Lóðaskil: spurt út í viðbrögð og yfirlýsingar borgarstjóra

Á fundi borgarráðs í dag óskuðu fulltrúar Samfylkingarinnar eftir upplýsingum um viðbrögð borgarstjóra í málefnum lóðahafa sem ekki hafa fengið að skila lóðum sínum þrátt fyrir úrskurð samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis um að þær ákvarðanir hafi verið ólögmætar. Svo virðist sem aðilum hafi verið send bréf án þess að þau hafi verið lögð fram eða kynnt [...]

  Lesa greinina

Listinn klár: Nýtt fólk úr atvinnulífinu áberandi

Fulltrúaráðsfundur Samfylkingarinnar í Reykjavík samþykkti í gærkvöldi einróma framboðslista flokksins vegna komandi borgarstjórnarkosninga. Nýtt fólk úr atvinnulífinu er áberandi í væntanlegum borgarstjórnarflokki, í sætunum sem raðast neðan þeirra sem þátt tóku í nýafstöðu prófkjöri. Og það er jafnframt áberandi hversu mikil breidd einkennir hópinn, fjölbreytt reynsla og fólk sem býr og þekkir til í öllum [...]

  Lesa greinina

Hvað má réttlæti og jafnræði kosta?

Hanna Birna var til í að borga 600 milljónir fyrir gömlu húsin við Laugaveg – til að kaupa Ólaf F. Magnússon til meirihlutasamstarfs. Og ofgreiða hrun-bætur til verktaka upp á tæpan milljarð, til að fá Óskar Bergsson til meirihlutasamstarfs. En stendur vörð um að fjölskyldum í gríðarlegum erfiðleikum sé mismunað – og beitir fjárhagsstöðu borgarinnar [...]

  Lesa greinina

Steingrímur Hermannsson – minningarorð

Með Steingrími Hermannssyni er genginn einn merkasti stjórnmálamaður Íslands á síðustu öld. Hann ólst upp við skráargat stjórnmálanna, einsog hann sagði sjálfur, forsætisráðherrasonurinn sem ætlaði aldrei í pólitík. Þegar hann yfirgaf þann vettvang átti hann að baki fimmtán ára formennsku í Framsóknarflokknum, litlu skemmri ráðherradóm og sjö ára forsæti í þremur ríkisstjórnum. Vandfundinn er farsælli [...]

  Lesa greinina

Búinn að kjósa – með góðri aðstoð (mynd)

Heiða og Steinar Gauti létu sitt ekki eftir liggja þegar við kusum í prófkjörinu í morgun.

  Lesa greinina

Prófkjörsdagur!

Ég hvet alla til að taka þátt í prófkjörum Samfylkingarinnar sem fram fara um land allt í dag. Í Reykjavík væri gaman að sjá sem felsta á kjörstöðunum á Hallveigastíg og félagsheimili Þróttar í Laugardal. Sem fyrr er líka hægt að kjósa á netinu: www.samfylking.is Í Laugardalnum verður hægt að fylgjast með landsleik Íslands og [...]

  Lesa greinina

Lykiláherslur í prófkjöri Samfylkingarinnar

Það er mín bjargfasta skoðun að Reykjavík þurfi á félagshyggjustjórn að halda næstu árin. Komandi kosningar munu því snúast um það hvort borgarbúar leggi traust sitt á hugmyndafræðina sem leiddi okkur í hrunið eða vilji skýran valkost jafnaðarstefnunnar með áherslu á atvinnuuppbyggingu, lýðræðisumbætur, velferð og börn.
Reykjavík taki forystu í endurreisninni
Samfylkingin er flokkur vinnandi fólks. Við [...]

  Lesa greinina

Blómlegri framtíð Kolaportsins fagnað

Það var skemmtileg stemmning og gaman að sjá hversu margir lögðu leið sína í Kolaportið á laugardag til að fagna því að tvö ár voru síðan framtíð þess var tryggð – á síðasta degi hundrað daga meirihlutans í borgarstjórn. Lifi Kolaportið!

  Lesa greinina

Ragnheiður Gröndal og Felix Bergsson í Prókjörskaffi í Kolaportinu!

Laugardaginn 23. janúar eru nákvæmlega tvö ár frá því að tókst að tryggja framtíð Kolaportsins – en til stóð að breyta því í bílastæðahús. Gegn þessu höfðu þúsundir Reykvíkinga barist – og mótmælt með undirskriftum. Á það hafði ekki verið hlustað og svörin voru: Það er því miður ekkert hægt að gera. Þetta breyttist með [...]

  Lesa greinina

Framboðstilkynning!

Kæri félagi!
Ég býð mig fram til að leiða lista Samfylkingarinnar í borgarstjórnarkosningunum í vor og fara þannig fyrir þeim öfluga og glæsilega hópi jafnaðarmanna sem gefur kost á sér til trúnaðarstarfa fyrir borgarbúa. Hlutverk Samfylkingarinnar á næstu vikum er að vekja von í brjósti borgarbúa um að næstu fjögur ár geti orðið ár uppbyggingar og [...]

  Lesa greinina
Page 4 of 5