunn- og leikskólar mæti þörfum bæði stráka og stelpna.

Mótuð verði aðgerðaráætlun gegn ofbeldi og einelti. Tryggt verði að allt starfsfólk borgarinnar bregðist markvisst við þegar grunur leikur á um ofbeldi og einelti.

Allskonar

Borginni verði stjórnað með bros á vör.

Stefnt skal að því að þróa „norðurhjaragarð“ í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum með sérstakri áherslu á náttúruvernd og tengingu hans við skólana í borginni.

Bílaumferð á tilteknum svæðum í miðborginni verði takmörkuð í tilraunaskyni.

Hálfbyggð skólahverfi verði kláruð. Útþensla borgarinnar verði stöðvuð.

Áhersla verði lögð á samveru og sameiningu kynslóðanna. Markvisst verði unnið að því að rjúfa félagslega einangrun, sérstaklega aldraðra, í samvinnu við einstaklinga, félög og stofnanir í hverfum. Drepum ekki gamla fólkið úr leiðindum.

Lýðræðis- og ábendingagáttin „Betri Reykjavík“, www.betrireykjavik.is, verði þróuð frekar á vef Reykjavíkurborgar. Hugað verði að aðgengi þeirra sem ekki eru nettengdir að umræðum og ákvarðanatökum.

Eigendur niðurníddra húsa í borginni verði hvattir til að koma þeim í viðunandi horf. Dagsektum verði beitt ef frestir til aðgerða eru ekki virtir.

Embætti borgarstjóra verði fært nær borgarbúum.

Atvinna

Efnt verði til funda með samtökum í atvinnulífi og fulltrúum fyrirtækja og stofnana til að skilgreina stöðu, styrkleika og sóknarfæri atvinnulífs Reykjavíkurborgar til skemmri og lengri tíma.

Einangrun og óvirkni ungra atvinnuleitenda verði rofin með samstarfi ríkis og borgar, stéttarfélaga, símenntunarmiðstöðva, ÍTR, grunn- og framhaldsskóla.

Nágrannasveitarfélögum, ríkisstjórn, menntastofnunum og aðilum vinnumarkaðar verði boðið til þátttöku í samningi um vöxt atvinnulífsins á höfuðborgarsvæðinu. Markmið samningsins verður að styrkja samkeppnishæfni fyrirtækja í virkri alþjóðlegri samkeppni, auka veltu þeirra, verðmætasköpun, útflutningstekjur og skapa þannig grunn fyrir umtalsverða fjölgun starfa á næstu misserum.

Þróunar- og nýsköpunarfélag Reykjavíkurborgar í atvinnumálum verði endurreist. Það verði vettvangur samstarfs opinberra og einkaaðila um að fjölga nýjum fjárfestingum í borginni.

Höfuðborgarstofa, viðburða- og markaðsskrifstofa Reykjavíkurborgar í ferðaþjónustu, verði opnuð fyrir aðkomu, fjármagni og nánara samstarfi við ferðaþjónustufyrirtæki.

Mörkuð verði heildarstefna fyrir afþreyingu ferðamanna í Reykjavík, með sérstakri áherslu á fjölskyldufólk.

Stutt verði sérstaklega við hátíðir og viðburði sem eiga sér stað utan háannatíma í komu ferðamanna.

Átak verði gert í að gera Reykjavík enn ferðamannavænni, til dæmis með merkingum og upplýsingaskiltum á erlendum tungumálum.

Stutt verði við uppbyggingu þekkingar- og heilbrigðistengdra fyrirtækja með samstarfi um beina markaðssetningu á háskólasvæðunum í Vatnsmýrinni í samvinnu við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík og Landspítalann. Reykjavíkurborg greiði fyrir skipulagi stúdentaíbúða og annarra innviða sem stuðla að sömu markmiðum.

Börn og skólar

Leikskóla- og menntaráð verði sameinuð og heiti ”menntaráð” enda er leikskólastigið fyrsta skólastigið og mikilvægt að skapa tengsl milli menntunar allt frá upphafi leikskólagöngu til loka framhaldsnáms.

Borginni verði mörkuð barna- og fjölskyldustefna.

Systkinaforgangur verði tekinn upp í leikskólum.

Leik- og grunnskólar og frístundaheimili móti sér menningarstefnu á grundvelli „Vegvísis til listfræðslu“ (UNESCO) og gerð verði áætlun um samstarf þeirra við listamenn og menningarstofnanir.

Skólar geti keppt um ,,Menningarfána“. Skólar sem skara fram úr í menningar- og listfræðslu fengju þannig viðurkenningu. Slíkum fánum gæti fjölgað eftir áherslum í skólasamfélaginu hverju sinni, t.d. bættust við vísindafáninn, heilsufáninn.

Starfsdagar og frí í leik- og grunnskólum verði samræmdir innan hverfa.

Samhliða aukinni fagmennsku með lengingu kennaranáms leggi leikskólinn aukna áherslu á ögrandi viðfangsefni við hæfi hvers og eins barns.

Stefnt verði að því að samþætta skóla- og frístundastarf með nýjum leiðum, svo kraftar allra nýtist í þágu barnanna.

Foreldrum verði gert kleift að láta skoðun sína á skóla barna sinna í ljós með stuttum rafrænum skoðanakönnunum með reglulegu millibili.

Samstarf leik- og grunnskóla verði aukið í verkefnum tengdum málþroska og byrjendalæsi.

Listnám og hreyfing verði í boði á skólatíma og í skólahúsnæði. Leitað verði leiða til að sem flest börn geti notið listkennslu og hreyfingar.

Samstarf þeirra sem koma að menntun, umönnun og uppeldi barna og ungmenna verði aukið. Þjónusta, stuðningur og ráðgjöf við börn, fjölskyldur og skóla á heima úti í hverfunum. Skólarnir verði opnaðir fyrir þátttöku foreldra og sjálfboðaliða.

Hugað verði að byggingu nýs sérskóla þar sem starfsemi Öskjuhlíðar- og Safamýrarskóla fer undir eitt þak. Skóli án aðgreiningar verði sem fyrr hornsteinn menntastefnu borgarinnar.

Tækifæri til kennara- og skólastjóraskipta verði athuguð með það að markmiði að stuðla að útbreiðslu þekkingar, auknu samstarfi milli skóla og starfsþróun.

Skólastjórar verði ráðnir til ákveðins árafjölda í senn en heimilt verði að endurnýja samninga að þeim tíma liðnum.

Auka skal vægi siðfræði, heimspeki, tjáningar og samvinnu í námi barna í leik- og grunnskólum og á frístundaheimilum.

Aðgerðir til að vinna gegn áhugaleysi stráka í skólum verði forgangsmál. Karlkennurum verði fjölgað eins og kostur er.

Viðhald og verklegar framkvæmdir

Sumarið 2010 verði kapp lagt á að gera sameiginleg græn svæði og leiksvæði borgarinnar fín og íbúum, hópum og félagasamtökum boðið að taka þau að sér. Sérstök áhersla verði lögð á ömmu- og afaróló þar sem kynslóðirnar geti notið lífsins saman.

Settur verði upp ábendingarvefur um nauðsynlegar viðhaldsframkvæmdir í Reykjavík.

Framkvæmdaáætlun Reykjavíkurborgar verði tekin til endurskoðunar og stefnt að því að tvöfalda viðhald á fasteignum borgarinnar árin 2011-2012. Með því að flýta brýnum viðhaldsverkefnum, sem annars hefðu komið til framkvæmda 2013-2015, skapast störf þegar mest þarf á þeim að halda.

Sett verði fram heildstæð áætlun um endurnýjun eldri hverfa. Í stað þess að hverfin drabbist niður í kreppunni verði lögð áhersla á viðhald og endurnýjun á opinberum byggingum, auk endurbóta á borgarumhverfinu og útisvæðum.

Eflingu mannlífs og borgarmyndar í Efra-Breiðholti verði hleypt af stokkunum undir merkjum átaksins: „111 Reykjavík“.

Liðka skal fyrir samstarfi við Vinnumálastofnun um starfsþjálfunarsamninga, sérstök tímabundin átaksverkefni og ,,Starfsorku“ sem býður fullar atvinnuleysisbætur með hverjum starfsmanni á atvinnuleysisskrá í allt að eitt ár þegar ráðist er í nýsköpunarverkefni eða markaðssetningu erlendis.

Meira allskonar

Stefnt er að því að beita óvenjulegum aðferðum til að auka náungakærleik í borginni okkar.

Grænum svæðum innan borgarmarkanna verði betur sinnt og þau gerð líflegri.

Menningarsögu kvenna í borginni verði gert hærra undir höfði.

Við uppbyggingu íþróttaaðstöðu verði fyrst horft til þeirra hverfa þar sem lítil aðstaða er í boði, til dæmis Grafarholts, Norðlingaholts og Úlfarsárdals.

Kannaður verði möguleiki á eflingu alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík og stutt við hugmyndir um „kvikmyndastofu“, heimili kvikmyndanna í Regnboganum.

Útfærðar verði leiðir til að tryggja notkun á auðu húsnæði og laða smærri fyrirtæki að hverfum borgarinnar.

Leiðindi í borgarkerfinu verði leituð uppi og þeim útrýmt nema ríkir almannahagsmunir geri þau algjörlega nauðsynleg.

Stofnun fyrirtækja verði einfölduð. Einfalda skal leyfisveitingar og umsóknarferli fyrir þá sem vilja stofna til reksturs í Reykjavíkurborg.

Auðvelda skal fólki að gera breytingar á íbúðarhúsnæði til að bæta aðgengi fatlaðra og aldraðra. Með því er þeim gert kleift að búa lengur heima. Jafnhliða eykst eftirspurn eftir vinnu hönnuða, arkitekta og iðnaðarmanna.

