Dagur B Eggertsson
Fæddur 19. júní 1972.
Dagur er fæddur í Osló en uppalinn í Árbæjarhverfi, sonur Eggerts Gunnarssonar dýralæknis og Bergþóru Jónsdóttur lífefnafræðings. Maki Dags er Arna Dögg Einarsdóttir læknir á Landspítalanum háskólasjúkrahúsi. Þau eiga eina dóttur, Ragnheiði Huldu og soninn Steinar Gauta.
Netfang Dags er: dagur.b.eggertsson@reykjavik.is
Námsferill
Árbæjarskóli. Menntaskólinn í Reykjavík, stúdentspróf 1992.
Háskóli Íslands, embættispróf í læknisfræði 1999.
Háskólinn í Lundi, Svíþjóð, meistarapróf í mannréttindum og alþjóðalögum 2005.
Starfsferill
Ýmis störf, s.s. við dýrahald og húsaviðgerðir á unglingsárum.
Blaðamaður á DV sumarlangt 1993.
Starfandi formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands 1994-1995.
Framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs námsmanna 1995-1996.
Dagskrárgerðarmaður á Ríkisútvarpinu, rás 1, 1995-1998 (Víðsjá og á fimmta tug þátta um vísindi og vísindamenn).
Höfundur ævisögu Steingríms Hermannssonar, I-III (útg. 1998, 1999, 2000).
Aðstoðarlæknir á Landsspítalanum-háskólasjúkrahúsi 2000-2001.
Heilsugæslulæknir á Ísafirði sumarið 2001.
Sýkladeild Landsspítalans-háskólasjúkrahúsi sumarið 2002.
Læknir á slysa- og bráðasviði Landspítalans háskólasjúkrahúsi 2003 – 2004.
Almenn félagsstörf
Formaður félags framhaldsskólanema 1991-1992.
Formaður Stúdentaráðs HÍ 1994-1995 og í stúdentaráði fyrir Röskvu, samtök félagshyggjufólks 1994-1996.
Í nefnd um endurskoðun laga um LÍN 1995-1997.
Í stjórn Félagsstofnunar stúdenta 1997-1999.
Pólitískur ferill
Kosinn í borgarstjórn Reykjavíkur fyrir Reykjavíkurlista í maí 2002.
Núverandi nefndastörf á vegum Reykjavíkurborgar
Borgarráð
Stjórn Faxaflóahafna sf.
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, varamaður
Almannavarnarnefnd, varamaður
Viðtalstímar
Hægt er að panta viðtalstíma í síma 411-4750.