Prófkjörsdagur!

Ég hvet alla til að taka þátt í prófkjörum Samfylkingarinnar sem fram fara um land allt í dag. Í Reykjavík væri gaman að sjá sem felsta á kjörstöðunum á Hallveigastíg og félagsheimili Þróttar í Laugardal. Sem fyrr er líka hægt að kjósa á netinu: www.samfylking.is Í Laugardalnum verður hægt að fylgjast með landsleik Íslands og [...]

  Lesa greinina

Lykiláherslur í prófkjöri Samfylkingarinnar

Það er mín bjargfasta skoðun að Reykjavík þurfi á félagshyggjustjórn að halda næstu árin. Komandi kosningar munu því snúast um það hvort borgarbúar leggi traust sitt á hugmyndafræðina sem leiddi okkur í hrunið eða vilji skýran valkost jafnaðarstefnunnar með áherslu á atvinnuuppbyggingu, lýðræðisumbætur, velferð og börn.
Reykjavík taki forystu í endurreisninni
Samfylkingin er flokkur vinnandi fólks. Við [...]

  Lesa greinina

Blómlegri framtíð Kolaportsins fagnað

Það var skemmtileg stemmning og gaman að sjá hversu margir lögðu leið sína í Kolaportið á laugardag til að fagna því að tvö ár voru síðan framtíð þess var tryggð – á síðasta degi hundrað daga meirihlutans í borgarstjórn. Lifi Kolaportið!

  Lesa greinina

Ragnheiður Gröndal og Felix Bergsson í Prókjörskaffi í Kolaportinu!

Laugardaginn 23. janúar eru nákvæmlega tvö ár frá því að tókst að tryggja framtíð Kolaportsins – en til stóð að breyta því í bílastæðahús. Gegn þessu höfðu þúsundir Reykvíkinga barist – og mótmælt með undirskriftum. Á það hafði ekki verið hlustað og svörin voru: Það er því miður ekkert hægt að gera. Þetta breyttist með [...]

  Lesa greinina

Framboðstilkynning!

Kæri félagi!
Ég býð mig fram til að leiða lista Samfylkingarinnar í borgarstjórnarkosningunum í vor og fara þannig fyrir þeim öfluga og glæsilega hópi jafnaðarmanna sem gefur kost á sér til trúnaðarstarfa fyrir borgarbúa. Hlutverk Samfylkingarinnar á næstu vikum er að vekja von í brjósti borgarbúa um að næstu fjögur ár geti orðið ár uppbyggingar og [...]

  Lesa greinina

Sjálfstæðisflokkurinn hringsnýst í málefnum Orkuveitunnar

3/1/10
Ný heildarstefna Orkuveitu Reykjavíkur var samþykkt einróma í stjórn fyrirtækisins milli jóla og nýárs. Fróðlegt verður að fylgjast með umfjöllun um hana á vettvangi borgarstjórnar þar sem hún felur í sér algjörn viðsnúing á stefnu og stóryrðum Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn undanfarin ár.
1. Gagnaveitan – arftaki Línu.net – er nú skilgreind sem hluti af kjarnastarfsemi Orkuveitunnar. Þetta [...]

  Lesa greinina

Samfylkingin leggur til bann við innihaldslausum yfirboðum

15/12/09
Önnur umræða um fjárhagsáætlun Reykjavíkur stendur nú yfir. Í upphafi hennar lagði borgarstjórnarflokkur Samfylkingarinnar fram tillögu um bann við innihaldslausum yfirboðum í aðdraganda borgarstjórnarkosninga. Tillagan er flutt í ljósi erfiðrar fjárhagsstöðu borgarinnar og í ljósi reynslunnar þegar Sjálfstæðisflokkurinn tapaði borginni síðast í kosningum. Vorið 1994 jós Sjálfstæðisflokkurinn út um 800 milljónum króna umfram fjárheimildir eða [...]

  Lesa greinina

Óvissa um framtíð Strætó – einkavæðing eftir kosningar?

20/11/09
Á fundi borgarráðs í gær kristallaðist sú mikla óvissa sem er um framtíðarrekstur Strætó og hvort Sjálfstæðisflokkurinn ætli sér að einkavæða fyrirtækið næsta sumar, að afloknum sveitarstjórnarkosningum, nái hann sæti í meirihluta í Reykjavík og öðrum lykilsveitarfélögum. Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu samþykkti á dögunum að stjórn samtakanna ynni áfram á grundvelli tillagna frá ráðgjafafyrirtækinu [...]

  Lesa greinina

Siðareglur fyrir starfsfólk Reykjavíkurborgar

Borgarráð staðfesti í gær siðareglur fyrir starfsfólk Reykjavíkurborgar. Samþykkt þeirra kemur í kjölfarið á samþykkt siðareglna fyrir kjörna fulltrúa en hún fór formlega fram í borgarstjórn á þriðjudaginn. Fulltrúar starfsfólks vann sjálft að skráningu reglnanna og voru þær m.a. sendar stærstu viðsemjendum borgarinnar til umsagnar. Þannig voru lagðar fram umsagnir Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Félags íslenskra [...]

  Lesa greinina

Reikningur ofþenslu og útþenslu á annað hundrað milljarðar

Það voru stjórnmálamenn í aðdraganda síðustu sveitarstjórnar kosninga, sjálfstæðismenn í öllum sveitarfélögum, sem löðuðu til sín atkvæði með loforðum um ódýrar lóðir fyrir alla. Nú liggur reikningurinn fyrir – offjárfestingin á höfuðborgarsvæðinu er yfir 100 milljarðar, varlega áætlað. Það er grátlegast við þessa staðreynd er að varað var rækilega við þessu þegar meirihlutinn í Reykjavík fór í gang með plön um þreföldun á lóða úthlutunum í upphafi þessa kjörtímabils. Óábyrg stefna í lóða- og skipulagsmálum byggði á sömu hugmyndafræði og óábyrg útlánastefna bankanna, sem var undirrót fasteignabólunnar. Eftir sitja fjölskyldur og fyrirtæki með sárt ennið – og hálfbyggð hverfi með ónóga þjónustu. Þetta þarf að gera upp líkt og bankahrunið

  Lesa greinina
Page 6 of 6