Umhverfis- og auðlindamál

Umhverfis- og samgönguráð Reykjavíkur verði „Umhverfis- og auðlindaráð“ og fái það hlutverk að móta orku- og auðlindastefnu borgarinnar.

Sameiginlegt eignarhald borgarbúa á auðlindum í borgarlandinu verði tryggt og kveðið á um eðlilegt afgjald af þeim.

Orkuskipti í samgöngum og rafvæðing samgangna verði forgangsmál til framtíðar.

Stefnt verði að því að innan áratugar verði a.m.k. annar hver bíll í Reykjavík knúinn innlendri, vistvænni orku. Borgin beiti sér og Orkuveitu Reykjavíkur fyrir markvissu átaki í þessu efni í samvinnu og samráði við löggjafa- og framkvæmdavald, nágrannasveitarfélög, fyrirtæki, frjáls félagasamtök og aðra þá aðila sem hjálpað geta til við að ná þessu markmiði.

Sett verði skilgreind og tímasett markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda í Reykjavík.

Borgin gangi fram með góðu fordæmi þegar kemur að endurnýjun bílaflota hennar og byggi hann upp á raf- og metanknúnum bílum.

Áhersla skal lögð á að vernda ströndina þar sem hún er ósnortin og græna trefilinn umhverfis höfuðborgarsvæðið.

Borgin setji gott fordæmi með því að setja stofnunum og fyrirtækjum borgarinnar metnaðarfulla umhverfis- og samgöngustefnu með mælanlegum markmiðum.

Leitast skal við að styrkja nafn Reykjavíkur sem miðstöð í rannsóknum á málefnum norðurslóða, loftslagsbreytinga, jarðhita og endurnýtanlegum orkugjöfum.

Unnið verði að því að stórauka endurvinnslu.

Kannaður verði grundvöllur fyrir því að umhverfisvotta Reykjavík.

Skipulags- og samgöngumál

Skipulagsráð verði „Skipulags- og samgönguráð“ til að undirstrika samhengi skipulags- og samgangna í borgarmyndinni.

Svæðiskipulagsráð eða annar sameiginlegur vettvangur sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins hafi vald til að móta og stýra stefnu á sviði landnotkunar, byggðaþróunar, samgangna- og umhverfismála.

Reykjavík eigi frumkvæði að því að unnið verði nýtt svæðisskipulag sem nái frá Reykjanesi í vestri, Árborgarsvæðinu í austri og Borgarnesi í norðri, og að til verði sameiginleg sýn á umhverfis-, atvinnu- og húsnæðismál á öllu svæðinu.

Réttur íbúanna á að vera skýr og öllum skiljanlegur. Þeim á að bjóðast ókeypis mat hlutlausra sérfræðinga á byggingarmagni, hæðum, nýtingarhlutfalli, skuggavarpi og umferðarspám. Málsmeðferð í skipulags- og byggingamálum verði einfölduð og þjónustumiðuð.

Hugað verði sérstaklega að sameiginlegum borgarrýmum, svo sem Hlemmi, Ingólfstorgi, Lækjartorgi, Óðinstorgi, Vitatorgi, Spönginni, Árbæjartorgi og fleiri.

Með betra borgarskipulagi, blöndun byggðar, styttingu á vegalengd milli heimila og vinnu, betri almenningssamgöngum og bættri aðstöðu fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur verði dregið úr þörfinni fyrir sífellt stærri og dýrari umferðarmannvirki.

Færri mislæg gatnamót, fleiri einlæg gatnamót!

Hjólandi og gangandi njóti forgangs í umferðinni. Götur verði gerðar fallegri. Hjólreiðaáætlun verði unnin fyrir höfuðborgarsvæðið og hrint í framkvæmd í Reykjavík.

Farið verði í markvissar aðgerðir til að draga úr umferðarhættu, svifryks- og hávaðamengun í borginni. Dregið verði úr notkun nagladekkja og umferðarhraða, og bílastæðareglur endurskoðaðar.

Auka skal ferðatíðni og bæta leiðakerfi strætós. Tryggt verði að strætó gangi alla daga ársins. Strætó fái forgang á stofnleiðum og leiðakerfið taki mið af því að börn komist milli heimila sinna og frístundastarfs.

Lögð verði áhersla á endurnýjun úr sér genginna iðnaðar- og verslunarsvæða og þéttingu byggðar. Áhersla verði lögð á endurskipulagningu Elliðavogs- og Höfðasvæðis. Skipulagi Mýrargötusvæðisins og Gömlu hafnarinnar verði lokið. Þegar fasteignamarkaður kemst í eðlilegt horf verði hafin uppbygging við Hlemm og á völdum svæðum í Vatnsmýri.

Við skipulag nýrra hverfa og endurnýjun gamalla hverfa verði stefnt að því að þar ríki félagslegur fjölbreytileiki. Leiguíbúðir verði minnst fimmtungur íbúða á nýjum byggðarsvæðum. Unnið verði að jöfnu aðgengi fyrir alla borgarana, innan húss sem utan.

Byggðamynstrið í miðborg Reykjavíkur verði verndað. Heildstæð húsverndaráætlun fyrir alla borgina verði hluti af nýju aðalskipulagi Reykjavíkur.

Gert verði ráð fyrir lestartengingu milli Vatnsmýrar og Keflavíkurflugvallar í nýju aðalskipulagi þar sem unnið verður að því að Vatnsmýrin byggist upp í áföngum.

Teknar verði upp viðræður um framtíð flugvallarsvæðisins í Vatnsmýri.

Fjölskyldur og velferð

Þjónustumiðstöðvar í hverfum verði efldar svo öll nærþjónusta sé á einum stað og að hún sé vel kynnt íbúum.

Tekið verði af myndugleik á vanda útigangsfólks og tillögur gerðar um úrbætur í samráði við félagasamtök og fagfólk.

Samþætt heimaþjónusta og heimahjúkrun verði hverfisbundin. Unnið verði að nánari samstarfi og samvinnu við heilsugæsluna.

Skipulag barnaverndar verði yfirfarið og almennu barnaverndarstarfi sinnt á þjónustumiðstöðvum.

Frístundakort barna verði „opnað“ svo hægt verði að bæta inn á það greiðslum.

Stefnt verði að því að tryggja að samanlögð fjárhags- og húsnæðisaðstoð nái lágtekjumörkum Hagstofunnar sem eru nú 160.800 kr. á mánuði. Stefnt verði að því að fjárhagsaðstoð sé ekki langtímaúrræði.

Öllum sem eru á framfærslu borgarinnar lengur en í 3 mánuði verði boðið upp á ráðgjöf, námskeið og önnur úrræði til að auka möguleika þeirra á virkri þátttöku í samfélaginu.

Reykjavíkurborg leiti eftir auknu samstarfi við Vinnumálastofnun um leiðir til úrbóta á aðstæðum þeirra sem eru utan vinnumarkaðar.

Markvisst verði unnið að flutningi þjónustu fatlaðra og aldraðra frá ríki til sveitarfélaga. Reykjavíkurborg hafi forgöngu um þróun þjónustunnar. Notendastýrð þjónusta verði þróuð samhliða yfirflutningi eins og samtök fatlaðra hafa haft forgöngu um.

Mótuð verði þjónustustefna fyrir eldri borgara í Reykjavík í samstarfi við samtök þeirra.

Félagsmiðstöðvar í hverfum og þær listasmiðjur sem nú eru að mestu sóttar af eldri borgurum verði einnig opnaðar fyrir foreldra með ungbörn, atvinnuleitendur og aðra hópa sem gagn og gaman kynnu að hafa af því.

Húsnæðismál

Stuðlað verði að fjölbreytileika í framboði á húsnæði og félagslegri fjölbreytni í hverfum.

Fólk verði stutt í þeirri ákvörðun að búa heima með þeirri aðstoð sem þar  er hægt að veita því.

Reykjavíkurborg stuðli að vexti og viðgangi húsnæðissamvinnufélaga, leigu- og búsetusamtaka í almannaþágu.

Skoðað verði hvort Félagsbústaðir verði hluti af stærra húsnæðissamvinnu- og búseturéttarfélagi á öllu höfuðborgarsvæðinu.

Íbúar í húsnæði á vegum borgarinnar hafi tækifæri til þess að skipta yfir í búseturéttarleið og eignast búseturétt.

Enn meira allskonar

Höfuðborgarsvæðið er sambýli. Litið verði á höfuðborgarsvæðið sem eina heild. Opnað verði á viðræður um hvers kyns sameiningu og nánari samvinnu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

Stofnað verði embætti „Umboðsmanns borgarbúa“ sem leiðbeinir íbúunum í samskiptum þeirra við embætti og stofnanir borgarinnar og veitir þeim ráðgjöf um rétt sinn.

Teknar verði upp viðræður um að Reykjavíkurborg reki tilraunaskóla fyrir 13-18 ára nemendur.

Öllum börnum standi til boða morgunverður og hollur hádegismatur í skólum og leikskólum á viðráðanlegu verði. Kannaður verði sá kostur að skólamáltíðir verði fjármagnaðar með valgreiðslum foreldra og annarra útsvarsgreiðenda í Reykjavík.

Dagbók borgarstjóra verði opin almenningi og aðgengileg á vef Reykjavíkurborgar.

Opnir hverfafundir borgarstjóra verði endurvaktir.

Flutningur húsa úr Árbæjarsafni á því sem næst upprunalega staði sína eða í húsasöguþyrpingu í Hljómskálagarðinum verði kannaður.

Fjármál

Velferð og þjónusta við íbúana njóti forgangs við ráðstöfun fjármuna borgarinnar.

Fjármál Reykjavíkurborgar eru fjármál borgarbúa. Fjármál borgarinnar verða sett fram á mannamáli og með myndrænum hætti sem öllum er skiljanlegur.

Unnin verði áætlun um efnahags- og fjármálastjórn Reykjavíkurborgar til fimm og tíu ára. Samhliða gerð hennar verði unnar fjármálareglur, stefna um áhættu- og lánastýringu þar sem fjárhagslegt eftirlit verði styrkt í ljósi reynslunnar. Áætlunin og stefnan nái jafnt til borgarsjóðs og fyrirtækja borgarinnar.

Góð meðferð almannafjár verði höfð að leiðarljósi í öllum rekstri Reykjavíkurborgar.

Styrkveitingar borgarinnar verði teknar til endurskoðunar. Farið verði yfir forsendur styrkja og samstarfssamninga borgarinnar, ásamt eftirliti með notkun þeirra og árangursmati. Þeir sem njóti styrkja skuldbindi sig til að vera með opið bókhald.

Þjónusta

Átak verði gert í netvæðingu þjónustu Reykjavíkurborgarinnar.

Þjónusta borgarinnar á að taka mið af þeim sem nota hana. Allt viðmót þjónustu við íbúana verði einfaldað.

Markmið þjónustunnar og tímafrestir verði skilgreind þar sem því verður við komið. Framkvæmd þjónustunnar endurspegli þann rétt sem Reykvíkingar eiga á faglegri þjónustu, skilvirkni og góðri nýtingu fjármuna.

Borgin taki upp stöðugt árangursmat þjónustu á sem flestum sviðum og unnið verði að því að innleiða vottuð gæðakerfi þar sem við á.

Fyrirtæki borgarinnar

Eigendastefna verði skilgreind fyrir fyrirtæki og byggðasamlög í eigu borgarinnar.

Tryggja þarf að stefna Reykjavíkurborgar nái fram að ganga í samræmi við eignahluti borgarinnar í byggðasamlögum og fyrirtækjum borgarinnar að teknu eðlilegu tilliti til hagsmuna og sjónarmiða minnihlutaeigenda.

Innra eftirlit veiti virkt aðhald í borgarkerfinu og reglubundið árangursmat verði ófrávíkjanleg regla í öllum rekstri.

Allskonar allskonar

Ávallt verði lögð áhersla á bjarta framtíð Reykjavíkur.

Fyrstu verk

Borgarbúar

Útigangskonum verði búið öruggt húsaskjól fyrir fyrstu snjóa í haust.

Systkinaforgangur verði tekinn upp í leikskólum.

Ókeypis verði fyrir börn í sund í sumar.

Settur verði upp innileikvöllur í Perlunni.

20 græn svæði og leikvellir borgarinnar verði teknir í gegn í sumar og boðnir borgarbúum til umhirðu. Sérstaklega verði hugað að þörfum ömmu og afa á leiksvæðunum.

Sjálfbært gegnsæi

Vefurinn Betri Reykjavík, www.betrireykjavik.is, verði nýttur til stuðnings við ákvarðanir og stefnumótun.

Opnað verði vefsvæði fyrir ábendingar almennings um aðkallandi viðhald og viðgerðir í borginni.

Dagbók borgarstjóra verði opin og aðgengileg á netinu.

Traustatök

Fagleg rekstrarúttekt verði gerð á Orkuveitu Reykjavíkur.

Nefndum borgarinnar verði fækkað til að auka skilvirkni og spara nefndarlaun.

Langtímaáætlun um fjármál, framkvæmdir, borgarþróun og atvinnumál Reykjavíkur liggi fyrir í lok árs.

Allskonar

Skólar geti áunnið sér sérstakan menningarfána með því að setja sér menningarstefnu og t.d. taka listamenn í fóstur.

Efnt verði til kvennakvölds í Reykjavík.

Reykjavíkurborg styðji við nýtt heimili kvikmyndanna í Regnboganum.

Borgarstjóri verði kjörinn stjórnarformaður Fjölskyldu- og húsdýragarðsins.

Atvinnumálin eru númer eitt, tvö og þrjú. Ef við komum atvinnunni ekki af stað, þá náum við ekki að tryggja öryggi og velferð
Nicolai Wammen er borgarstjóri Árósa þar sem búa álíka margir og á Íslandi öllu. Hann er vinsælasti stjórnmálamaður Danmerkur vegna árangurs síns í atvinnumálum, í verkefnum um grænan vöxt og í baráttunni við kreppuna. Margir Íslendingar þekkja Árósa, hafa búið þar, stundað nám og vita að undir stjórn Nicolai hefur borgarstjórnin þar náð markverðum árangri. Atvinnuleysið er 3,6 prósent, sem er minna en í öðrum dönskum borgum, og miklu minna en hér í Reykjavík þar sem 7 þúsund manns ganga atvinnulausir og störf eru í hættu.

Nicolai: Bæði Reykjavík og Árósar þurfa að takast á við afleiðingar efnahagskreppunnar sem nú geisar víða um heim. Við Dagur tilheyrum báðir nýrri kynslóð jafnaðarmanna sem sækir í sögu og reynslu jafnaðarmannahreyfingarinnar. Sú saga sýnir hvernig best er að byggja samfélög upp eftir kreppu, koma vinnufúsum höndum til verka, vinna að jöfnuði og koma í veg fyrir misskiptingu.

Ég er ákaflega hrifinn af því hvernig Samfylkingin tekur á atvinnumálunum og mér sýnast forystumenn hennar í Reykjavík vera með afar ábyrga og skynsama stefnu um að slá á atvinnuleysið.

Dagur: Við verðum fyrir alla muni að horfast í augu við það að hvert prósent í atvinnuleysi kostar okkur milljarð, og hann þurfa  borgaryfirvöld einhvers staðar að fá. Við náum ekki tökum á velferðarmálunum, skólamálunum og öllum þessum mikilvægu borgarmálum ef okkur tekst ekki að vinna bug á vaxandi atvinnuleysi og verkefnaskorti. Þess vegna leggjum við svona mikið upp úr atvinnumálunum í þessum kosningum.

Nicolai: Margt við ástandið nú í Reykjavík er svipað því sem við stóðum frammi fyrir í Árósum þegar við byrjuðum að berjast í gegnum afleiðingar kreppunnar. Okkur hefur tekist að ná sýnilegum árangri, umfram aðrar borgir á Norðurlöndum. Við höfum náð atvinnuleysinu niður í 3,6 prósent. Það er verulegur árangur því venjulega hefur það verið svo að þegar atvinnuleysi er mikið í Danmörku, þá er það meira í Árósum en víðast annars staðar í landinu. Nú er það öfugt, við erum töluvert undir meðaltalinu.

Dagur: En hvað var það nákvæmlega sem þið gerðuð – og hvernig getum við hér lært af því?

Nicolai: Það sem við gerðum var að setja af stað atvinnuáætlun um að flýta fjárfestingum sem til stóð að fara í seinna. Við lögðum áherslu á að fjárfesta í uppbyggingarverkefnum fyrir skóla og leikskóla og öldrunarheimili. Við litum þannig á að það væri ekki hægt að bíða eftir því að aðrir tækju við sér, borgin yrði að vakna og setja af stað átak í framkvæmdum. Þessar aðgerðir höfðu svo strax áhrif við að koma fólki til starfa og komu í veg fyrir að við þyrftum að skera eins mikið niður og ella hefði orðið. Þessar aðgerðir unnu því með okkur á öllum sviðum.

Dagur: Mér finnst þetta mjög áhugavert, því þetta er nákvæmlega það sem við höfum verið að tala um hér í borginni fyrir daufum eyrum meirihlutans. Reykjavík verður að takast á við vandamálið með því að hætta afskiptaleysinu. Doði gengur ekki gegn atvinnuleysi. Borgin verður að byrja, taka forystu og hrinda af stað áætlun um að ná niður atvinnuleysinu og koma hjólum atvinnulífsins af stað. Frjálshyggjuhugmyndir um að best sé að bíða eftir því að markaðurinn taki við sér ganga einfaldlega ekki upp í kreppu.

Nicolai: Við ákváðum að horfa sérstaklega á atvinnuleysi meðal ungs fólks og takast á við það, því við gátum ekki sætt okkur við að til yrðu heilar kynslóðir atvinnulausra, sem síðan legði enn þyngri byrðar á velferðarkerfið. Við megum ekki við því að tapa ungu kynslóðinni.

Dagur: Það versta sem hægt er að gera við þessar aðstæður er að vera aðgerðalaus og vona það besta. Allir verða að leggja afar hart að sér og að mínu viti er ekkert betra ráð en það sem jafnaðarmenn hafa lagt áherslu á alla tíð um vinnu, velferð og jöfn tækifæri.

Nicolai: Þið eruð ekki eina þjóðin eða fyrsta þjóðin sem gengur í gegnum kreppu og það hefur ýmislegt verið reynt. Við sáum í kreppunni miklu í Bandaríkjunum að Hoover forseti Repúblikana ætlaði að sitja hjá og bíða eftir því að markaðsöflin kæmust á lappirnar. Þeir voru ekki vanir þeirri hugsun að ríkið eða sveitarstjórnirnar ættu að taka frumkvæði til að koma atvinnulífinu af stað. Þetta gekk ekki upp hjá Repúblikönum í Ameríku og þetta á ekki eftir að virka hjá frjálshyggjufólkinu á Íslandi. Mér finnst margt benda til þess að hægri vængurinn hafi ekki lært neitt.

Dagur: Við þurfum fjárfestingu í atvinnumálin, samvinnu við alla þá sem geta unnið með okkur við að skapa störf og takast á við atvinnuleysið. Mér finnst mikilvægt að fólk átti sig á því þegar kemur að því að greiða atkvæði að mikilvægasta verkefnið er að tryggja atvinnu, koma hjólunum af stað. Ef okkur tekst það ekki þá þarf að skera miklu meira niður, þá kemst enginn hjá því að taka á sig meiri byrðar.

Nicolai: Ég er algjörlega sammála. Það þarf að sýna borgurunum að tilteknar aðferðir hafa virkað til að koma á atvinnu eftir kreppu. Þessar hugmyndir sem Samfylkingin hefur verið að vinna með eru ekki bara hugmyndir heldur lausnir sem hafa virkað. Þær hafa virkað í borg eins og minni. Ég er þar af leiðandi algerlega sannfærður um að áætlunin um að fjárfesta í atvinnuverkefnum er rétta lyfið við þeim meinum sem Reykvíkingar kljást við núna.

Dagur: Ef við tökumst ekki á við atvinnuleysið er minna til fyrir skólana, leikskólana, öldrunarheimilin. Efnahagurinn verður veikari og þá eru það hinir verst settu sem þurfa að borga mest. Breytingar verða að eiga sér stað svo  börn, láglaunafólk og aldraðir verði ekki útundan í kreppunni.

Nicolai: Atvinnumálin eru lykillinn að öllu hinu sem þarf að gera. Annars er velferð borgaranna í hættu. Við ákváðum að einbeita okkur að grænum vexti, laða til okkar fyrirtæki í grænum iðnaði, við viljum að Árósar verði vindorkuhöfuðborg heimsins. Hvernig gerum við það? Spurðum við. Jú, við byrjuðum á að laða til okkar fremstu fyrirtækin í grænum iðnaði og náðum þeim árangri að stærsti vindmylluframleiðandi í heimi, Vestas, ætlar að setja upp sínar höfuðstöðvar í Árósum á næsta ári. Ég sé ekki annað en Reykjavík gæti stefnt að góðum árangri á sama sviði, verða græn höfuðborg. Þess vegna líst mér vel á áætlanirnar sem Samfylkingin hefur verið með um grænan vöxt í borginni.

Dagur: Við erum ekki eins vel sett og Árósar voru þegar kreppan skall á, því þeir höfðu fé til að setja í fjárfestingarverkefni sem við eigum ekki til. Samt tel ég að við verðum að feta í þeirra fótspor. Við verðum þá að taka eins hagstætt lán og við getum til að koma hlutunum af stað. Það er ráð sem hefur virkað gegn kreppu og við búum við það að borgarsjóður sjálfur stendur þokkalega og ræður við að taka lán til framkvæmda.

Nicolai: Við sjáum alveg að það er við alvarlegan vanda að glíma og erfið vandamál kalla á alvarlegar lausnir. Þess vegna er ekki nóg að benda bara á það sem er að, heldur verður að takast á við verkefnin af hörku og dugnaði. Raunverulegt innihald og alvöru lausnir er það sem þarf. Ef þessu er slegið upp í kæruleysi eða grín er hætt við að brosið endist ekki lengi eftir að kjördegi lýkur.

Örugg atvinna og aðgerðir fyrir börn og fjölskyldur
Atvinnumál eru forgangsmál Samfylkingarinnar í borgarstjórnarkosningunum. Enda hafa aldrei fleiri verið atvinnulausir í Reykjavík. Það gengur ekki að raðir lengist við hjálparstofnanir og ójöfnuður aukist. Það verður að koma vinnufúsum höndum til verka.

Það þarf nýja hugsun í Ráðhúsið. Borgin verður að vakna, taka forystu og beita öllu afli til að skapa störf og fjölga tækifærum. Kjarninn í hinni nýju hugsun er að Reykjavíkurborg þarf að beita sér og kveikja von til að koma Íslandi út úr kreppunni.

Borgin býr yfir sterkum innviðum og miklum mannauði en hlutverk hennar þarf að endurhugsa, eins og svo margt annað, eftir hrun. Það hefur Samfylkingin gert og kynnir aðgerðir á öllum lykilsviðum með megináherslu á atvinnumál, jöfn tækifæri og öruggt umhverfi barna.

Samfylkingin vill binda endi á aðgerðaleysið og hrinda markvissum og mikilvægum aðgerðum í framkvæmd í atvinnumálunum:

Tvöföldun viðhalds og auknar verklegar framkvæmdir

Endurnýjun í eldri hverfum og efling innviða

Samstillt vaxtarátak á öllu höfuðborgarsvæðinu

Átak í nýsköpun og nýtingu á tómu húsnæði

Vaxtarátak í græna geiranum

Samfylkingin vill aukið samstarf á höfuðborgarsvæðinu sem er eitt búsetu- og atvinnusvæði til að tryggja heildaryfirsýn og koma í veg fyrir kostnaðarsamt lóðakapphlaup og sóun á fjármunum útsvarsgreiðenda. Vítin eru til að varast þau.

Samfylkingin vill tryggja öllum börnum örugga þjónustu, standa vörð um grunn- og leikskóla og tryggja ódýrari frístundir fyrir öll börn, óháð efnahag. Að öðrum kosti er veruleg hætta á að hópar fólks, heilu kynslóðirnar beri varanlegan skaða af efnahagskreppunni.

Samfylkingin hafnar öllum hugmyndum um einkavæðingu Orkuveitunnar og leggur áherslu á að unnið verði á skuldavanda fyrirtækisins án tafar en skuldirnar hafa fjórfaldast á kjörtímabilinu sem er að ljúka.

Borgarmálin hafa verið í kreppu allt kjörtímabilið. Það er lykilatriði að endurvekja traust á borgarstjórn. Það verður aðeins gert með markvissum umbótum.

Auk ofangreindra áhersluatriða leggur Samfylkingin fram heildstæða stefnuskrá í öllum málaflokkum sem byggir á ítarlegri stefnumótun og samráði við á annað þúsund Reykjavíkinga og Samfylkingarfólk í vetur. Hægt er nálgast alla málaflokka á heimasíðunni undir Málefni.

Þorpin í borginni
Samfylkingin vill dreifa valdi og verkefnum og efla sjálfstæði hverfanna í þeim tilgangi að auka íbúalýðræði og bæta þjónustu borgarinnar við íbúa hennar. Framundan er tilfærsla verkefna frá ríki til sveitarfélaga, málefni fatlaðra og málefni aldraðra. Samfylkingin fagnar þeim breytingum og sér tækifæri til markvissari og betri þjónustu við íbúa. Þekkingin á þörfum íbúanna býr ekki bara á sviðum borgarinnar, hún leysist úr læðingi á heimaslóð þar sem börn breytast í krakka, svo í unglinga og loks í fullorðið fólk. Árangursríkasta leiðin til að þjónusta borgarbúa er að sinna þeim úti í hverfunum, með samanlögðum kröftum þess starfsfólks sem þekkir best til þarfa á hverjum stað. Félagsauður hverfanna og samstarf ólíkra aðila sem sinna borgarbúum frá vöggu til grafar eru verðmæti sem borgaryfirvöld eiga að leggja rækt við.

Samfylkingin ætlar að:

Styðja við starf íbúasamtaka og efla hverfisráð sem umsagnar- og samráðsaðila í öllu sem lýtur að málefnum hverfisins. Fundir hverfisráða verði öllum opnum.

Fella múra milli stofnanna og ná fram hagræðingu og markvissari þjónustu með flutningi verkefna til þjónustumiðstöðva.

Koma á frístundastrætó í hverju hverfi til að minnka skutl og auka strætónotkun barna og ungmenna.

Endurskoða fyrirkomulag sérfræðiþjónustu við börn í samstarfi við ríkið. Börnin eiga að vera í brennidepli, ekki þær allt of mörgu stofnanir sem koma að velferð þeirra.

Styðja við hverfablöð sem upplýsinga- og samskiptatorg í öllum hverfum.

Opna leiðir fyrir íbúa sem vilja hafa áhrif á umhverfi sitt, s.s. leiksvæði, taka opin svæði í fóstur, skipuleggja hlaupabrautir, hjólaleiðir, matjurtagarða og aðstöðu til frístunda fyrir unga sem eldri.

Mæta þörfum 16-24 ára ungmenna í hverju hverfi með samstarfi grunnskóla, framhaldsskóla, ÍTR og vinnumálastofnunar.

Tryggja þarf sýnilega löggæslu í hverfunum og samstarf lögreglu, barnaverndar og skóla.

Stuðla að því að öll hverfi geti boðið upp á fjölbreytt úrval íþrótta og tómstunda. Hér má virkja félagsauð hverfanna með nýjum leiðum.

Stuðla að jöfnu aðgengi allra barna að menningarstarfi óháð búsetu. Allir skólar móti menningarstefnu með aðkomu listafólks.

Fara í sérstakt átak um endurnýjun eldri hverfa og verslunarkjarna. Byrjað verði í Fellahverfi.

Stuðla að því að núverandi félagsmiðstöðvar fyrir eldri borgara verði einnig nýttar fyrir atvinnulausa, foreldramorgna og ýmis félagasamtök í hverfinu.

Skilgreina grunnskóla sem almannatorg og að þeir nýtist öllum aldurshópum í hverfunum.

Efla þjónustumiðstöðvar í því hlutverki að sinna ráðgjöf við innflytjendur í hverju hverfi.

Efla foreldrarölt og nágrannavörslu í samráði við íbúa í hverju hverfi.

Efla samstarf við háskóla um afmörkuð uppbyggingarverkefni í hverfum.

Lýðræðis- og umbótastefna
Uppstokkun, stjórnfesta og ábyrg fjármálastjórn

Uppstokkun og endurmat

Eftir hrun bankanna og þau ótrúlegu vinnubrögð sem birst hafa borgarbúum á kjörtímabilinu þarf borgarstjórn að leggja áherslu á að endurheimta traust.

Undirstrika þarf gegnsæi og góða meðferð almannafjár í öllum rekstri Reykjavíkurborgar.

Forgangsraðað verði í þágu þjónustu við íbúa.

Stofnað verði embætti Umboðsmanns borgarbúa til að leiðbeina íbúum og veita þeim ráðgjöf um rétt sinn.

Fækka þarf nefndum og einfalda hið pólitíska stjórnkerfi. Sambærileg endurskoðun fari fram á stjórnsýslunni. Skerpt verði á verkaskiptingu milli stjórnmálamanna og embættismanna.

Öll störf hjá Reykjavíkurborg verði auglýst og ráðningar ákveðnar á faglegum forsendum.

Stuðla að starfsánægju starfsfólks og styðja það í störfum þeirra.

Hert verði á reglum um útboð og innkaup með það að markmiði að hagræða, auka samkeppni og jafnræði.

Dæmi. Herða þarf sérstaklega kröfur sem sporna gegn kennitöluflakki.

Í siðareglur borgarstjórnar komi ákvæði um birtingu skulda og skuldbindinga kjörinna fulltrúa, ekki síður en eigna þeirra.

Sett verði á stofn siðanefnd á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga til að úrskurða í álitamálum og þegar grunur vaknar um brot á siðareglum.

Íbúalýðræði og aðgengilegur borgarstjóri

Samfylkingin vill efla íbúalýðræði. Með því að greiða götur íbúanna að ákvörðunum er viðurkenndur réttur einstaklinga til upplýsinga og þátttöku við að móta nánasta umhverfi sitt.

Fjölga á beinum atkvæðagreiðslum um meginmál og setja um framkvæmd þeirra skýrari ramma.

Samráð í skipulags-, umhverfis- og skólamálum á að gera markvissara og styrkja aðkomu íbúa og foreldra að lykilákvörðunum.

Flytja þarf aukin verkefni og fjárráð til hverfaráða.

Opnuð verði lifandi lýðræðis- og ábendingagátt á vef Reykjavíkurborgar.

Dagbók borgarstjóra á að vera opinber.

Opna hverfafundi borgarstjóra á að endurvekja.

Opin stjórnsýsla

Upplýsingar um borgarreksturinn eiga að vera öllum aðgengilegar til að skapa traust, eðlilegt aðhald og eftirlit.

Réttur til aðgangs að upplýsingum verði styrktur með endurskoðun á upplýsingastefnu Reykjavíkurborgar.

Hagtölur Reykjavíkur á að gefa út á netinu með helstu kennitölum úr rekstri borgarinnar, efnahagsumhverfi og atvinnulífi Reykjavíkur.

Sameining sveitarfélaga og aukið sjálfstæði hverfanna

Samfylkingin vill markvissari og nánari samvinnu og sameiningu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Jafnframt verði sjálfstæði hverfa í ákvörðunum, þjónustu og rekstri aukið.

Reykjavík taki forystu í umræðum um nánari samvinnu og sameiningu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

Stefnt verði að því að styrkja og einfalda stjórn á sameiginlegum verkefnum á sviði skipulagsmála, samgöngu- og umhverfismála og sameiginlegra verkefna byggðasamlaga.

Staða svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins verði styrkt og jafnframt unnið nýtt svæðisskipulag sem nái frá Reykjanesi í vestri, Árborgarsvæðinu í austri og Borgarnesi í norðri. Jafnframt verði sett fram sameiginleg sýn á umhverfis-, atvinnu- og húsnæðismál á öllu svæðinu.

Útfærðar verði tillögur í samráði við íbúa og starfsfólk með það markmið að draga úr miðstýringu og auka sjálfstæði hverfa með eflingu hverfaráða, hverfatengdrar þjónustu og forgangsröðun í rekstri innan hverfisins.

Traust fjármálastjórn – öruggari rekstur

Ábyrg og traust fjármálastjórn er forsenda þess að unnt sé að ná settum markmiðum. Þá kröfu verður að gera til áætlana að þær standist.

Unnin verði áætlun um efnahag- og fjármálastjórn Reykjavíkurborgar til fimm ára. Samhliða gerð hennar verði unnar fjármálareglur, stefna um áhættu- og lánastýringu þar sem fjárhagslegt eftirlit verði styrkt í ljósi reynslunnar. Áætlunin og stefnan nái jafnt til borgarsjóðs og fyrirtækja borgarinnar.

Undirbúningur fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar verði stokkuð upp og stefnumótun einstakra málaflokka gefið aukið vægi og aðkoma íbúa og hagsmunaaðila gerð gegnsærri.

Fyrirtæki borgarinnar- eftirlit og eigendastefna

Reynslan kennir að skýra verður verka- og ábyrgðarskiptingu milli stjórna fyrirtækja í eigu sveitarfélaga og helstu stjórnenda þeirra. Jafnframt þarf að skilgreina aðkomu sveitarstjórna að stefnumótun og eftirliti með starfsemi og rekstri fyrirtækjanna.

Eigendastefna verði skilgreind fyrir fyrirtæki og byggðasamlög í eigu borgarinnar.

Aðkoma kjörinna fulltrúa að stefnumótandi ákvörðunum í rekstri byggðasamlaga og fyrirtækja borgarinnar verði tryggð, óháð setu þeirra í stjórnum þeirra.

Tryggja þarf að stefna Reykjavíkurborgar nái fram að ganga í samræmi við eignahluti borgarinnar í byggðasamlögum og fyrirtækjum borgarinnar að teknu eðlilegu tilliti til hagsmuna og sjónarmiða minnihlutaeigenda.

Innra eftirlit á að veita virkt aðhald í borgarkerfinu og reglubundið árangursmat á að vera ófrávíkjanleg regla í öllum rekstri.

Góð og skilvirk þjónusta

Byggðar verði upp þrjár megingáttir almennrar þjónustu Reykjavíkurborgar þar sem markmiðið er einfalt aðgengi að allri þjónustu á einum stað: á þjónustumiðstöðvum í hverfum, í sameiginlegu símaveri og á vefnum Rafrænu Reykjavík.

Lokið verði við að setja stofnunum og fyrirtækjum borgarinnar þjónustumarkmið þar sem þær væntingar og kröfur sem borgarbúar geta gert til borgarinnar koma fram.

Jafnframt verða markmið þjónustunnar og tímafrestir skilgreindir.

Þjónustumarkmið fela í sér að Reykvíkingar eigi rétt á faglegri þjónustu, skilvirkni og góðri nýtingu fjármuna.

Borgin á að taka upp stöðugt árangursmat þjónustu á sem flestum sviðum og vinna að því að innleiða vottuð gæðakerfi þar sem við á.

Mannréttinda, jafnréttis- og menningarstefna
Borg fjölbreytileikans

Í miklu atvinnuleysi og efnahagsþrengingum eykst hættan á félagslegri mismunun. Innflytjendur eiga á hættu að vera á jaðri samfélagsins, fólk með fötlun á undir högg að sækja á vinnumarkaði og huga ber að ólíkri stöðu kynjanna í þróun atvinnuleysis. Stéttskipting birtist okkur í gegnum menningar-, íþrótta- og frístundaþátttöku barna og unglinga. Samfylkingin vill jafnt aðgengi allra að menningu og þjónustu borgarinnar.

Forysta borgarinnar í mannréttinda- og menningarmálum verður að vera ótvíræð. Í Reykjavík er fjölbreytileikinn mestur og atvinnuleysi mikið. Samfylkingin telur að mannréttindi, menning og jafnrétti séu samþætt allri tilveru borgarbúa og allri starfsemi borgarinnar; frá borgarskipulagi til skólastarfs. Mannréttindastefna borgarinnar á að vera leiðarljós í allri þjónustu borgarinnar.

Reykjavík er fjölmenningarsamfélag

Samfylkingin ætlar sér að marka skýra stefnu í þjónustu og ráðgjöf við innflytjendur.

Samfylkingin ætlar að:

endurskoða þjónustu- og ráðgjafarhlutverk borgarinnar í samráði við ríkið og önnur sveitarfélög.

stuðla að aukinni þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna í frístundastarfi í samstarfi við íþróttafélög, skólahljómsveitir og listaskóla.

efla móðurmálskennslu barna af erlendum uppruna í samstarfi við grasrótarsamtök.

leita allra leiða til að fjármagn til íslenskukennslu barna af erlendum uppruna nýtist sem best og í þágu þeirra barna sem mest þurfa á henni að halda. Tryggja verður að fjármagn til íslenskukennslu sé nægilegt til að hún nái markmiðum sínum.

styðja við félög og hagsmunasamtök útlendinga og fela þeim ákveðið hlutverk í stefnumótun borgarinnar í málefnum innflytjenda.

Jafnrétti í verki

Reykjavíkurborg er stærsti vinnustaður landsins.

Samfylkingin ætlar að:

kanna árlega þróun kynbundins launamunar og bregðast við með áætlun sem hefur það að markmiði að honum verði útrýmt að fullu.

marka stefnu um jafnréttisfræðslu. Skólar verða að mæta þörfum bæði stráka og stelpna.

móta aðgerðaráætlun gegn ofbeldi. Tryggja að allt starfsfólk borgarinnar bregðist markvisst við þegar grunur leikur á um ofbeldi.

Mannréttindi og þjónusta sem næst fólki

Reykjavíkurborg tekur við málefnum fatlaðra frá árinu 2011 og málefnum aldraðra frá árinu 2012.

Samfylkingin ætlar að:

tryggja að þjónustan verði þróuð og unnin í samráði við notendur og starfsfólk.

styrkja þjónustumiðstöðvar í hverfum borgarinnar m.t.t. málefna fatlaðra og aldraðra.

móta stefnu um félagsstarf og aðra þjónustu við eldri borgara með það að markmiði að eldri borgarar hafi sjálfir um það að segja hvernig þjónustan er.

Menning fyrir alla

Menning og listir í Reykjavík eru mikilvægar fyrir sjálfsmynd borgarbúa, mannlífið, menntun barna og Reykjavík sem ferðamannastað. Menningarlíf á að einkennast af fjölbreytni og virkri þátttöku allra á öllum aldri. Fjölmenning er dýrmætur þáttur í menningu borgarinnar. Ekki skal einblína á efnahagslegan ávinning af menningarstarfsemi, menningin er í sjálfu sér bæði auður og uppspretta. Menningarstefna borgarinnar á að ná til allra hverfa og miða að samstarfi ólíkra aðila. Börn og unglingar hafa rétt á því að komast í kynni við menningu og listir. Starfsemi sjálfstætt starfandi listahópa er mikilvæg borgarmenningunni. Fjölmenning er dýrmætur þáttur í menningu borgarinnar.

Samfylkingin ætlar að:

stuðla að því að styrkir til menningarmála séu veittir með hliðsjón af nýsamþykktri menningarstefnu borgarinnar.

setja markmið um styrkveitingar fyrir hvert ár.

móta stefnu um framtíðarhlutverk Hörpunnar sem tónlistarhús fyrir alla.

stofna til ,,Menningarfána“. Skólar keppi að því markmiði að uppfylla skilyrði um menningarstarf, listsköpun, samstarf við listamenn og áherslu á fjölmenningu.

Skipulags- og samgöngustefna
Gott borgarumhverfi skapar lífsgæði fyrir alla

Gott borgarumhverfi einkennist af félagslegu réttlæti, skemmtilegu götulífi, góðum samgöngum, skjólsælum torgum, fallegum húsaröðum og görðum; góðu vatni, heilnæmu lofti,  góðu aðgengi að þjónustu og skjóli fyrir veðri og vindum.

Lélegt borgarumhverfi einkennist af skorti á þessu. Gott borgarumhverfi er eitt stærsta hagsmunamál borgarbúa. Gott borgarumhverfi gerir ekki upp á milli fólks.

Höfuðborgarsvæðið er sambýli

Höfuðborgarsvæðið er eitt atvinnu- og búsetusvæði og myndar eina skipulagsheild. Smákóngaveldið, þar sem öll áhersla er lögð á samkeppni sveitarfélaganna frekar en samvinnu og samráð, hefur reynst dýrkeypt. Skortur á samvinnu á einnig sinn þátt í því hve erfitt hefur reynst að halda uppi almenningssamgöngum á svæðinu. Breytinga er þörf.

Samfylkingin telur nauðsynlegt að svæðisskipulagið fái sterkari stöðu og tryggi ábyrgari þróun höfuðborgarsvæðisins. Svæðiskipulagsráð eða sameiginlegur vettvangur sveitarfélaganna þarf að hafa vald til að móta og stýra stefnu á sviði landnotkunar, byggðaþróunar, samgangna og umhverfismála.

Þorpin í borginni. Þjónustan í hverfunum

Skipulagið í borginni ætti að beina þjónustu inn í hverfin en ekki út  úr þeim. Hin mörgu og ólíku hverfi borgarinnar eiga að vera eins og þorp þar sem hægt er að sækja alla mikilvæga þjónustu: matvöruverslun, heilsugæslu, skóla, frístundaiðkun, afþreyingu og menningarviðburði. Þannig verður borgin notendavæn og vistvæn og þar með lífvænleg.

Matvöru- og smávöruverslun á ekki að beina í stórar verslunarskemmur við stofnbrautir í útjaðri byggðarinnar. Við teljum nauðsynlegt að móta heildræna stefnu í þjónustu og verslun þar sem lífsgæði íbúanna eru höfð að leiðarljósi. Nýleg dæmi úr borginni sanna að hægt er að reka lággjaldaverslanir með matvöru inni í hverfunum.

Réttur íbúanna og ábyrgð. Við eigum borgina saman

Skipulagsákvarðanir í borginni hafa bein áhrif á líf okkar og barnanna okkar. Það verður að vera hafið yfir allan vafa að almannahagsmunir ráði ávallt ferðinni en ekki sérhagsmunir fjárfesta og verktaka.

Réttur íbúanna á að vera skýr. Þeir eiga að geta leitað til hlutlauss sérfræðings, sér að kostnaðarlausu, sem skýrir út fyrir þeim tölur um byggingarmagn, hæðir, nýtingarhlutfall, skuggavarp og umferðaspár.

En íbúarnir eru líka ábyrgir fyrir borgarumhverfinu. Við leggjum áherslu á að borin sé virðing fyrir almenningsrými, götum, görðum, gangstéttum og torgum. Við eigum borgina saman.

Endurnýjun hverfa. Byrjum á Breiðholti

Borgir eru lífrænar. Borgarhverfi þurfa viðhald og endurnýjun með reglulegu millibili. Á meðan fasteignamarkaður og uppbygging er í lægð gefst kærkomið tækifæri að ljúka við gerð nýs aðalskipulags, gera langtímaáætlun  og vinna að viðhaldi og endurnýjun hverfanna.

Samfylkingin vill vinna markvisst að endurnýjun borgarhverfa. Setja skal fram þróunaráætlun á forsendum hvers hverfis fyrir sig. Endurnýjunin felur meðal annars í sér endurbætur á gangstéttum, götum, gatnamótum, torgum, görðum, göngustígum, leikvöllum, grænum svæðum, húsum, þjónustukjörnum. Efra-Breiðholt verður fyrst á dagskrá.

Samfylkingin mun beita sér fyrir endurnýjun úr sér genginna iðnaðar- og verslunarsvæða og þéttingu byggðarinnar þar sem það á við. Elliðavogs- og Höfðasvæðið býr yfir miklum tækifærum og getur gengið í endurnýjun lífdaga. Skipulagi Mýrargötusvæðisins og Gömlu hafnarinnar þarf að ljúka og þegar fasteignamarkaður kemst í eðlilegt horf má hefja uppbyggingu við Hlemm og á völdum svæðum í Vatnsmýri.

Mikilvægt er að við þéttingu og endurnýjun í gamalgrónum hverfum sé vandað til hönnunar og tekið tillit til umhverfisins. Samfylkingin vill vernda byggðamynstrið í miðborg Reykjavíkur. Ekki skal gengið á heildstæð græn svæði.

Við skipulag nýrra hverfa og endurnýjun gamalla hverfa er nauðsynlegt að skapa umgjörð fyrir félagslegan fjölbreytileika. Hlutur leiguíbúða skal vera minnst fimmtungur á nýjum byggðarsvæðum. Vinna skal að aðgengi fyrir alla, innan húss sem utan.

Tóm hús eru tómt rugl. Samfylkingin vill beita þá húseigendur dagsektum sem láta hús í grónum hverfum standa auð og grotna niður.

Borgargötur eiga að hafa fallegt yfirbragð. Samfelldar húsaraðir byggðar að gangstétt mynda skjól fyrir fótgangandi vegfarendur.

Vistvæn samgöngustefna í verki

Borgin setur sér vistvæna samgöngustefnu og hún ætlast til þess að fyrirtækin í borginni geri slíkt hið sama. Koma þarf upp hvatakerfi sem umbunar starfsmönnum fyrirtækja sem nota vistvænar samgöngur.

Strætó á 10 mínútna fresti. Strætisvagnar eiga að ganga á 10 mínútna fresti á álagstímum. Þeir ganga alla daga ársins.

Mikilvægt er að hanna og leggja göngustíga, gangstéttir og hjólabrautir af sama metnaði og vegir eru lagðir fyrir bíla.

Hjólreiðar eiga að vera hluti af umferðarflæðinu í gegnum borgarhverfin, milli þeirra og milli sveitarfélaga.

Samfylkingin vill að fleiri götum verði breytt í vistgötur, jafnvel göngugötur þar sem við á. Skoða þarf þann möguleika að breyta völdum stofnbrautum í breiðgötur með hægari umferð. Hraðbrautir eiga ekki heima í íbúahverfum.

Endurskoða þarf reglugerðir um fjölda bílastæða við íbúðarhús og fyrirtæki. Einnig þarf að endurskoða þá aðferð að láta umferðaspár alfarið ráða uppbyggingu gatnakerfisins.

Umferðin og gatnakerfið á að vera á forsendum borgarinnar en ekki öfugt. Endurhugsa þarf hið flokkaða gatnakerfi og laga það að blandaðri borgarbyggð.

Fótgangandi vegfarendur eiga að hafa forgang í umferðinni í miðbænum.

Lítum okkur nær

Landslagið og náttúran umhverfis höfuðborgarsvæðið er eitt helsta ríkidæmi okkar sem búum hér. Fiskivötn, tærar ár, lækir, grænir dalir, hraun, eldfjöll, háhitasvæði, heiðar, blár fjallahringur, ósnortnar strendur. Þetta er sannkallað ævintýraland. Við viljum vekja íbúana til meiri vitundar um þennan auð og gera þetta land aðgengilegra. Þetta er sameiginlegt verkefni sveitstjórnarmanna á höfuðborgarsvæðinu.

Samfylkingin í Reykjavík vill:

Að lagður verði samfelldur göngu- og hjólastígur með ströndinni frá Seltjarnarnesi og suður fyrir Hafnarfjörð.

Vernda ströndina þar sem hún er ósnortin og græna trefilinn umhverfis höfuðborgarsvæðið.

Byggja upp aðgengilegri útvistarsvæði í nágrenni borgarinnar.

Að grænu svæðin innan borgarmarkanna verði betur nýtt, þeim verði betur sinnt og  þar með líflegri. Tryggja ætti öllum aðgengi að grænum svæðum.

Vatnsmýrin verður byggð en það tekur tíma

Stærstu fyrirtæki og stofnanir borgarinnar, háskólar og Landsspítali, eru í uppbyggingu við Vatnsmýrina. Þar starfa nú og læra um það bil 20 þúsund manns. Þetta felur í sér mikið tækifæri fyrir Reykjavík eins og önnur byggð á svæðinu. Sú uppbygging mun hins vegar þróast yfir lengri tíma. Samfylkingin styður eindregið að skipulag byggðar í Vatnsmýri taki mið af vinningstillögunni frá 2008. Þar er gert ráð fyrir að flugvöllurinn fari. Í ljósi þeirra úrlausnarefna sem útþenslan í útjaðri byggðarinnar skilur eftir sig er þó ljóst að flugvöllurinn er ekki á förum á komandi kjörtímabili.

Umhverfisstefna
Umhverfismál krefjast samvinnu

Umhverfismál snúast bæði um réttindi og skyldur. Rétt okkar til að búa í heilbrigðu umhverfi og njóta þeirra lífsgæða sem nútíminn hefur upp á að bjóða en einnig þær skyldur okkar að ganga vel um umhverfi okkar sem við höfum fengið að láni og skila því í jafn góðu eða betra ástandi til næstu kynslóðar. Umhverfismál krefjast samvinnu, ekki bara yfir hreppamörk heldur yfir höf og álfur.

Reykjavíkurborg hefur möguleika á að vera í hópi grænustu höfuðborga heims en til þess þarf samstillt átak margra aðila. Samfylkingin í Reykjavík ætlar að:

skapa betri borgarbrag og draga úr þörf fyrir sífellt stærri og dýrari umferðarmannvirki með betra borgarskipulagi, betri almenningssamgöngum og bættri aðstöðu fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.

að orkukerfi samgangna verði endurhugsað til að skapa sem mestan heildrænan ávinning fyrir samfélag og umhverfi.

setja skilgreind og tímasett markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda í Reykjavík.

setja sér markmið um að innan áratugar verði annað hvert ökutæki í borginni knúið visthæfum innlendum orkugjöfum. Til að ná þessu markmiði verði efnt til samstarfs við framkvæmda- og löggjafavaldið, nágrannasveitarfélög og áhugasömum aðilum, innlendum sem erlendum, boðið samstarf um að ná settu marki.

fara í markvissar aðgerðir til að draga úr umferðarhættu, svifryks- og hávaðamengun í borginni.

gera strætó að raunverulegum valkosti við einkabílinn en til þess þarf að auka tíðni á álagstímum, tryggja að strætó gangi alla daga ársins og að leiðarkerfið nýtist börnum til að komast til og frá frístundum.

að notendaráð starfi með virkum hætti og leiðbeini stjórn Strætó Bs. um þjónustu. Sérstaklega skal horft til þess að Reykjavíkurráð ungmenna geti haft áhrif á leiðakerfi strætó.

bæta flæði hjólandi umferðar innan borgarinnar og hvetja fyrirtæki í borginni til að bæta aðstöðu fyrir hjólreiðafólk á vinnustað og að láta það njóta sömu hlunninda og þeir sem mæta á bíl, í anda hugmyndafræði um jafnræði samgöngumáta.

gera borgarbúum auðveldara að flokka sorp og koma því til skila. Reykjavíkurborg á að tryggja gæði sorphirðunnar en nýta sér þá samkeppni sem fyrir hendi er um frágang og nýtingu á þeim verðmætum sem vel flokkað sorp skilar.

gera heildstæða úttekt á grænum svæðum borgarinnar og marka þeim vernd á grunni hennar. Of lengi hefur viðgengist að kroppað sé úr þessum svæðum til mannvirkjagerðar og tími til kominn að ákveða framtíð þeirra út frá gildi þeirra sem útivistarsvæða fyrir almenning í stað þess að líta á þau sem einskismannsland.

auka áherslu á útikennslu og náttúruskóla fyrir börn og tryggja að öll skólahverfi eigi möguleika á nálægð við grænt náttúrusvæði með aðstöðu fyrir slíka fræðslu.

endurhanna opin leiksvæði, græna reiti og vannýtta rólóvelli víða um borgina þannig að þar verði eitthvað spennandi við að vera fyrir alla fjölskylduna.

gera samkomulag við öll sveitarfélög sem land eiga að náttúrusvæðum á Reykjanesskaganum um vernd og aðra nýtingu þessara svæða t.d. í anda hugmynda um eldfjallagarð og fjölbreytt útivistarsvæði. Ljóst er að gildi þessara svæða fyrir útivist og ferðamennsku er þegar mikið og á aðeins eftir að aukast á næstu áratugum. Mikill skaði væri að fórna slíkum verðmætum fyrir þrönga skammtímahagsmuni.

Skóla- og frístundastefna
Bjartari framtíð fyrir öll börn

Samfylkingin vill gera einkunnarorð þjóðfundar um menntamál að leiðarljósi reykvískra skóla: ,,Virðing, gleði og sköpun“. Grunnstef jafnaðarstefnunnar segir að skólar eigi að vera fyrir öll börn, óháð atgervi og efnahag. Góður skóli er sá sem ræktar styrkleika hvers barns svo það megi njóta sín til fulls. Frístundastarf, menningarfræðsla og íþróttir eru mikilvægur hluti af námi barna, þroskar þau og eflir. Við þröngan fjárhag borgarinnar  verður að forgangsraða til barna og ungmenna. Þannig vill Samfylkingin forgangsraða.

Sterkari skóli, innihaldsríkur skóladagur og samstarf sem flestra. Stefna Samfylkingarinnar er:

að stórauka samstarf allra þeirra sem koma að menntun, umönnun og uppeldi barna og ungmenna. Færa skal þjónustu út í hverfin, til barnanna og foreldranna.

að stytta vinnudag barna með samþættingu frístunda- og skólastarfs og stuðla þannig að fleiri samverustundum fjölskyldna.

að minnka skutlið með ,,frístundastrætó“ í öllum hverfum.

að íbúar á hverjum stað hafi áhrif á þróun samstarfs frístundaheimila og skóla.

að listnám verði í boði á skólatíma og í skólahúsnæði og leitað allra leiða til að sem flest börn geti notið listkennslu.

að byggja upp öfluga skólaráðgjöf í hverfunum, sem næst börnunum.

Gagnrýnin hugsun skapar sterkara samfélag. Stefna Samfylkingarinnar er:

að auka vægi siðfræði, heimspeki, tjáningar og samvinnu í námi barna í leik- og grunnskólum sem og frístundaheimilum.

að menntastefna landsins speglist í reykvískum leik- og grunnskólum: læsi í víðum skilningi þess orðs, mannréttindi og lýðræði, jafnrétti, menntun til sjálfbærni og skapandi hugsun.

að allt starf með börnum og unglingum í Reykjavík taki mið af mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar.

Aðgengi barna og unglinga að menningu og listsköpun. Stefna Samfylkingarinnar er:

að leik- og grunnskólar og frístundaheimili móti sér menningarstefnu og geri áætlun um samstarf við listamenn og menningarstofnanir.

að skólar geti keppt um ,,menningarfána“, samanber Grænfána í umhverfismennt. Skólar fengju þá viðurkenningu sem skara fram úr í menningar- og listfræðslu og eru í virku samstarfi við listamenn og menningarstofnanir. Fánum gæti fjölgað eftir áherslum í skólasamfélaginu hverju sinni (Tæknifáninn, Heilsufáninn).

Ódýrari frístundir og jafnt aðgengi. Stefna Samfylkingarinnar er:

að forvarnar, frístunda- og félagsstarf séu hluti af menntun barna og unglinga.

að allir sem vilja geti stundað íþróttir ánægjunnar og heilsunnar vegna og að áfram verði stutt við afreksíþróttir.

að fara í viðræður við íþróttafélög, æskulýðsfélög og listaskóla um að skipulagt frístundastarf barna og unglinga verði ódýrara og aðgengilegra.

að öllum börnum bjóðist áfram hollar og ódýrar skólamáltíðir.

að auka samráð við börn og ungmenni um hvað eina sem lýtur að þeirra daglega lífi, frístundaframboð, námsaðferðir og mótun skólanámskrár.

leita allra leiða til að fjármagn til íslenskukennslu barna af erlendum uppruna nýtist sem best og í þágu þeirra barna sem mest þurfa á henni að halda. Tryggja verður að fjármagn til íslenskukennslu sé nægilegt til að hún nái markmiðum sínum.

að sá möguleiki verði fyrir hendi að hægt verði að auka verðgildi frístundakortsins vegna barna sem þurfa sérstakan stuðning. Einnig að aðstandendur barna geti aukið verðgildi frístundakortsins með framlögum.

að við uppbyggingu íþróttaaðstöðu verði einkum horft til þeirra hverfa þar sem lítil aðstaða er í boði, t.d. Grafarholts, Norðlingaholts og Úlfarsárdals.

Samstarf heimila og skóla. Við eigum börnin saman. Stefna Samfylkingarinnar er:

að leiða róttæka hugarfarsbreytingu um að skólinn og samfélagið séu eitt, og að þátttaka allra foreldra í skólastarfi verði raunverulegt hreyfiafl. Fyrir foreldra af erlendum uppruna er túlkaþjónusta mikilvæg svo þátttaka þeirra sé möguleg.

að foreldrum verði gert kleift að láta skoðun sína í ljós á skóla barna sinna með árlegum rafrænum skoðanakönnunum fyrir hvern skóla.

Faglegt starf og samstarf við fræðsluaðila og stofnanir. Stefna Samfylkingarinnar er:

að fara í samstarf innan borgarinnar um kennara- og skólastjóraskipti til að stuðla að útbreiðslu þekkingar, meira samstarfi og starfsþróun.  Skólastjórar verði ráðnir til ákveðins árafjölda í senn en heimilt verði að endurnýja samninga að þeim tíma liðnum.

að styðja við nýbreytni- og þróunarstarf í leik- og grunnskólum og í frístundastarfi.

að styrkja fræðsluhlutverk húsdýragarðsins og leita leiða til að Náttúruskólinn mæti sívaxandi eftirspurn. Hvetja skal til þess að stofnanir borgar og ríkis þrói sambærilegar kynningar- og fræðsludeildir og Rafheimar Orkuveitu Reykjavíkur.

Unga fólkið, brotthvarf og atvinnuleysi. Stefna Samfylkingarinnar er:

að taka upp viðræður við Mennta- og menningarmálaráðuneytið um að Reykjavíkurborg reki tilraunaskóla fyrir 13-18 ára nemendur.

að rjúfa einangrun og óvirkni ungra atvinnuleitenda með samstarfi ríkis og borgar, stéttarfélaga, símenntunarmiðstöðva, ÍTR, grunn- og framhaldsskóla.

að náms- og starfsráðgjöf í grunnskólum verði efld eins og kostur er.

að borgin tryggi sumarstörf eða tómstundastarf fyrir ungmenni yfir sumartímann eftir föngum. Sérstaklega þarf að beina sjónum að 17 ára gömlum Reykvíkingum. Mikilvægt er að virkja frumkvæði ungmenna í því samhengi og mætti horfa til starfsemi Austurbæjarbíós sumarið 2009 í því samhengi.

Velferðarstefna
Eitt samfélag fyrir alla – velferð borgarbúa

Samfylkingin vill ýta undir virka þátttöku allra. Þátttaka er mannréttindi. Við tryggjum öllum tækifæri. Samfylkingin hafnar fátækt og félagslegri mismunum einstaklinga og hópa.

Ójöfnuður leiðir til sundrungar en jöfnuður skapar stöðugleika. Reykjavík á að verða borg sanngirni.

Þjónusta í hverfinu þínu

Velferðar- og sérfræðiþjónusta á að snúa jafnt að öllum, ungum sem öldnum, í hverfum borgarinnar.

Þverfagleg vinnubrögð og samþætting bætir grunnþjónustu og eykur hagkvæmni.

Samfylkingin vill:

Efla þjónustumiðstöðvar þannig að öll nærþjónusta verði á einum stað og að hún verði kynnt íbúum.

Að samþætt heimaþjónusta og heimahjúkrun verði hverfisbundin.

Að almennu barnaverndarstarfi verði sinnt á þjónustumiðstöðvum.

Að sýnileg löggæsla vinni með barnavernd og þjónustumiðstöðvum í öllum hverfum.

Börn og unga fólkið í forgang

Efst á forgangslista eru  börnin okkar. Reynslan hefur jafnframt sýnt að það er úrslitaatriði í kreppu að virkja ungt fólk 18 – 25 ára sem er án atvinnu og ekki í námi.

Fátækt í æsku og á unglingsárum rænir fólk framtíðinni.

Samfylkingin vill:

Bjóða öllum börnum morgunverð og  hollan hádegismat í skólum og leikskólum á viðráðanlegu verði.

Taka upp viðræður við íþróttafélög, listaskóla og æskulýðsfélög um ódýrari frístundir. Fyrir vikið verði tómstundatilboð þannig að þau nýtist öllum sem vilja.

Að frístundakort barna verði opnað til að hægt sé að bæta inn á það greiðslum.

Dæmi. Foreldrar sem fá fjárhagsaðstoð fá greiðslur inn á frístundakortið til að tryggja möguleika barna þeirra á tómstundum.Einnig að t.d. amma og afi geti greitt inn á kortið.

Leggja áherslu á að fyrstu tvö ár framhaldsskólans verði skólaskylda og að fjölbreytni náms verði aukin með áherslu á iðn- og verknám.

Rjúfa einangrun og óvirkni ungra atvinnuleitenda með öllum ráðum undir forystu þjónustumiðstöðva í hverfum.

Tryggjum að allir hafa í sig og á

Allir eiga að hafa trygga framfærslu og sveitarfélagið á að veita það öryggi. Samfylkingin sættir sig ekki við fátækt sem ríkir í samfélaginu í dag.

Samfylkingin vill:

Að gjaldskrár borgarinnar hækki ekki umfram verðlagsbreytingar.

Lágtekjumörk skv. skilgreiningu ESB og Hagstofunnar eru 160.800 kr. á mánuði. Samfylkin telur að enginn eigi að hafa úr minna að spila. Þetta þýðir að grunnframfærsla gegnum fjárhagsaðstoð og sérstakar húsaleigubætur þarf að hækka.

Dæmi. Lágtekjumark fyrir einstakling er nú 160.800 kr.[1] á mánuði í ráðstöfunartekjur. Einstaklingur með fjárhagsaðstoð fær 125.500 og 18.000 kr. í húsaleigubætur. Hann vantar 17.300 kr. á mánuði til að komast yfir lágtekjumarkið. Reykjavíkurborg á að tryggja þessa viðbót.

Að framfærsla barna verði tryggð með barnabótum og öðrum barnatengdum greiðslum.

Að fjárhagsaðstoð sé ekki langtímaúrræði. Öllum sem hafa verið á framfærslu í meira en 3 mánuði verði boðið upp á ráðgjöf, námskeið og úrræði sem tryggir virkni þeirra.

Reykjavíkurborg leiti eftir auknu samstarfi við Vinnumálastofnun vegna aðstæðna þeirra sem eru utan vinnumarkaðar.

Eitt samfélag fyrir alla

Reykjavíkurborg á að þjóna öllum, óháð aðstæðum. Þjónustan á að vera á einni hendi.

Samfylkingin styður því eindregið flutning þjónustu fatlaðra og aldraðra frá ríki til sveitarfélaga. Reykjavíkurborg á að hafa forgöngu um þróun þjónustunnar á sveitarstjórnarstigi.

Samfylkingin vill:

Að öll þjónusta sé unnin í samstarfi við notendur.

Notendastýrð þjónusta verði þróuð samhliða yfirflutningi eins og fatlaðir hafa haft forgöngu um.

Mótuð verði þjónustustefna eldri borgara í Reykjavík með eldri borgurum

Vinna markvisst í samvinnu við fólk, félög og stofnanir í hverfum að því að rjúfa félagslega einangrun, sérstaklega aldraðra.

Starfrækja félagsmiðstöðvar út í hverfum sem skulu starfa eftir þörfum hverfisbúa og notenda.

Dæmi. Opna félagsmiðstöðvar og þær listasmiðjur sem þar eru, og eru nú að mestu sóttar af eldri borgurum, fyrir foreldra með ungabörn og atvinnuleitendur. Myndi það skapa meira líf og fjölbreyttari starfsemi þar sem kynslóðabilið og „skipting borgarbúa í hópa“ myndi minnka.

Tryggja öryggi og velferð innflytjenda þar sem hætta er á félagslegri mismunun á tímum atvinnuleysis og annarra þrenginga.

Öruggir valkostir í húsnæðismálum

Allir eiga að hafa val á öruggu húsnæði í samræmi við þarfir og fjárhag.

Samfylkingin vill:

Að höfuðborgin bjóði upp á öflugan leigumarkað og búseturétt.

Að Reykjavíkurborg stuðli að vexti og viðgangi húsnæðissamvinnufélaga, leigu- og búsetusamtaka í almannaþágu.

Að skoðað verði hvort Félagsbústaðir verði hluti af stærra húsnæðissamvinnu- og búseturéttarfélagi á öllu höfuðborgarsvæðinu.

Að íbúar í húsnæði á vegum borgarinnar hafi tækifæri til þess að skipta yfir í búseturéttarleið og eignast búseturétt.

Að sérstakar húsaleigubætur eiga að ná til breiðari hóps en nú er.

Tryggja fjölbreytileika í húsnæðisframboði.

Að liðkað verði fyrir því að húsfélög og einstaklingar geti bætt aðgengi að eldra húsnæði.

Dæmi. Húsfélag í 4 hæða fjölbýlishúsi sækir um að koma á lyftu við stigaganginn nú á meðan full endurgreiðsla er af virðisaukaskatti vegna viðhalds og á tímum atvinnuleysis. Reykjavíkurborg auðveldar  afgreiðslu og fellir niður aukin fasteignagjöld á fyrsta ári.

Að fólk sé stutt í þeirri ákvörðun að búa heima með þeirri aðstoð sem hægt er að veita.

Að hugað verði að gæðum heimaþjónustu sem samþætt er við heimahjúkrun.

Að þeir sem búa á hjúkrunarheimilum og sameiginlegum heimilum vegna heilsu eða fötlunar eigi rétt á einkarými og haldi fjárhagslegu sjálfstæði sínu.

Atofna heimili fyrir utangarðskonur, án tafar.